Nýjar fréttir

Norræn skýrsla um AMOC: Þörf á öflugri loftslagsaðgerðum, vöktun og viðbúnaði

Skýrslan A Nordic Perspective on AMOC Tipping fer yfir stöðu þekkingar á mögulegum áhrifum hruns hafstraumakerfis Atlantshafsins (AMOC) og setur fram ráðleggingar um aðgerðir í stefnumótun. Skýrslan var birt fimmtudaginn 5. febrúar kl. 10 á vef Norðurlandaráðs.

Lesa meira

Tíðarfar í janúar 2026

Tíðarfar í janúar var óvenjulega gott. Það var hægviðrasamt, bjart, óvenjuþurrt og snjór var með minnsta móti bæði á láglendi og til fjalla. Sérlega þurrt og snjólétt var á sunnan- og vestanverðu landinu og þar var mánuðurinn á meðal þurrustu janúarmánaða frá upphafi mælinga. Hitafar mánaðarins var tvískipt, fyrri hlutinn var kaldur en seinni hlutinn hlýr. Lesa meira

SeisComP verður nýtt aðalkerfi Veðurstofu Íslands fyrir jarðskjálftavöktun

Veðurstofa Íslands tók í dag SeisComP formlega í notkun sem aðalkerfi fyrir vöktun og greiningu jarðskjálfta. Með þessu lýkur áratugalangri notkun SIL-kerfisins, sem hefur verið hornsteinn jarðskjálftavöktunar á Íslandi frá upphafi stafrænna sjálfvirkra mælinga og jarðskjálftaúrvinnslu. Innleiðing SeisComP markar stórt skref í þróun jarðskjálftavöktunar stofnunarinnar. Undirbúningur hefur staðið yfir í nokkur ár og fela kerfisskiptin í sér bæði tæknilegar og verkferlalegar breytingar sem miða að aukinni greiningargetu, betri gagnamiðlun og nútímalegra vinnuumhverfi fyrir sérfræðinga.

Lesa meira

Magn kviku undir Svartsengi heldur áfram að aukast

Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðustu vikurnar. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú tæplega 21 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Magn kviku undir Svartsengi hefur mest orðið 22.6 milljónir rúmmetra.

Lesa meira

Málþing í Hofi: Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga

Fimmtudaginn 12. febrúar fer fram málþing í Hofi á Akureyri undir yfirskriftinni Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga – frá áskorunum til aðgerða. Á málþinginu verður meðal annars kynnt fyrsta útgáfa leiðarvísis fyrir sveitarfélög um aðlögun að loftslagsbreytingum og fjallað um verkfæri sem styðja við ákvarðanatöku og aðlögun.

Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica