Fréttir
Ný sprunga í Fagraskógarfjalli. Smelltu til að stækka.

Stór sprunga hefur myndast innan við skriðusárið í Fagraskógarfjalli í Hítardal

Efnið mun líklega falla ofan á framhlaupsurðina sem myndaðist í júlí

13.8.2018

Um helgina voru starfsmenn Landhelgisgæslunnar með æfingar í grennd við framhlaupið í Hítardal og komu auga á sprungu sem opnast hefur inná fjallinu skammt frá brotsári framhlaupsins sem féll 7. júlí síðastliðinn.  Sprungan er á sömu slóðum og hrunið sem varð úr toppi framhlaupsins, þann 13. júlí. Nánar tiltekið í innanverðu skriðusárinu.

Spildan sem hefur losnað frá brún fjallsins er á bilinu 50-150 þúsund m3 en hrun af þessari stærðargráðu er ekki talið geta borist langt niður á láglendi og mun efnið líklega falla ofan á framhlaupsurðina sem myndaðist í júlí. 

Eins og áður hefur verið bent á er algengt að hreyfingar eða hrun eigi sér stað í sárum þar sem framhlaup eða stórar skriður hafa átt sér stað. Því er ástæða til að ítreka að fólk ætti ekki að vera í nánasta nágrenni við skriðuna.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica