• Viðvörun

    Búist er við stormi N- og A-lands. Gildir til 11.02.2012 01:00 Meira
2008
ljósir fjallahnjúkar, gróðurþekja í kring
Móskarðshnúkar síðdegis 19. júlí 2008.

Veðrið um verslunarmannahelgina 2008

- byggt á spálíkani ECMWF, dags. 28. júlí 2008

28.7.2008


Verslunarmannahelgin nálgast og spáin sem hér er birt gefur grófa mynd af veðrinu um helgina. Hafa ber í huga að spár helgarinnar verða nákvæmari þegar nær dregur. Spáin verður endurskoðuð aftur á morgun, 29. júlí.

Almennt veðurútlit:

Lægðasvæði verður suður- og suðaustur af landinu og því verður austan- og norðaustanátt ríkjandi. Búast má við strekkingsvindi á föstudaginn og dálítilli rigningu um landið austanvert og með suðurströndinni en að annars staðar verði skýjað að mestu og þurrt.

Á laugardag og fram á mánudag er útlit fyrir fremur hægan vind og bjartviðri um mestallt land, en þó má gera ráð fyrir að þokubakkar verði við norðaustur- og austurströndina.

Hlýtt verður í veðri, hiti um 13-22 stig, og líkur eru á að hlýjast verði vestantil á landinu.





Aðrir tengdir vefir


Þetta vefsvæði byggir á Eplica