Fréttir

Lægsti loftþrýstingur sem mælst hefur í október

Óveðrið 14. október olli tjóni þótt það teljist ekki meðal verstu októberillviðra á landsvísu.

15.10.2026

Óveður 14.október 2026

Lægðin var óvenju djúp. Loftþrýstingur féll hratt og fór lægst í 934,6 hPa á Fagurhólsmýri kl. 17. Það er lægsti loftþrýstingur sem mælst hefur í októbermánuði. Fyrra met var 938,4 hPa á Stórhöfða þ. 19. október 1963.

Loftþrýstingurinn fór einnig niður fyrir fyrra metið á fleiri stöðvum á sunnan- og austanverðu landinu: á Vatnsskarðshólum (935,0 hPa), Kirkjubæjarklaustri (935,6 hPa), Höfn í Hornafirði (935,8 hPa), Önundarhorni (937,7 hPa), Teigarhorni (937,9 hPa) og á Kambanesi (938,3 hPa).

Ein leið til að bera saman styrk og útbreiðslu illviðra er að skoða hlutfall veðurstöðva þar sem vindhraðinn fer yfir 20 m/s. Í óveðrinu fór vindhraði yfir þau mörk á tæplega 40% stöðva landsins. Á þann mælikvarða var veðrið ekki meðal verstu illviðra sem gengið hafa yfir landið í október.

Mesti vindhraði á landinu mældist 42,0 m/s á Stórhöfða. Mesta hviða mældist 56,9 m/s kl. 7:20 á stöð Vegagerðarinnar við Hvamm undir Eyjafjöllum.

Hvassviðrið olli miklum skemmdum á Siglufirði. Á veðurstöð Veðurstofunnar á Siglufirði mældist mesti vindhraði 20,9 m/s og hviður fóru mest í 40 m/s. Þar hefur bæði vindhraði og hviður mælst meiri í októbermánuði. Vindhviða hefur þó ekki mælst eins mikil á Siglufirði síðan í október 2009.

Talsverð úrkoma fylgdi óveðrinu, þá sérstaklega á Austfjörðum og Suðausturlandi þar sem úrkomuákefðin var einna mest. Úrkoma mældist hátt í 70 mm frá klukkan 8 um morguninn fram að hádegi í Neskaupstað og á Fáskrúðsfirði.

Sjávarflóða varð einna helst vart í Vík í Mýrdal þar sem flæddi að húsum og yfir vegi.

Með deginum kólnaði eins og spáð var og þá snjóaði til fjalla og einnig víða á láglendi norðanlands.


 [GP1]Bæta við tímasetningum kannski?

Viirs_isl_overview_20261014_1300--1-
Gervitunglamynd kl. 12:42 þann 14. október 2026. Skýjakerfi djúpu lægðarinnar myndar greinilegan spíral sunnan við Ísland og skýjabreiðan nær yfir stóran hluta landsins.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica