Íslensk eldfjöll
Jarðskjálftar á Íslandi í janúar 2016.

Jarðskjálftar í janúar 2016

Ríflega 2500 jarðskjálftar voru staðsettir í janúar með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands. Flestir skjálftanna áttu upptök í Öxarfirði en þar mældust rúmlega 1400 skjálftar, sá stærsti var 3,7 að stærð og fannst hann við Kópasker, í Þistilfirði og í Reykjahverfi í Norðurþingi. Í Bárðarbunguöskjunni mældust sjö skjálftar yfir 3 að stærð og var sá stærsti 3,6 stig. Fremur rólegt var í Mýrdalsjökli.

Reykjanesskagi

Tæplega 90 jarðskjálftar mældust á Reykjanesskaga. Sá stærsti var 2,1 að stærð við Reykjanestá þann 3. janúar kl. 10:05. Alls voru um 30 skjálftar staðsettir þar í smáhrinu í byrjun mánaðarins. Auk þess var smáskjálftavirkni á þekktum sprungum milli Fagradalsfjalls og Bláfjalla á Reykjanesskanum, en enginn þeirra náði 2 stigum. Einn smáskjálfti átti upptök í Heiðmörk. Fjórir skjálftar minni en 2,5 að stærð voru á Reykjaneshrygg.

Suðurland

Um 40 skjálftar mældust á Hengilssvæðinu, þar af um helmingur á niðurdælingasvæði Orkuveitu Reykjavíkur við Húsmúla. Stærsti skjálftinn þar var 2,0 að stærð þann 31. janúar kl. 00:20. Smáskjálftavirkni mældist undir Hrómundartindi á Hengilssvæðinu. Rúmlega 25 jarðskjálftar voru við Ölfus og Þrengsli, allir voru þeir innan við 1,2 stig. Tæplega 90 skjálftar voru staðsettir á Suðurlandi á þekktum jarðskjálftasprungum milli Selfoss og Selsunds og mældist stærsti skjálftinn 2,2 að stærð þann 10. janúar kl. 21:31 með upptök norðvestan við Hellu. Einn smáskjálfti mældist við Heimaey og einn norðan við Surtsey. Auk þess áttu fjórir smáskjálftar upptök við Heklu.

Mýrdalsjökull

Ríflega 40 smáskjálftar voru staðsettir undir Mýrdalsjökli, allir innan við 1,5 stig. Um helmingur þeirra var við Goðaland, einn skjálfti var við Hafursárjökul og 17 í Kötluöskjunni. Um tylft skjálfta mældust á Torfajökulsvæðinu, sá stærsti var 2,2 að stærð þann 31. janúar kl. 18:44. Einn smáskjálfti var undir Eyjafjallajökli.

Hálendi

Rúmlega 140 jarðskjálftar áttu upptök í og við Bárðarbunguöskjuna. Stærsti jarðskjálftinn mældist 3,6 að stærð þann 20. janúar kl. 13:05 en alls mældust þar sjö skjálftar yfir 3 að stærð. Tæplega 125 skjálftar voru í kvikuganginum undir Dyngjujökli. Um 10 þeirra voru staðsettir á um 15 til 20 km dýpi, þar sem kvikugangurinn beygir til norðausturs. Tíu skjálftar mældust á Lokahrygg og sá stærsti var 3,2 að stærð þann 10. janúar kl. 08:46. Auk þess voru um 20 smáskjálftar við Grímsvötn og nokkrir undir Síðujökli, við Öræfajökull og við Kverkfjöll. Við Öskju mældust um 75 jarðskjálftar og stærsti skjálftinn þar mældist 2,8 að stærð þann 18. janúar kl. 06:05. Ríflega 140 smáskjálftar urðu í nágrenni Herðubreiðar og Herðubreiðartagla, en enginn þeirra náði yfir tveimur stigum. Tæplega 15 skjálftar mældust við Geitlandsjökul í vestanverðum Langjökli, allir voru þeir innan við 2 stig.

Norðurland

Jarðskjálftar á Norðurlandi
""
Rauðu hringirnir sýna upptök jarðskjálfta í janúar 2016 og grænu stjörnurnar sýna jarðskjálfta yfir 3 að stærð. Gráu punktarnir sýna upptök skjálfta frá 1997 til 2015. Svarthvíti boltinn sýnir brotlausn M3,7 skjálftans þann 21.1. kl.04:01. Brotlausnin og skjálftadreifingin sýna vinstri handar sniðgengishreyfingu.

Tvær jarðskjálftahrinur voru úti fyrir Norðurlandi á svonefndu Grímseyjarbelti sem liggur norður frá Grímsey og inn í Öxarfjörð. Önnur hrinan hófst þann 12. janúar í Tjörnesgrunni norðan við Mánáreyjar og hin þann 14. janúar í Öxarfirði. Meira en 1400 skjálftar mældust í Öxarfjarðarhrinunni til loka mánaðarins og heldur skjálftavirknin þar áfram. Stærsti skjálftinn þar mældist 3,7 að stærð þann 21. janúar kl. 04:01. Hann fannst við Kópasker, í Þistilfirði og í Reykjahverfi í Norðurþingi.

Í skjálftahrinunni norðan við Mánáreyjar voru staðsettir um 360 skjálftar og lauk hrinunni þar þann 19. janúar. Stærsti skjálftinn þar var af stærð 3,3 þann 18. janúar kl. 18:58. Þar að auki áttu um 50 smáskjálftar upptök austan og norðaustan við Grímsey. Tveir skjálftar voru á Kolbeinseyjarhrygg. Um 20 skjálftar voru í Eyjafjarðarál og um 30 á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu og var enginn þeirra yfir 2,5 stigum. Tveir smáskjálftar voru á Tröllaskaga, fjórir við Þeistareyki og rúmlega 20 við Kröflu.

Jarðskjálftar í janúar 2016 (pdf 0,3Mb)





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica