Fréttir
Skýjahula á Esju
Esjan hulin skýjum.

Haustþing Veðurfræðifélagsins 2012

9.10.2012

Veðurfræðifélagið heldur haustþing næstkomandi fimmtudag 11. október 2012. Fundur verður settur kl. 13 í Forgarði á Veðurstofu Íslands að Bústaðavegi 7.

Þingið og Veðurfræðifélagið eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari. Að þessu sinni eru erindin sex talsins og stutt ágrip erindanna má finna á vefsíðu félagsins.

Dagskrá þingsins:

  • 13:00 – Inngangur
  • 13:05 – Þórður Arason og Hrafn Guðmundsson: Norðurljósaspár Veðurstofunnar.
  • 13:25 – Elín Björk Jónasdóttir: Titill væntanlegur.
  • 13:45 – Nikolai Nawri: The wind energy potential of Iceland.
  • 14:05 – Gunnhildur Ingibjörg Georgsdóttir og Þröstur Þorsteinsson: Sandfok á Íslandi á árunum 2002–2011; tíðni, upptakasvæði og veðuraðstæður.

Kaffihlé

  • 14:50 – Elín Björk Jónasdóttir og Kristín Hermannsdóttir: Veðurspár og veðrið 9.-11. sept. 2012.
  • 15:10 – Haraldur Ólafsson: Þrýstifrávik undir fjalli í ýmsum veðrum.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica