Jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í yfirliti sem birt er mánaðarlega á vefnum (frá september 2024). Náttúruvársérfræðingur skrifar yfirlitið sem birt er í annari viku hvers mánaðar. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Mánaðaryfirlit

Skjálftavirkni í mars 2026


Í marsmánuði mældust tæplega 2700 skjálftar á landinu öllu. Af þeim eru 1900 yfirfarnir. Þetta eru nokkuð færri skjálftar en mældust í febrúar, 3600 skjálftar, en þó fleiri en mældust í janúar, 2000 skjálftar. Þónokkrar hrinur urðu í mánuðinum. Stærsta hrinan var um 25 km SV af Eldey og hófst um hádegi þann 23. mars og stóð yfir í um tvo daga. Alls mældust um 350 skjálftar í hrinunni og er megnið af þeim enn óyfirfarnir. í Þeirri hrinu mældust stærstu skjálftar mánaðarins, 4,4 og tveir skjálftar 4,2 að stærð, sem fundust vel á SV-horni landsins.

Í Torfajökli var áframhaldandi aukin virkni þar sem um 80 skjálftar mældust og stærsti skjálftinn þar síðan 2018 varð 12. mars, 3,7 að stærð.

Í kvikuganginum við Grindavík var áfram nokkuð lítil virkni, um 30 skjálftar mældir, en þar er kvikusöfnun áfram undir Svartsengi og hefur ekki mælst meira magn kviku þar síðan eldgosahrinan hófst við Grindavík 2023.

Nánar má skoða yfirfarna skjálfta í Skjálfta-Lísu

Reykjanesskagi

Á Reykjanesskaga voru um 440 skjálftar mældir í mars. Sá stærsti þeirra var 2,1 að stærð þann 19. mars við Kleifarvatn. Það var áframhaldandi skjálftavirkni í Víkum vestur af Grindavík og nokkrir skjálftar á Reykjanestá. Lítil virkni var í kvikuganginum þennan mánuðinn, um 30 skjálftar. Þónokkur virkni var við Kleifarvatn, bæði vestan þess og austan, en megnið af þeim skjálftum voru mjög litlir, undir 1 að stærð. Um 60 skjálftar mældust við Sandfell í skammvinnri hrinu þar 28. mars. Nokkur eðlileg skjálftavirkni var annars staðar á skaganum.

Á Reykjaneshrygg mældust um 450 skjálftar í mars, en þar af mældust yfir 300 þeirra í hrinu um 25 km SV af Eldey 23.-25. mars. Þar mældist stærsti skjálftinn 4,4 að stærð og tveir aðrir voru yfir 4 að stærð.

Vatnajökull

Bárðarbunga

Í Bárðarbungu voru um 110 skjálftar mældir í mars sem er talsvert umfram það sem mældist í febrúar þegar 30 skjálftar voru skráðir. Þeir stærstu voru báðir 3,1 að stærð 31. mars og 19. mars.

Þónokkur virkni var einnig á djúpa svæðinu SA af Bárðarbungu þar sem um 70 skjálftar mældust, flestir þeirra í hrinu 14. mars. Þetta er talsverð aukning milli mánaða en 10 skjálftar voru mældir þar í febrúar. Skjálftarnir þar eru allir mældir í kringum eða minni en 1 að stærð.

Önnur svæði

Milli Hamarsins og Grímsvatna mældust um 70 skjálftar, allir undir 1,5 að stærð. Annars staðar í Vatnajökli var dreifð eðlileg virkni smáskjálfta.

Grjótárvatn

rúmlega 130 skjálftar mældust við Grjótárvatn í mars. Virknin var nokkuð stöðug yfir mánuðinn og voru allir skjálftarnir undir 2 að stærð. Þetta er áframhaldandi minnkun í virkni, en um 180 skjálftar mældust í febrúar og að meðaltali mældust 240 skjálftar þar á mánuði árið 2025.

Vesturgosbeltið

Hengill

Í Henglinum mældust um 70 skjálftar vítt og breitt um svæðið og þeir stærstu voru rúmlega 1 að stærð.

Langjökull

Í og við Langjökul mældust um 20 skjálftar, nokkrir þeirra í Skjaldbreiði en flestir í og við Geitlandsjökul. Allir skjálftar undir 2 að stærð.

Hofsjökull

Í Hofsjökli mældust einungis 9 skjálftar í mánuðinum. Þar mældist þó einnig nokkuð óvenjuleg óróahviða 2. mars kl 2:40 sem átti sér líklega stað á um 18 km dýpi í NA-verðum jöklinum.

 

Suður af Blöndulóni mældust nokkrir skjálftar, stærstur þeirra 2 að stærð 8. mars.

Austurgosbeltið

Katla

Í Mýrdalsjökli mældust um 200 skjálftar í marsmánuði. Stærstur þeirra mældist 2,7 að stærð 26. mars.

Torfajökull

Í Torfajökulsöskjunni mældust rúmlega 80 skjálftar í mánuðinum, flestir þeirra urðu í tveimur hrinum, annars vegar mældist stærsti skjálftinn þar síðan 2018, 3,7 að stærð 12. mars og honum fylgdi lítil hrina eftirskjálfta í norðanverðri Torfajökulsöskjunni. Hinsvegar mældist smáskjálftahrina í vestanverðri öskjunni 23. mars.

Hekla

Í og við Heklu voru tæplega 20 skjálftar mældir í mars. Allir voru þeir litlir. Þetta er þó meiri virkni en undanfarna mánuði, í febrúar mældust einungis 3 skjálftar við Heklu.

Norðurgosbeltið

Á norðanverðu gosbeltinu mældust flestir skjálftar við Kröflu, allir smáskjálftar.

Í kringum Herðubreið og Herðubreiðartögl mældust um 60 skjálftar hist og her, allir litlir.

Askja

Í Öskju mældust um 50 skjálftar í mars og var virknin aðalega bundin við tvö svæði. Annars vegar í austanverðri öskjunni og hinsvegar í norðanverðum Dyngjufjöllum. Stærsti skjálftinn mældist þar 1.6 að stærð.

Suðurlandsbrotabeltið

Á Suðurlandsbrotabeltinu mældust um 370 skjálftar í marsmánuði. Þar er megnið í hrinu milli Geitafells og Skálafells 17. - 19. mars. Stærsti skjálftinn mældist einnig á sama stað, 2.7 að stærð, þann 14. mars. og fannst hann í nágrenninu. Annars staðar á svæðinu var virknin dreifð en eðlileg.

Tjörnesbrotabeltið

Þónokkur virkni var á Tjörnesbrotabeltinu þennan mánuðinn, tæplega 300 skjálftar mældust. Sá stærsti þeirra mældist 2,6 að stærð 17. mars SA af Grímsey. Mest virknin var milli Grímseyjar og Axarfjarðar í nokkrum þyrpingum skjálfta á víð og dreif í þeirri línu.

Um 40 skjálftar mældust í rétt SA af Flatey á Skjálfanda, en allir nokkuð litlir, undir 1,5 að stærð.

Önnur virkni var dreifð og lítil á svæðinu.

 

Lengst út á Kolbeinseyjarhrygg mældust nokkrir skjálftar, allir undir 3 að stærð.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica