Febrúar var kaldur, hægviðrasamur og illviðri óvenju fátíð miðað við árstíma. Austlægar áttir voru ríkjandi nær allan mánuðinn og það var þurrt í öllum landshlutum, nema á Austurlandi þar sem úrkoma var í kringum meðallag. Óvenjuþurrt og sólríkt var á sunnan- og vestanverðu landinu. Snjór var tiltölulega lítill á landinu öllu og snjólaust var nær allan mánuðinn á suðvesturhluta landsins. Tiltölulega einsleitt veðurlag breyttist í lok mánaðar með úrkomu og snjó suðvestanlands og rysjóttara veðri.
Lesa meiraSkýrslan A Nordic Perspective on AMOC
Tipping fer yfir stöðu þekkingar á mögulegum áhrifum hruns hafstraumakerfis
Atlantshafsins (AMOC) og setur fram ráðleggingar um aðgerðir í stefnumótun. Skýrslan var birt fimmtudaginn 5. febrúar kl. 10 á vef Norðurlandaráðs.
Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands, er einn höfunda skýrslunnar.