Staðan á Reykjanesskaga
Landris mælist áfram við Svartsengi
Uppfært 30. september 2026
- Hægt landris mælist áfram við Svartsengi
- Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
- Nýtt kvikuhlaup sem gæti endað með eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni er áfram líklegasta sviðsmyndin
- Tillit er tekið til sprunguviðgerða innan Grindavíkur í uppfærðu hættumati
Aflögunarmælingar sýna áfram landris á Svartsengissvæðinu. Á undanförnum þremur mánuðum hefur landris mælst um það bil fjórir sentimetrar og hefur verið nokkuð stöðugt á tímabilinu.
Landrisið bendir til þess að þrýstingur sé enn að byggjast upp á nokkurra kílómetra dýpi.
InSAR-myndin hér að ofan sýnir áframhaldandi landris við Svartsengi á tímabilinu 20. júlí til 13. september 2026. Með InSAR-aðferð eru bornar saman ratsjármyndir úr gervitunglum til að mæla aflögun lands. Svörtu útlínurnar afmarka hraun sem runnið hafa í fyrri eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni og við Fagradalsfjall.
Myndin er unnin úr gögnum frá TerraSAR-X-gervitunglinu. Þýska geimferðastofnunin (DLR) útvegaði gögnin í gegnum GEO-GSNL-samstarfið með stuðningi CEOS, alþjóðlegs samstarfsvettvangs um rannsóknir og vöktun á jörðinni með gervitunglum.
Skjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. Á síðustu tveimur vikum hafa aðeins fáir skjálftar mælst í kvikuganginum og flestir þeirra verið mjög smáir.
Einnig hefur verið lítil virkni annars staðar á Reykjanesskaga undanfarna daga og vikur.
Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss áfram líklegasta sviðsmyndin
Á meðan landris heldur áfram er líklegasta sviðsmyndin að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss.
Ekki er hægt að segja til um hvenær slíkur atburður gæti orðið. Eftir því sem lengra líður frá síðasta atburði eykst óvissa um tímasetningu næsta atburðar. Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og fyrir fyrri gos á Sundhnúksgígaröðinni.
Hættumat uppfært með tilliti til sprunguviðgerða í Grindavík
Nýtt hættumat tekur gildi 30. september. Hættuflokkar fyrir helstu svæði breytast ekki. Grindavík er áfram metin í töluverðri hættu og Svartsengi í nokkurri hættu.
Hættuvægi vegna jarðfalls ofan í sprungu innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með hliðsjón af þeim framkvæmdum þar sem fyllt hefur verið upp í sprungur í bænum. Breytingin lækkar reiknað heildarhættustig fyrir Grindavík úr 4,14 í 4,02. Hættuflokkurinn breytist þó ekki og heildarhættan er áfram metin töluverð (appelsínugult).
Hættumat Veðurstofunnar byggir á ýmsum gögnum sem stöðugt eru uppfærð. Í uppfærðu hættumati er stuðst við ný gögn um sprunguviðgerðir í Grindavík. Gögnin koma frá ÍSOR og verkfræðistofunni Eflu sem höfðu umsjón með framkvæmd sprunguviðgerðanna. Samkvæmt áhættumati ber Grindavíkurbær ábyrgð á sprunguviðgerðum. Sprunguviðgerðirnar minnka líkur á hættu vegna „jarðfalls ofan í sprungu“ innan bæjarmarkanna, en hafa engin áhrif á mat á hættu vegna mögulegra sprunguhreyfinga í næsta atburði.
Kortin hér fyrir neðan sýna hvernig hættuvægi vegna jarðfalls ofan í sprungu hefur breyst með tilliti til sprunguviðgerða í Grindavík.


Hættuvægi vegna jarðfalls ofan í sprungu í Grindavík fyrir uppfærslu hættumatsins (vinstra megin) og eftir að tekið hefur verið tillit til sprunguviðgerða (hægra megin).
Á síðunni um hættumatskort má skoða heildarhættumatskortið og kort sem sýna hættuvægi hvers hættuþáttanna sjö.
Kvikusöfnun getur staðið yfir í langan tíma
Engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. Eldstöðin Reykjanes-Svartsengi er áfram á viðvörunarstigi 2, „Töluvert aukin virkni“ (appelsínugult).
Til að hægt sé að fullyrða að eldgosahrinunni sé lokið þurfa mæligögn að sýna skýr merki um það yfir lengri tíma.
Viðvörunarstig eldstöðvakerfis (e. Volcano Alert Level System – VALS) er kerfi sem Veðurstofan styðst við til að miðla upplýsingum um virkni í eldstöðvakerfum á Íslandi.
Myndin hér fyrir neðan sýnir hvaða merki þurfa að koma fram svo hægt sé að lækka viðvörunarstigið. Þegar eldstöðin hefur verið færð niður á viðvörunarstig 0 er hægt að segja að eldgosahrinunni sé lokið.

Þótt kvikusöfnun stöðvist í einhverja mánuði getur hún hafist á ný undir Svartsengi. Goshrinur á Reykjanesskaga geta staðið yfir í áratugi eða aldir með hléum milli atburða. Langt hlé milli eldgosa er því ekki vísbending um að virkni sé lokið.
Uppfært 15. september 2026
Landris mælist áfram við Svartsengi
Hægt landris mælist áfram við Svartsengi
Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
Hættumat er óbreytt
Aflögunarmælingar sýna áfram landris á Svartsengissvæðinu. Á undanförnum þremur mánuðum hefur landris mælst um fimm sentimetrar.
Landrisið bendir til þrýstingur er enn að byggjast upp á nokkra km dýpi.
Á meðan landris heldur áfram er líklegasta sviðsmyndin áfram að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss.
Ekki er hægt að segja til um hvenær slíkur atburður gæti orðið. Eftir því sem lengra líður frá síðasta atburði eykst óvissa um tímasetningu næsta atburðar. Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og fyrir fyrri gos á Sundhnúksgígaröðinni.
Tímaraðir frá GPS-stöðinni SKSH sýna láréttar og lóðréttar færslur frá lokum júní til september 2026. Lóðrétta færslan sýnir að landris heldur áfram og bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar undir Svartsengi.
Skjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. Smávægileg aukning hefur þó orðið á litlum skjálftum undanfarið, meðal annars í kvikuganginum. Dýpi skjálftanna hefur lítið breyst.
Hættumat
Hættumat er óbreytt og gildir til 30. september.
Uppfært 18. ágúst 2026
Landris og kvikusöfnun heldur áfram
- Landris við Svartsengi mælist áfram hægt en stöðugt
- Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
- Hættumat er óbreytt
Landris og kvikusöfnun halda áfram við Svartsengi. Þróunin er áfram hæg en stöðug. Nýjustu líkanreikningar gefa til kynna að frá upphafi síðasta goss í júlí 2025 hafi um 29,1 milljón rúmmetra af kviku safnast undir Svartsengi. Óvissubilið er frá 28,3 til 29,9 milljónum rúmmetra.
Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur eykst í kerfinu er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina. Það gæti leitt til eldgoss. Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður. Fyrirvari fyrri eldgosa hefur verið frá um 20 mínútum upp í rúmar fjórar klukkustundir.
Líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi frá 17. júlí 2025 til 16. ágúst 2026 sé um 29,1 milljón rúmmetra. Óvissubilið er frá 28,3 til 29,9 milljónum rúmmetra. Matið byggir á GNSS-mælingum og InSAR-gögnum. Svörtu línurnar sýna 95% óvissubil.
Skjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil.
Hættumat
Hættumat er óbreytt og gildir til 30. september.
Uppfært 21. júlí 2026
Landris við Svartsengi mælist áfram hægt en stöðugt
Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
Hættumat óbreytt
Landris og kvikusöfnun heldur áfram við Svartsengi og mælist þróunin áfram hæg en stöðug. Nýjustu líkanreikningar gefa til kynna að kvikusöfnun undir Svartsengi frá upphafi síðasta goss, 16. júlí 2025, sé metin á 28,3 milljónir rúmmetra, með óvissubili frá 27,5 til 29,1 milljón rúmmetra. Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Gera þarf ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir.
Líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi séu á bilinu 27,5 - 29,1 milljónum rúmmetra. Matið byggir á GNSS-mælingum og InSAR-gögnum og sýna svörtu línurnar 95% óvissubil.
Skjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil.
Hættumat
Hættumat er óbreytt og gildir til 30. september.

Uppfært 30.júní 2026
- Landris við Svartsengi heldur áfram með stöðugum hraða
- Áframhaldandi hæg kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi áfram líklegasta sviðsmyndin
- Hættumat er óbreytt og gildistími hefur verið framlengdur til 30. september
Aflögun
Kvikusöfnun og landris heldur áfram við Svartsengi. Meðalhraði kvikusöfnunar undanfarnar vikur hefur haldist stöðugur.
Áframhaldandi hæg kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi áfram líklegasta sviðsmyndin.
Jarðskjálftavirkni
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og nærri Grindavík er einnig áfram frekar lítil og með svipuðu móti og áður. Engin marktæk breyting hefur orðið á jarðskjálftavirkni síðustu vikurnar.
Hættumat
Hættumat er óbreytt og gildistími hefur verið framlengdur til 30. september.









