Fréttir
Hofsjökull, nyrðri hluti. Ör vísar á sigketilinn.

Hlaup úr Hofsjökli í ágúst 2013

Nýr sigketill staðfestur

11.10.2013

Þann 21. ágúst 2013 urðu Skagfirðingar varir við mikinn brennisteinsþef úr Vestari-Jökulsá í Skagafirði og jafnframt var áin óvenjulega gruggug og grásilfruð á litinn. Starfsmenn Veðurstofunnar fóru á vettvang, tóku sýni af hlaupvatninu og gengu úr skugga um að það kom undan jökuljaðrinum  í austustu upptakakvísl Vestari-Jökulsár. Hlaupið náði hámarki 24. ágúst en hjaðnaði svo á 3-4 dögum. Rennsli árinnar jókst ekki svo að vandræði hlytust af.

Þann 24. september barst mynd af Hofsjökli úr gervihnettinum Landsat 8 (sjá mynd, stækkanleg). Í norðanverðri brún jökulsins í um 1700 m y.s. mátti sjá flekk sem ekki var að vænta á þessum stað (sjá ör á myndinni).

Vinnuferð í október

Í haustmælingaferð Veðurstofunnar á Hofsjökul 9. október s.l. var svo staðfest að þar (~64°49,5‘N; 18°52‘V) var um 30 m djúpur sigketill, aflangur til vest-norðvesturs og um 700 metrar á lengri veginn.  Yfirborð jökulsins þar var mikið sprungið.

Rúmmál ketilsins var áætlað um 106 m3 eða um ein milljón rúmmetra.

Gera má ráð fyrir að undir jöklinum á þessum stað sé jarðhitasvæði og þá væntanlega háhitasvæði. Ekki er ljóst hvort það er nýlegt eða gamalgróið. Oft hefur orðið vart brennisteinsfýlu við norðurjaðar jökulsins en ekki mælst jarðhitavatn í afrennslinu þar þrátt fyrir vandaðar mælingar. Leitað hefur verið að jarðhita undir jöklinum með viðnámsmælitækjum á árangurs.

Undanfarinn aldarfjórðung hafa starfsmenn Veðurstofunnar og Orkustofnunar farið um jökulinn tvisvar til fjórum sinnum á ári til mælinga. Samt hefur ekki áður orðið vart sigkatla af þessari gerð í Hofsjökli. Óvíst er hvort vænta megi hlaupa frá jarðhitasvæðinu á næstu árum.

Rétt er fyrir alla ferðamenn á Hofsjökli að hafa varann á ef farið er um þessar slóðir enda eru miklar sprungur umhverfis sigketilinn.

Hlaupið í ágúst

Ármót
""
Myndin er tekin 21. ágúst 2013 við ármót Vestari Jökulsár og Hofsár við bæinn Bjarnastaðahlíð og er litamunur á vatninu greinilegur. Ljósmynd: Njáll Fannar Reynisson.
Upptök
""
Hlaupvatnið kom undan jökuljaðrinum í austustu upptakakvísl Vestari-Jökulsár. Myndin er tekin uppi við jökul 22. ágúst 2013. Ljósmynd: Njáll Fannar Reynisson.
Sýnataka
""
 Hilmar Björn Hróðmarsson tók sýni úr hlaupvatninu. Ljósmynd: Njáll Fannar Reynisson.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica