Afgreiðsla erinda
Veðurstofa Íslands starfar skv. stjórnsýslulögum nr. 137/1993 og ber að afgreiða erindi sem henni berast samkvæmt þeim. Samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laganna skulu ákvarðanir í málum teknar svo fljótt sem unnt er. Veðurstofan hefur skilgreint tímamörk fyrir afgreiðslu erinda eftir eðli þeirra. Afgreiðslutími almennra erinda er 21 dagur nema þau erindi sem eru sérstaklega tilgreind í meðfylgjandi töflu. Afgreiðslutími erinda miðast við að öll gögn sem nauðsynleg eru ákvarðanatöku liggi fyrir. Málshraði er gefinn upp í dögum.
Fyrirspurnum er svarað innan fimm virkra daga.
Þegar fyrirsjáanlegt er að afgreiðsla máls muni tefjast ber að skýra aðila máls frá því. Skal þá upplýsa um ástæður tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta.
Tafir geta orðið á afgreiðslu erinda og fyrirspurna á sumarleyfistíma og í náttúruváratburðum.
Verkefni | Málshraði | Lögb. frestur |
---|---|---|
Umsagnir | ||
Umsagnir um aðalskipulag | 42 dagar | |
Umsagnir um deiliskipulag | 42 dagar | |
Umsagnir um svæðaskipulag | 42 dagar | |
Aðrar umsagnir | 42 dagar | |
Bráðabirgðahættumat | 42 dagar | X |
Önnur verkefni | ||
Aðgangur að upplýsingum | 7 dagar | |
Rökstuðningur vegna synjunar starfs | 14 dagar | X |