Mosfellsbær
Hættumatsnefnd Mosfellsbæjar ákvað 14. september 2011 að leggja tillögu Veðurstofunnar að ofanflóðahættumati fyrir Mosfellsbæ fram til staðfestingar umhverfisráðherra
Hættumat vegna ofanflóða í Mosfellsbæ er unnið af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Mosfellsbæjar. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við 3. gr. reglugerðar 50... með breytingum í reglugerð 49... um hættumat vegna ofanflóða og flokkun og nýtingu hættusvæða.
Vinna við hættumat fyrir Mosfellsbæ hófst á Veðurstofunni vorið 2010. Eftir að niðurstöður hættumatsins hafa verið kynntar með opnu húsi þann 7. júní 2011 munu þær liggja frammi til kynningar á bæjarskrifstofunni í fjórar vikur. Frestur til að koma athugasemdum á framfæri rennur út föstudaginn 8. júlí.
Matsvinna
- Eiríkur Gíslason (verkefnisstjóri), verkfræðingur.
- Tómas Jóhannesson, jarðeðlisfræðingur.
Hættumatsnefnd Mosfellsbæjar
- Gunnar Guðni Tómasson (formaður), forseti tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík.
- Finnur Birgisson, skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar.
- Jóhanna Björg Hansen, framkvæmdastjóri umhverfissviðs Mosfellsbæjar
- Snjólfur Ólafsson, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.
Skýrslur og kort
Skjöl eru vistuð á pdf-formi.
Tillaga að hættumatskorti (VÍ 2011) (pdf 1,0 Mb)
Mat á hættu vegna ofanflóða í Mosfellsbæ (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Mosfellsbæjar, 2011) (pdf 2,8 Mb)
Ofanflóðahættumat fyrir Mosfellsbæ. Greinargerð með hættumatskorti DRÖG með tillögu að hættumatskorti (Veðurstofa Íslands og hættumatsnefnd Mosfellsbæjar, 2010) (pdf 5.7 Mb)
Hættumat vegna snjóflóða úr lágum brekkum(VÍ minnisblað TóJ-2009/02) (pdf 0,3 Mb)


