Hafís í mars 2011
Landhelgisgæslan fór í eitt eftirlitsflug í mánuðinum, þann 23. mars. Þá var ísröndin næst landi sem hér segir: 56 sml frá Látrabjargi, 38 sml frá Barða, 38 sml frá Kögri og 50 sml frá Hornbjargi. Ekki sáust stórir jakar eða borgarísjakar í jaðri íssins, en nokkrar ísdreifar voru út frá ísröndinni.
Þann 20. mars tilkynnti skip um hafís út af Víkuráli. Var þar um ísspöng að ræða og stórir jakar á dreif og talið varasamt fyrir sjófarendur.
Á Grænlandssundi var vindátt yfirleitt norðaustlæg, eða breytileg, en í byrjun mánaðarins komu nokkrir dagar með suðvestlægri vindátt.