• Viðvörun

    Búist er við stormi (meðalvindi meiri en 20 m/s) S- og A-lands síðdegis og víða um land í kvöld. Gildir til 08.02.2012 18:00 Meira
2006

Jarðskjálftahrina NNV af Grímsey 1. mars 2006

1.3.2006

Í morgun þann 1. mars 2006 kl. 08.21 mældist skjálfti að stærð 3.3 með upptök um 38 km norðnorðvestur af Grímsey. Um 10 skjálftar mældust á þessum slóðum í nótt og morgun. Næst stærsti skjálftinn í þessari hrinu var 2.9 að stærð kl. 10.00. Engin vitneskja er um að skjálftarnir hafi fundist. Upptök skjálftanna eru norðarlega á svonefndu Tjörnesbrotabelti. Um miðjan febrúar síðastliðinn var allmikill skjálftahrina á þessum sömu slóðum og enn stærri hrina var þarna í september 2002. Jarðskjálftahrinur eru því ekki óalgengar þarna.





Aðrir tengdir vefir


Þetta vefsvæði byggir á Eplica