Jarðskjálftayfirlit - september 2026
Um 2500 jarðskjálftar mældust á landinu í september, sem er svipaður fjöldi og í ágúst.
Stærsti skjálfti mánaðarins mældist 4,2 að stærð í vestanverðum Langjökli þann 15. september kl. 14:18. Skjálftinn fannst víða á Suður- og Vesturlandi. Alls mældust sex skjálftar 3 að stærð eða stærri, auk skjálftans í Langjökli. Fjórir þeirra á Reykjaneshrygg dagana 15.–17. september og einn á Tjörnesbrotabeltinu, 3,6 að stærð, um 37 km norðvestur af Grímsey þann 30. september.
Mesta virknin var sem fyrr á Reykjanesskaga, þar sem rúmlega 600 skjálftar mældust. Fjórar afmarkaðar hrinur urðu á landinu í mánuðinum. Þær voru í Brennisteinsfjöllum 4.–5. september, á Reykjaneshrygg 15.–17. september, um 10 km SV við Grímsey 17.–19. september og í Torfajökli 27. september.
Virkni í Torfajökli og Langjökli var talsvert meiri en í ágúst, og á Tjörnesbrotabeltinu mældust einnig fleiri skjálftar. Á Reykjaneshrygg mældust hins vegar um helmingi færri skjálftar en í ágúst, þegar stór hrina varð þar 25. ágúst.
Reykjanesskagi
Rúmlega 600 jarðskjálftar mældust á Reykjanesskaga í september, sem er svipað og í ágúst. Meirihluti þeirra, rúmlega 500, var á svæðinu við Kleifarvatn, en um 100 mældust á vestanverðum skaganum, frá Fagradalsfjalli vestur að Reykjanestá. Að kvöldi 4. september hófst hrina í Brennisteinsfjöllum, sem stóð fram á kvöld 5. september. Þar mældust um 150 skjálftar og var sá stærsti rétt tæplega 3 að stærð kl. 20:18 þann 4. september. Hann var jafnframt stærsti skjálftinn á skaganum í mánuðinum. Að öðru leyti var virknin dreifð um skagann án afmarkaðra hrina.
Reykjaneshryggur
Rúmlega 300 jarðskjálftar mældust á Reykjaneshrygg í september, um helmingi færri en í ágúst. Um helmingur þeirra mældist dagana 15.–17. september á tveimur aðskildum stöðum. Fyrst hófst hrina um 70 km suðvestur af Reykjanestá að morgni 15. september sem stóð fram á 16. september. Þar mældust um 65 skjálftar og voru þrír þeirra yfir 3 að stærð, sá stærsti 3,3 að stærð kl. 09:14 þann 16. september. Aðfaranótt 17. september hófst svo önnur hrina nær landi, um 30 km suðvestur af Reykjanestá, þar sem um 90 skjálftar mældust á einum sólarhring. Stærsti skjálfti hrinunnar mældist 3,4 að stærð og varð kl. 01:32 og var hann stærsti skjálftinn á hryggnum í mánuðinum.
Hengill
Hátt í 90 jarðskjálftar mældust á Hengilssvæðinu í september, svipað og í ágúst. Virknin dreifðist yfir mánuðinn, en um hádegi 30. september mældust 12 skjálftar á einni klukkustund á Hellisheiði. Stærsti skjálftinn í þeirri hviðu mældist 2,1 að stærð kl. 12:17 og var jafnframt sá stærsti á svæðinu í mánuðinum.
Suðurland
Rúmlega 300 jarðskjálftar mældust á Suðurlandi í september, talsvert fleiri en í ágúst, einkum vegna aukinnar virkni í Torfajökli.
Suðurlandsbrotabeltið
Um 100 jarðskjálftar mældust á Suðurlandsbrotabeltinu dreift yfir mánuðinn án afmarkaðrar hrinu. Það er svipað og í ágúst. Stærsti skjálftinn mældist 1,6 að stærð í Ölfusi þann 30. september.
Hekla
Tíu jarðskjálftar mældust í og við Heklu í september, allir smáskjálftar undir 1 að stærð. Það er svipað og í ágúst, þegar 12 skjálftar mældust.
Katla
55 jarðskjálftar mældust í Mýrdalsjökli í september, heldur færri en í ágúst. Stærsti skjálftinn mældist 2,4 að stærð þann 22. september.
Torfajökull
Um 150 jarðskjálftar mældust í og við Torfajökul í september, um fimm sinnum fleiri en í ágúst þegar um 30 mældust. Flestir voru staðsettir um 10 km vestsuðvestur af Landmannalaugum. Hrina hófst um kl. 01 aðfaranótt 27. september og mældust 57 skjálftar þann dag, þar af 25 á fyrstu klukkustundinni. Stærstu skjálftar hrinunnar voru um 2 að stærð. Minni hviða varð einnig 13.–14. September þegar rúmlega 20 skjálftar mældust. Stærsti skjálftinn á svæðinu í mánuðinum mældist 2,2 að stærð 17. september kl. 02:11.
Eyjafjallajökull
Einn smáskjálfti mældist í Eyjafjallajökli 21. september.
Vesturland
Grjótárvatn
Um 70 jarðskjálftar mældust á svæðinu við Grjótárvatn í september, nokkuð færri en í ágúst þegar rúmlega 100 mældust. Allir skjálftar mánaðarins voru smáskjálftar og mældist sá stærsti 1,6 að stærð þann 22. september.
Langjökull
Rúmlega 160 jarðskjálftar mældust í og við Langjökul í september, um þrisvar sinnum fleiri en í ágúst. Stærsti skjálfti mánaðarins á landinu, 4,2 að stærð, varð í vestanverðum Langjökli 15. september kl. 14:18. Í kjölfarið mældust rúmlega 60 smærri skjálftar á sama svæði næsta sólarhringinn, sá stærsti 2,6 að stærð. Minni hviða varð einnig 11. september, en þá var stærsti skjálftinn 2,9 að stærð.
Vatnajökull
Bárðarbunga
Rúmlega 60 jarðskjálftar mældust í Bárðarbungu í september, heldur fleiri en í ágúst. Virknin dreifðist nokkuð jafnt yfir mánuðinn og var stærsti skjálftinn 2,6 að stærð 25. september kl. 22:55.
Grímsvötn
16 jarðskjálftar mældust í Grímsvötnum í mánuðinum, allir undir 1 að stærð.
Öræfajökull
12 jarðskjálftar mældust við Öræfajökul í september, sá stærsti 1,2 að stærð.
Fyrir utan þessi þrjú svæði mældust 68 jarðskjálftar annars staðar í og við Vatnajökul, svipað og í ágúst, þar af 11 við Kverkfjöll.
Hofsjökull
Einn jarðskjálfti, 1,4 að stærð, mældist í Hofsjökli 9. september. Í ágúst mældust þar fjórir skjálftar.
Norðurgosbeltið
Um 200 jarðskjálftar mældust á Norðurgosbeltinu í heild í september, svipað og í ágúst. Þar af mældust tæplega 60 á Kröflusvæðinu, allir undir 1 að stærð, og um 80 við Herðubreiðartögl.
Askja
Um 50 jarðskjálftar mældust í og við Öskju í september, sem er fleiri en í ágúst þegar þeir voru um 30. Stærsti skjálftinn á svæðinu mældist 1,6 að stærð 4. september.
Tjörnesbrotabeltið
Um 350 jarðskjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu í september, talsvert fleiri en í ágúst þegar hátt í 190 mældust. Munar þar mestu um hrinu sem hófst snemma morguns 17. september um 10 km SV við Grímsey og stóð með hléum til 19. september. Þar mældust um 100 skjálftar og var sá stærsti 2,8 að stærð kl. 05:13 þann 17. september. Dagana 28.–30. september mældust nokkrir skjálftar á bilinu 2,5–3,6 að stærð um 35 km norðvestur af Grímsey. Sá stærsti, 3,6 að stærð, varð aðfaranótt 30. september kl. 01:26 og var hann stærsti skjálftinn á svæðinu í mánuðinum.
Önnur svæði
Fjórir jarðskjálftar mældust á Arnarvatnsheiði 18. september, sá stærsti 2,0 að stærð, og tveir í Skagafirði, sá stærri 1,7 að stærð 22. september.



