Íslensk eldfjöll

Jarðhræringar við Bárðarbungu 2014 - septembermánuður

Hluti langrar upplýsingagreinar vistaður sérstaklega

Í þessari upplýsingagrein (pdf 2,30 Mb) eru birtar niðurstöður um jarðhræringarnar og eldsumbrotin við Bárðarbungu en einungis í septembermánuði 2014. Síðasti dagur septembermánaðar er efst en fyrsti dagur mánaðarins er neðst. Með öðrum áþekkum greinum veitir þetta heildaryfirlit um framvindu mála: ágúst, september, október, nóvember, desember, janúar, febrúar, mars-apríl-maí og samantektargrein.

Dagatal

Í dagatali er flýtileið á hvern dag septembermánaðar (fyrri viðburðir eru í annarri grein, sjá neðst):

Sept.:1-2-3-4-5-6-7-8-9-10-11-12-13-14-15-16-17-18-19-20-21-22-23-24-25-26-27-28-29-30

Víðáttamynd, tekin með gleiðlinsu í átt að eldstöðvunum 3.9.2014. Ljósmynd: Richard Yeo.

30. september 2014 18:50 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Frá miðnætti hafa rúmlega 40 skjálftar verið staðsettir við Bárðarbungu og rúmlega 30 í  ganginum. Það eru nokkuð fleiri skjálftar (einkum í ganginum) en höfðu mælst á sama tíma í gær enda vindur mun hægari á þessum slóðum í dag en í gær. Enginn skjálfti hefur náð fimm stigum það sem af er degi. Þrír voru fjögur stig eða stærri, allir við norðarverða öskju Bárðarbungu. Sá stærsti varð kl. 14:53 M4,7 en hinir kl. 03:06 M4,0 og kl. 07:57 M4,2. Stærsti skjálftinn í ganginum varð upp úr miðnætti, M2,4. Svipaður gangur virðist í gosinu samkvæmt vefmyndavélum og undanfarna daga.

Nú alls yfir 48 ferkílómetrar
""
Kort sem sýnir hraunjaðarinn 30.9.2014 og flatarmál hraunbreiðunnar. Hraunið hefur nú náð 48,2 ferkílómetrum samtals. Byggt á ratsjármynd en í bakgrunni er gervitunglamynd frá LMÍ. Stækkanlegt kort. Frá eldfjallafræði- og náttúrvárhópi Jarðvísindastofnunar.

30. september 2014 11:10 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu: Vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Sóttvarnalækni.  Meginefni fundar: Eldgosið í Holuhrauni, loftgæði og sviðsmyndir.

Frá vísindamannaráði:

Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS (pdf 0,4 Mb).

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

30. september 2014 07:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Frá miðnætti mældist stærsti skjálftinn kl. 03:06 og var hann M4 að stærð með upptök við norðurbrún Bárðarbunguöskjunnar.  Aðrir skjálftar voru minni en 3. Annar stærsti skjálftinn við norðanverðan bergganginn var 2,4 að stærð kl. 00:26. Frá miðnætti hafa mælst 7 skjálftar við Bárðarbunguöskjuna  og 12 skjálftar við norðanverðan bergganginn. Einnig hafa mælst skjálftar við Herðubreið og Öskju.
Samkvæmt vefmyndavél Mílu á Vaðöldu er eldgosið í Holuhrauni svipað og undanfarna daga.

29. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Engar teljandi breytingar sjást í skjálftavirkni á umbrotasvæðinu aðrar en þær að færri skjálftar hafa mælst í dag miðað við síðustu daga og er það að öllum líkindum vegna hvassviðrisins sem gengur yfir landið (minni skjálftar mælast síður). Frá miðnætti hafa 30 skjálftar hafa verið staðsettir við Bárðarbungu og 15 í ganginum.

Stærsti skjálftinn síðan á miðnætti mældist M 5,5 og varð hann við suðaustanverða öskju Bárðarbungu og er hann með stærri skjálftum sem mælst hafa við megineldstöðina frá upphafi jarðhræringanna um miðjan ágúst. Hingað til hafa fjórir aðrir skjálftar mælst af stærð um 5,5 og einn til viðbótar hefur mælst enn stærri (5,6). Nú munu skjálftar sem mælst hafa með stærð M 5,0 eða stærri vera orðnir 39 talsins. Þó skal hafa í huga að enn er verið að yfirfara stærðir stærstu skjálfta og gætu þessar tölur því breyst lítillega.

Skýjað en þó glufa
""
Á LANDSAT 8 gervitunglamynd NASA frá því í hádeginu í dag, 29.09.2014, koma gígarnir og hraunelfurin vel í ljós en frá 26. þessa mánaðar hefur tæplega 4 km langur taumur, um 2 ferkílómetrar að flatarmáli, bæst við hraunið samsíða fyrri farvegum. Hraunbreiðan í heild er því ekki undir 46 km2. Stækkanleg mynd. Jarðvísindastofnun.

29. september 2014 11:30 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu: Vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Sóttvarnalækni.  Meginefni fundar: Eldgosið í Holuhrauni, loftgæði og sviðsmyndir.

Frá vísindamannaráði:

Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS (pdf 0,4 Mb).

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

29. september 2014 06:58 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Stærsti skjálftinn í nótt í Bárðarbungu varð kl. 03:52 í norðanverðum öskjubarminum, M4,9 að stærð. Tveir aðrir voru yfir M3 að stærð, kl. 20:55 M4,2 og kl. 06:24 M4,0, báðir norðaustantil í öskjunni. Alls hafa 22 skjálftar mælst í Bárðarbungu frá miðnætti, þar af 14 við norðanverðan öskjubarminn og 8 sunnan til. Í ganginum hafa mælst 12 skjálftar frá miðnætti, hinn stærsti um M2.

28. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Engar stórar breytingar er að merkja á jarðskjálftavirkni í norðvestanverðum Vatnajökli aðrar en þær að síðustu daga hefur verið að draga hægt úr jarðskjálftavirkninni í ganginum norðanverðum. Langflestir skjálftarnir þar verða, sem áður, undir norðanverðum Dyngjujökli og hafa um 15 skjálftar verið staðsettir á þeim slóðum í dag. Af vefmyndavélum að dæma er gosvirkni enn mikil. Ekkert dregur hins vegar úr skjálftavirkni við sjálfa Bárðarbungu, á sjötta tug skjálfta hefur verið staðsettur þar í dag; stærsti skjálftinn M 5,2 kl.12:34 við norðanverða öskjubrúnina. Af vefmyndavélum að dæma er gosvirkni enn mikil.

Tvennskonar gosmekkir
""
Gossprungan séð úr norðvestri 28. september kl. 13:20. Afgösunin fer að mestu fram á tveimur stöðum á sprungunni, á nyrsta hluta hryggsins og á miðhluta hans. Þessar tvær uppsprettur verða að einum gosmekki. Undan vindi skiljast þung eldfjallagös úr mekkinum og síga undir hann. Enn lengra undan vindi rís vatnsríkur mökkur og nær meiri hæð heldur en sá fyrri. Ljósmynd: Morten S. Riishuus.

28. september 2014 11:00 - sameiginlegt yfirlit VÍ og JHÍ

Jarðskjálftar: Skjálftavirkni á umbrotasvæðinu er líkt og síðustu daga. Stærstu skjálftar síðasta sólarhringinn hafa orðið við norðanverða Bárðarbungu. Sjö þeirra voru yfir þrír að stærð, stærsti M 5,2 kl. 19:31 í gærkvöldi.

Gosvirkni: Gosvirkni virðist svipuð og síðustu daga.

Láréttar og lóðréttar færslur: Sigið í Bárðarbungu heldur áfram með svipuðum hraða og áður. GPS mælingar á öðrum stöðvum sýna mjög hægar breytingar.

Vatn: Engar sjáanlegar breytingar.

Spá um gasdreifingu:

Sunnudagur: Vestlæg átt. Búast má við gasmengun í austur frá gosstöðvunum, yfir sunnanverða Austfirði. Í kvöld nær mengunin norður á Hérað og yfir norðanverða Austfirði.

Mánudagur: Hvöss suðaustanátt. Búast má við gasmengun til norðurs og norðvesturs.

28. september 2014 07:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Skjálftavirkni í Bárðarbungu hefur verið með svipuðu sniði í nótt og undanfarna daga. Í gærkvöldi kl. 19:32 varð skjálfti M5,2 í norðanverðum öskjubarmi Bárðarbungu. Stærstu skjálftarnir í nótt voru í norðaustan-verðri öskjunni kl. 22:51 M3,5, kl. 02:04 M3,4 og kl. 04:44 M4,1. Alls hafa 16 skjálftar mælst í Bárðarbungu frá miðnætti, langflestir við norðanverðan öskjubarminn. Aðeins fimm skjálftar hafa mælst í ganginum undir Dyngjujökli, stærsti um M2. Samkvæmt vefmyndavélum virðist svipuð virkni vera í eldgosinu.

Útbreiðsla hraunsins
""
Yfirlitskort frá því í gær sem byggist á ratsjármynd og vettvangsathugunum. Flatarmálstölur eiga við um ratsjármyndina frá 26.9.2014. Litlar breytingar urðu á norðanverðum jaðrinum 27.9. (dökkrauð lína) en ekkert er hægt að fullyrða um suðurjaðarinn þann dag. Flatarmál allrar hraunbreiðunnar var þann 26.9. um 44,2 ferkílómetrar, þar af er stóra hraunið 43,8 en það syðra 0,37. Gosrásir eða gígar eru merkt inn á kortið sem rauðir þríhyrningar, vestast í hrauninu. Stækkanlegt kort. Jarðvísindastofnun.

27. september 2014 18:50 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjálftavirkni undir norðvestanverðum Vatnajökli er með svipuðu sniði og undanfarna daga. Rúmlega 50 skjálftar hafa verið staðsettir við Bárðarbungu í dag, heldur fleiri en á sama tíma í gær. Tveir skjálftar voru yfir þremur að stærð. Sá fyrri kl 02:00 M5,1 og sá síðari kl 08:11 M4,5; báðir við norðanverðan öskjubarminn. Um 20 skjálftar voru staðsettir í ganginum undir norðanverðum Dyngjujökli og er það svipaður fjöldi og á sama tíma í gær. Einn skjálfti náði tveimur stigum en aðrir voru minni. Sjá kort.

Mökkurinn dökkur að sjá
""
Gossprungan og mökkurinn 27.09.2014, séð úr austnorðaustri kl. 17:37. Ljósmynd: Morten S. Riishuus.

27. september 2014 11:00 - sameiginlegt yfirlit VÍ og JHÍ

Jarðskjálftavirkni: Jarðskjálftavirkni á umbrotasvæðinu er líkt og síðustu daga. Stærstu skjálftar síðasta sólarhringinn hafa orðið við norðanverða Bárðarbungu, sex þeirra voru yfir þrír að stærð, tveir stærstu M 5,2 síðdegis í gær og M 5,1 kl. tvö í nótt.

Gosvirkni: Slæmt skyggni er nú á gosstöðvum en gosvirkni virðist vera svipuð, það sést til makkarins á vefmyndavél nú í morgun. Síðustu athuganir á vettvangi í gær bentu til þess að hraun rynni til norðurs, mögulega austurs skv. hitamyndum en það hefur þó ekki fengið staðfest á vettvangi.

Lóðréttar og láréttar færslur: Sig í öskjunni heldur áfram með svipuðum hraða og áður. GPS mælingar á öðrum stöðvum sýna mjög hægar breytingar.

Vatn: Engar sjáanlegar breytingar.

Spá um gasdreifingu: Nú um helgina er búist við lægðagangi yfir landið með tilheyrandi breytingum í vindátt. Spáin verður þá flókin og getur verið erfitt að henda reiður á því hvar mengunin er og hvert hún stefnir. Það jákvæða er að sífelldir snúningar í vindátt ættu að þýða að gasið staldri ekki lengi við á hverjum stað.

Eftir helgi er síðan búist við að suðaustan- og sunnanátt verði ríkjandi og er útlit fyrir hvassan vind með köflum. Spáin fyrir helgina er svohljóðandi:

Laugardagur: Suðaustlæg eða breytileg átt. Búast má við gasmengun einkum vestur af eldstöðinni. Mengunarsvæðið nær u.þ.b. frá Húsavík að Blönduósi og frá hálendinu suður á Suðurland.

Sunnudagur: Vestlæg átt. Búast má við gasmengun í suðaustur og síðar austur frá gosstöðvunum.

27. september 2014 07:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Engar teljandi breytingar hafa orðið á skjálftavirkni í Bárðarbungu í nótt. Stærsti skjálftinn síðan á miðnætti varð í norðanverðri Bárðarungu um klukkan tvö í nótt og var hann að stærð M 5,0 og því nokkuð minni en skjálftinn sem varð þar seinni partinn í gær. Alls hafa mælst 17 skjálftar í Bárðarbungu í nótt, langflestir við norðanverðan öskjubarminn, en heldur færri í ganginum undir Dyngjujökli, átta talsins. Ekkert hefur sést til gossins á vefmyndavélum í nótt sökum veðurs, á svæðinu er snjómugga eða slydda. Skyggni versnaði áður en síðustu menn yfirgáfu svæðið í gærkvöld og þá var gosið enn í fullum gangi.

Stækkunin til norðurs og austurs
""
Kortið sýnir þá stækkun (rautt) sem metin var í gær (26/9) til norðurs og austurs. MODIS gervitunglamynd gefur vísbendingu um það að lítil hrauntunga hafi nú rutt sér rúm til austurs, rétt við gossprunguna, en það er óstaðfest. Mælingar á suðausturjaðri vantar enn. Jarðvísindastofnun.

26. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Um 40 skjálftar hafa verið staðsettir við Bárðarbungu í dag sem er svipaður fjöldi og á sama tíma í gær. Tveir skjálftar voru yfir þremur að stærð. Sá fyrri kl 03:42 M4,1 og sá síðari kl 16:49 M5,2, báðir við norðanverðan öskjubarminn. Rúmlega 20 skjálftar (heldur færri en á sama tíma í gær) hafa verið staðsettir í ganginum, flestir undir norðanverðum Dyngjujökli. Stærsti skjáfltinn varð kl 03:57 M2,4.

Hraunið yfir vegarslóðann
""
Samkvæmt upplýsingum af vettvangi er hraunið farið yfir veginn á kafla (dökkrauða línan), þar sem það breiðist út í norðurátt. Enn eru allmörg vafaatriði á kortinu því ekki hefur náðst að afla upplýsinga um hraunið að sunnan- og austanverðu. Stækkanlegt kort. Jarðvísindastofnun.
Lágur mökkur
""
26. september 2014, gossprungan og mökkurinn séð úr VNV kl. 17:33. Um þetta leyti náði mökkurinn um 2 km hæð yfir Dyngjusandi í 2-5 km fjarlægð undan vindi frá eldstöðinni. Þykktin var 1,0-1,5 km og hann lá frekar lágt. Engin lægri gulblá slikja aðskildist úr mekkinum innan 5‐10 km frá upprásinni eins og oft hefur áður sést. Stefna makkarins var í suðaustur. Um 10 km undan vindi frá gígunum var breidd hans um ~8 km. Ríkjandi vindátt við jörð var úr vestsuðvestri. Ljósmynd: Martin S. Riishuus.

26. september 2014 11:20 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu: Vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Sóttvarnalækni.  Meginefni fundar voru eldgosið í Holuhrauni, loftgæði og sviðsmyndir. Ákveðið hefur verið að næsti fundur ráðsins verði haldinn mánudaginn 29. september nema að ástæða þyki til að kalla ráðið saman fyrr.

Frá vísindamannaráði:

Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS (pdf 0,4 Mb).

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

26. september 2014 06:48 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Frá miðnætti hafa tíu skjálftar mælst við Bárðarbungu og um tíu í ganginum, undir norðanverðum Dyngjujökli. Þetta er svipaður fjöldi og í gærmorgun. Stærsti skjálftinn síðan á miðnætti varð klukkan 03:42 í nótt við norðanverða Bárðarbungu og var hann um 4 að stærð. Samkvæmt vefmyndavélum er gosvirkni enn í fullum gangi.

25. september 2014 23:10 - miðnæturmynd

Flæðir í tvær áttir
""
Mynd tekin kl. 23:10 hinn 25. september 2014. Tveir hraunflæðistraumar sýnilegir, sá til vinstri streymir í austur en sá til hægri í norðaustur. Ljósmynd: Morten S. Riishuus.

25. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Skjálftavirkni á Bárðarbungusvæðinu hefur verið svipuð í dag og undanfarna daga.  Staðsetning um 40 skjálfta hefur verið yfirfarin í nyrðri hluta kvikugangsins og um 35 í og við Bárðarbunguöskjuna. Þótt meirihluti skjálftanna í öskjunni séu í norðurbarminum, sýna skjálftar af stærð M>5 í suðurbarminum, t.d. kl. 05:00 í morgun, að orkuútlausn skjálfta á þeim hluta er enn umtalsverð. Ekki er hægt að fullyrða að skjálftavirkni á suðurbarminum sé að minnka þótt skjálftar séu þar fáir. Öflugasti skjálftinn í ganginum var M2,3 kl. 09:55. Sex skjálftar nálægt öskjubarminum voru yfir 3; þeir öflugustu voru M4,2 kl. 04:25 (norðurbarmurinn), M5,2 kl. 05:00 (suðausturbarmurinn), M4,4 kl. 05:16 (norðurbarmurinn) og M5,0 kl. 16:35 (norðurbarmurinn).

25. september 2014 11:20 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu: Vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Umhverfisstofnun og Sóttvarnalækni.  Meginefni fundar voru eldgosið í Holuhrauni, loftgæði og sviðsmyndir.

Frá vísindamannaráði:

Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS (pdf 0,4 Mb).

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

25. september 2014 07:07 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Frá miðnætti hafa 10 skjálftar mælst við Bárðarbungu í sjálfvirka kerfinu og sami fjöldi í ganginum undir norðanverðum Dyngjujökli - heldur færri en á sama tíma í gærmorgun. Klukkan 22:35 í gærkveldi varð skjálfti M4,9 við norðanverða öskju Bárðarbungu. Það sem af er þessum degi hafa þrír skjálftar yfir fjórum að stærð mælst við öskjuna:
Kl. 04:25 M4,2 og 05:16 M4,4 við norðanverða öskjuna.
Kl. 05:00 M5,2 við hana suðaustanverða.
Skjálftarnir undir Dyngjujökli voru um og innan við tvö stig. Gosið virðist svipað eins og undanfarna daga samkvæmt vefmyndavélum.

24. september 2014 19:10 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjálftavirkni í dag (til kl. 19:00) hefur verið svipuð og undanfarna daga. Um 35 skjálftar hafa verið yfirfarnir og staðsettir kringum öskjubrún Bárðarbungu og um 60 skjálftar í nyrðri hluta gangsins. Þeir sterkustu voru 5,2 kl. 08:14 á nyrðri brún og 4,0 kl. 18:41 á vestari brún öskjunnar. Átta skjálftar að auki hafa verið yfir 3 að stærð í dag. Sterkasti skjálftinn í ganginum var 2,1 kl. 16:35. Samkvæmt vísindamönnum á vettvangi og vefmyndavélum er eldgosavirknin stöðug.

24. september 2014 11:00 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Umhverfisstofnun. Meginefni fundar var eldgosið í Holuhrauni, loftgæði og sviðsmyndir.

Frá vísindamannaráði:

Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS (pdf 0,4 Mb).

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

Hraunið og áin
""
Hraunjaðarinn við Jökulsá á Fjöllum að morgni 24. september 2014. Tekið úr ferð með Mýflugi. Herðubreið í fjarska. Ljósmynd: Jara Fatíma Brynjólfsdóttir.

24. september 2014 07:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Frá miðnætti hafa mælst um 40 skjálftar í sjálfvirka kerfinu. Um 20 skjálftar urðu við Bárðarbunguöskjuna, þeir stærstu kl. 00:24 M3,3 og kl. 04:58 M3,4. Í norðanverðum Dyngjujökli (í ganginum) mældust um 15 skjálftar, allir innan við tvö stig. Þessi virkni er svipuð og  undanfarna daga. Samkvæmt vefmyndavélum er svipaður gangur í gosinu og verið hefur að undanförnu.

Ný hnit á nyrðri jaðri
""
Ný hnit á hraunjaðrinum norðanverðum voru send síðla kvölds 23. sept. (rauða línan). Ekki bárust upplýsingar um suðurjaðarinn. Inn á kortið er teiknuð lágmarksútbreiðsla til suðurs (gula línan) skv. LANDSAT 8 gervitunglamynd frá hádegi 22. september. Spurningamerki tákna óvissu um hve mikið hraunið hefur náð að breiða úr sér síðan þá. Stækkanlegt kort. Jarðvísindastofnun.

23. september 2014 19:30 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Engin breyting á jarðskjálftavirkni nú seinni part dags. Tíu skjálftar af stærð 3 og stærri hafa orðið síðan á miðnætti. Þrír þeirra (um og yfir 4 að stærð) urðu í nótt og fyrr í dag:
kl. 07:57 stærð 4,0
kl. 13:44 stærð 4,4
kl. 04:33 stærð 5,2 allir í norðanverðri Bárðarbungu.

Alls hafa ríflega 50 skjálftar verið yfirfarnir/staðsettir í Bárðarbungu, flestir við norðurjaðar, og ríflega 50 í ganginum (flestir undir Dyngjujökli). Í gær og fyrradag voru um 50 skjálftar yfirfarnir/staðsettir við Bárðarbungu á sólarhring en 76 þann 20. Það er því ekki hægt að segja að þeim hafi fjölgað í dag.

23. september 2014 - jarðskjálftakort hvers dags NÝTT

Sérhæfð jarðskjálftakort fyrir norðvestanverðan Vatnajökul hafa fengið verðskuldaða athygli. Nú hefur nýrri virkni verið bætt við: Hægt er að skoða jarðskjálftakort hvers dags og þar að auki keyra dagskortin í tímaröð, sem gefur yfirsýn yfir atburðarásina.

""
Dæmi af vefsíðu um jarðskjálfta í Bárðarbungu.

23. september 2014 11:45 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Umhverfisstofnun. Meginefni fundar var eldgosið í Holuhrauni, loftgæði og sviðsmyndir. Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS (pdf 0,4 Mb).

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

23. september 2014 06:45 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjálftavirkni við Bárðarbungu frá miðnætti er svipuð og undanfarna daga. Um 20 skjálftar urðu við brúnir öskjunnar, þeir stærstu, M5.2 kl. 04:33, M3.9 kl. 01:51 og M3.6 kl. 01:54, mældust  í norðausturbrúninni.  Um 15 jarðskjálftar  mældust í bergganginum. Allir voru þeir minni en 2. Samkvæmt vefmyndavélum virðist eldgosið í Holuhrauni svipað og að undanförnu.

22. september 2014 19:40 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Um 60 jarðskjálftar stærri en 1 hafa mælst frá miðnætti. Við Bárðarbungu hafa mælst 24 skjálftar. Stærstur þeirra varð klukkan 9:50 í morgun við suðausturenda öskjunnar, 4,8 að stærð. Næststærsti skjálftinn varð klukkan 13:36 við norðurenda öskjunnar; hann var 4,7 að stærð. Að auki hafa orðið sex skjálftar á bilinu 3,3-3,8 í öskjunni í dag. Smáskjálftavirkni er enn talsverð undir norðurenda Dyngjujökuls auk þess sem einhverra smáskjálfta verður enn vart í grennd við Öskju og Herðubreið.

Ein hraunelfur eða tvær hraunelfar
""
Við greiningu á gervitunglamyndum sem náðust af Holuhrauni í hádeginu í dag, 22. september 2014, komu fram vísbendingar um að hraunáin greinist nú í tvennt, annars vegar til norðurs og hins vegar til austurs. Jarðvísindastofnun. Landsat 8, NASA & USGS.

22. september 2014 11:30 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Umhverfisstofnun. Meginefni fundar var eldgosið í Holuhrauni, loftgæði og sviðsmyndir. Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS (pdf 0,4 Mb).

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

22. september 2014 06:55 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Frá kl. 19 í gær og fram til miðnættis mældust 25 jarðskjálftar. Þar af voru 8 við Bárðarbungu, 13 við norðurenda gangsins og 2 við Herðubreið. Stærstu skjálftarnir voru milli 3 og 4 að stærð og áttu þeir upptök í Bárðarbungu. Einnig mældust skjálftar við Geirfugladrang á Reykjaneshrygg, við Gjögurtá og í vestanverðum Mýrdalsjökli. Frá miðnætti hafa um 10 jarðskjálftar mælst við Bárðarbungu og um 10 jarðskjálftar við norðurenda gangsins, allir minni en 2,0.

Stærstu skjálftarnir við Bárðarbungu frá kl. 19:00 21. sept. til kl. 06:00 22. sept.:
kl. 19:51 M3,5
kl. 20:07 M3,7
kl. 23:08 M3,5
kl. 00:19 M3,6
kl. 03:13 M3,7
kl. 05:28 M3,5
Ekki er að sjá neinar breytingar á gosinu í Holuhrauni á vefmyndavélum.

21 september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Um 85 jarðskjálftar hafa mælst frá miðnætti. Við Bárðarbungu mældust 36 skjálftar. Sá stærsti var 5,5 að stærð kl. 10:51 við suðausturbrún öskjunnar og sýndi GPS mælirinn í öskjunni um 20 cm sig þegar skjálftinn varð. Annar stærsti skjálftinn var 4,8 að stærð kl. 00:57 með upptök við norðurbrún öskjunnar. Tveir aðrir skjálftar milli 4 og 5 að stærð mældust þar einnig. Í allt hafa mælst 7 skjálftar yfir 3 að stærð við öskjuna. Um 24 skjálftar hafa mælst við norðurenda gangsins, allir minni en 2,2 stig. Um 18 skjálftar voru við Herðubreið og Töglin, allir minni en 1,5 að stærð.

21 september 2014 11:40 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Umhverfisstofnun. Meginefni fundar var eldgosið í Holuhrauni, loftgæði og sviðsmyndir. Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS  (pdf 0,4 Mb).

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

21 september 2014 07:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Frá kl. 19 í gærkvöldi og fram að miðnætti mældust um 30 jarðskjálftar. Þar af voru 10 við Bárðarbungu og einnig 10 við norðurenda gangsins. Um 5 skjálftar urðu við Herðubreið og Töglin. Stærsti skjálftinn var með upptök við Bárðarbungu kl. 22:46 3,9 að stærð og 5 aðrir á sömu slóðum voru yfir 3 að stærð.

Sjálfvirkt staðsettir skjálftar frá miðnætti og til morguns eru um 30, flestir á svæðinu kringum norðvestanverðan Vatnajökul. Fjórir stærstu skjálftarnir voru allir í nyrðri hluta Bárðarbunguöskjunnar:
kl 00:57 4,8 að stærð
kl 02:21 3,8 að stærð
kl 03:05 3,7 að stærð
kl 03:30 3,4 að stærð
Ekki er að sjá neinar breytingar á gosinu í Holuhrauni á vefmyndavélum.

20. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Frá miðnætti hafa um 65 jarðskjálftar mælst í Bárðarbunguöskjunni og svipaður fjöldi við norðanverðan kvikuganginn. Stærstu skjálftarnir voru við norðanverða Bárðarbunguöskjuna kl. 01:10 5,1 að stærð og kl. 17:11 5,0 að stærð. Tveir skjálftar 4,0 og 4,4 að stærð voru við sunnanverða öskjuna kl. 17:04 og 17:05 og sjö aðrir skjálftar yfir 3 að stærð mældust við öskjuna. Um 15 skjálftar voru við Herðubreið og/eða Herðubreiðartögl, allir minni en 2. Einnig mældust skjálftar við Tungnafellsjökul.

Aukning til suðurs og austurs
""
Eldgos í Holuhrauni, útbreiðsla nýs hrauns samkvæmt flugi í dag. Aukning til suðurs og austurs metin. Jarðvísindastofnun, stækkanlegt. Einnig kom Bárðarbunga vel fram á gervihnattarmynd NASA & USGS.

20. september 2014 - hæðarbreytingar á uppfærðu línuriti

""

Veðurstofan hefur nú opnað vefsíðu þar sem fylgjast má með hæðarbreytingu á jökulyfirborði Bárðarbungu. Lóðrétt færsla er (m) fengin með rauntímaúrvinnslu úr GPS tæki staðsettu í miðri öskjunni. Mælingarnar eru samvinnuverkefni Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands, Almannavarnadeildar RLS og Landhelgisgæslunnar. Gögnin eru sýnd í almannavarnaskyni og til upplýsingar (sjá fyrirvara).

Það er einstakt, að öllum skuli gert kleift að fylgjast með þessum breytingum jafnóðum. Flýtileiðin í haus vefsins er á miðjum náttúruvárborðanum og heitir "Sig öskjunnar".

20. september 2014 12:30 - fólk láti vita af brennisteinsmengun

Veðurfræðingur segir það mistur, sem nú liggur yfir höfuðborgarsvæðinu, mega rekja til eldgossins. Veðurstofan hvetur fólk til aðgátar og til þess að tilkynna um óþægindi af völdum þessa.

20. september 2014 11:30 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu Vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Umhverfisstofnun og Sóttvarnalækni. Meginefni fundar var eldgosið í Holuhrauni, loftgæði og sviðsmyndir. Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS  (pdf 0,4 Mb).

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

20. september 2014 06:50

Um 30 jarðskjálftar hafa mælst í sjálfvirka kerfinu á norðvestanverðum Vatnajökli síðan á miðnætti. Um 10 voru á nyrðri brún Bárðarbunguöskjunnar og 15 á nyrðri enda gangsins. Sá sterkasti var 5,1 á norðausturbrúninni kl. 01:10. Allir skjálftar í ganginum voru undir 2 að stærð. Minniháttar virkni var við Tungnafellsjökul, Öskju og Herðubreið/Herðubreiðartögl. Eldgosið í Holuhrauni virðist svipað og undanfarna daga (samkvæmt vefmyndavélum nú í morgun og síðustu skýrslu af vettvangi í gærkvöldi). Í heild má segja að engar augljósar breytingar hafi orðið, hvorki í gos- né jarðskjálftavirkni.

19. september 2014 18:50 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Rúmlega 120 jarðskjálftar hafa mælst frá miðnætti. Í Bárðarbungu hafa yfir 20 skjálftar orðið, sex yfir þrír að stærð. Stærstu voru 4,7 kl. 06:45 í morgun og 4,3 kl. 14:48. Báðir voru við norðaustur brún Bárðarbunguöskjunnar. Yfir 70 skjálftar hafa mælst við norðanverðan ganginn í dag, allir innan við tvö stig að stærð. Fáir jarðskjálftar hafa mælst við Herðubreið og Herðubreiðartögl og enginn við Öskju.

Gas til himins
""
Gasmökkur upp af eldstöðinni í Holuhrauni 19. september 2014 kl. 20:05. Ljósmynd: Gro B.M: Pedersen.

19. september 2014 11:50 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu Vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Umhverfisstofnun og Sóttvarnalækni. Meginefni fundar var eldgosið í Holuhrauni, loftgæði og sviðsmyndir. Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS  (pdf 0,4 Mb).

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

19. september 2014 07:23 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Frá kl. 19 í gærkvöldi hafa mælst rúmlega tíu jarðskjálftar við Bárðarbunguöskjuna, þar af um þrír frá miðnætti til kl. 06:00 sem er töluvert  minna en daginn áður. Skjálfti, 4,5 að stærð, varð kl. 21:43 og tveir aðrir skjálftar yfir 3 að stærð mældust kl. 23:44 og kl. 01:57. Kl. 06:44 í morgun mældist svo skjálfti að stærð 4,7 með upptök við norðausturbrún Bárðarbunguöskjunnar. Við norðanverðan ganginn hafa mælst um 35 jarðskjálftar frá miðnætti og er það svipað og daginn áður en eingöngu tveir skjálftar hafa mælst við Herðubreið/Herðubreiðartögl.

18. september 2014 18:50 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Hátt í 150 jarðskjálftar hafa mælst frá miðnætti. Upptök um 45 þeirra voru í Bárðarbungu, stærsti 5,3 í norðanverðri öskjunni kl. 14:22. GPS mælirinn á Bárðarbungu sýndi um 15 - 20 cm fall þegar skjálftinn varð. Tveir skjálftar mældust milli 4 og 5 að stærð og fjórir milli 3 og 4 stig. Yfir 50 skjálftar mældust norðantil í ganginum, þ.e. undir Dyngjujökli og við gosstöðvar, allir innan við tvö stig að stærð. Um 30 skjálftar mældust við Herðubreið og Herðubreiðartögl, allir minni en tvö stig.

18. september 2014 - bráðabirgðatölur um gasútstreymi

Bráðabirgðatölur um gasútstreymi (gas emission rates) hafa nú verið birtar á enska vefnum.

18. september 2014 11:30 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu: Vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Umhverfisstofnun og Sóttvarnalækni.

Meginefni fundar: eldgosið í Holuhrauni, loftgæði, leiðbeiningar og sviðsmyndir

Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS  (pdf 0,4 Mb)

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

18. september 2014 06:55 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Stærstu skjálftarnir sem mældust í gærkvöldi við Bárðarbunguöskjuna voru kl. 22:28 3,2 að stærð, kl. 22:52 4,1 og kl. 23:35 3,5. Í nótt og morgun voru stærstu skjálftarnir við norðausturbrún Bárðarbunguöskjunnar kl. 03:17 4,5 að stærð og kl. 06:05 3,4 að stærð. Frá miðnætti hafa, skv. sjálfvirkum staðsetningum, mælst 13 skjálftar við Bárðarbunguöskjuna, um 27 í norðanverðum ganginum og um 20 við Herðubreið og Herðubreiðartögl. Þeir voru allir undir 2 að stærð, að undanskildum fyrrgreindum skjálftum við Bárðarbungu.

Vinnuheiti
""
Eldstöðvar í Holuhrauni, mynd tekin 18. september 2014 kl. 09:30. Inn á hana eru settar þær nafngiftir sem fólkið í felti hefur komið sér upp til þess að auðvelda umræður og dagleg skýrsluskrif. Ljósmynd: Ármann Höskuldsson.

17. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Um 115 jarðskjálftar hafa verið staðsettir í sjálfvirka kerfinu frá miðnætti. Rúmlega 20 við Bárðarbungu og hátt í 40 í ganginum, einkum norðantil og undir Dyngjujökli. Stærsti skjálftinn varð kl. 18:09 við suðaustanverða Bárðarbunguöskjuna. Hann var 5,2 að stærð. Sig í Bárðarbunguöskjunni er um 25 cm frá miðnætti og ekkert stökk varð við stóra skjálftann. Aðrir skjálftar eru um og innan við tvö stig.

17. september 2014 - mælingar á sigi yfir Bárðarbungu

Í morgun mældi Jarðvísindastofnun jökulyfirborð Bárðarbungu og setti á mismunakort; mesta dýpi var 24,5 m. Í meginatriðum virðist sigið vera aðeins hægara síðustu vikuna en það var 5.-8. sept. Færa má rök fyrir því að rúmmálsbreytingin sé svipuð og framleiðsla gossins í Holuhrauni.

17. september 2014 11:20 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu: Vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Umhverfisstofnun og Sóttvarnalækni.

Meginefni fundar: eldgosið í Holuhrauni, loftgæði, leiðbeiningar og sviðsmyndir

Fundargerð Vísindamannaráðs Almannavarna RLS (pdf 0,4 Mb)

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

17. september 2014 - skráning almennings á gasmengun

Veðurstofan hefur nú hannað sérstakt skráningarform svo fólk geti látið vita ef brennisteinsmengunar verður vart. Hver ný skráning birtist jafnóðum á korti þar sem upplýsingarnar safnast saman en þær geta orðið mikilvæg heimild um dreifingu gass frá eldstöðvunum í Holuhrauni. Flýtileið á þetta efni er að finna í náttúruvárborðanum Bárðarbunga í haus vefsins sem birtist á öllum vefsíðum vedur.is. Heiti þessarar flýtileiðar er "Skrá mengun".

17. september 2014 06:50 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Tveir stærstu skjálftarnir sem mældust í Bárðarbungu frá því í gærdag urðu í gærkvöldi. Sá fyrri varð kl. 20:20 af stærðinni 4,8 og hinn seinni kl. 21:34, 5,4 að stærð. Frá miðnætti hafa 40 skjálftar mælst: fimm í Bárðarbungu, um 15 í norðanverðum ganginum og  um 20 við Herðubreið og Herðubreiðartögl, allir innan við tvö stig að stærð.

16. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Tæplega 100 skjálftar hafa verið sjálfvirkt staðsettir frá miðnætti. Rúmlega 20 við Bárðarbungu og yfir 30 í ganginum undir Dyngjujökli og við eldstöðvarnar. Skjálftar við norðanverðan öskjurima Bárðarbungu í dag voru kl. 09:13 M3,4 og kl. 10:36 M4,8 og kl. 16:13 M3,7. Við suðvestanverðan öskjurimann varð skjálfti kl. 14:47 M5,2 að stærð. Engar meiriháttar breytingar (sig) urðu við þann skjálfta. Stefnubreyting hefur orðið á sumum GPS stöðvunum frá því í gær. Það verður skoðað betur.

Í ljósaskiptunum
""
Gosstöðvarnar í ljósaskiptunum um kl. 18:40 í dag, 16. september. Ljósmynd: Freysteinn Sigmundsson.

16. september 2014 11:30 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundinn sátu: Vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Umhverfisstofnun og Sóttvarnalækni.

Meginefni fundar: eldgosið í Holuhrauni, loftgæði, sviðsmyndir

Fundargerð vísindamannaráðs Almannavarna RLS (pdf 0,4 Mb)

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

16. september 2014 - um fjölda jarðskjálfta síðan hræringar hófust

Fjöldi jarðskjálfta fyrsta mánuðinn (frá16.09.2014 kl. 00:00 til 15.09.2014 kl. 22:20):

  alls bergg. Bárðarb. Kistufell Askja HB / HBT TFJ Kverkfj.
Sjálfvirkt ~ 25.000 - - - - - - -
Yfirfarnir ~ 5.900 ~ 4.100 ~ 760 ~ 120 ~ 250 ~ 680 ~ 70 ~10
M3.0-3.9 186 99 74 6 2 3 1 1
M4.0-4.9 43 7 34 1 1 0 0 0
M>5.0 23 0 23 0 0 0 0 0
  • Bergg.: Allur berggangurinn
  • HB / HBT: Herðubreið og Herðubreiðartögl
  • TFJ: Tungnafellsjökull
  • Kverkfj.: Kverkfjöll
  • Kistufell: Þyrping norðan Bárðarbungu – virkni fyrstu dagana
  • Sjálfvirkt: Sjálfvirkt staðsettir skjálftar á öllu landinu. Skjálftar utan Vatnajökuls eru tiltölulega fáir og auk þess mælast hæringar af öðrum toga. Að lágmarki má áætla um 20.000 skjálfta á svæðinu.
  • Yfirfarnir: Handvirkt yfirfarnir skjálftar.

Þegar engir sérstakir aburðir verða er árlegur fjöldi jarðskjálfta á landinu 10 - 15 þúsund.

16. september 2014 06:45 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Um 50 jarðskjálftar hafa mælst frá miðnætti. Stærstu skjálftarnir voru tæplega þrjú stig með upptök í Bárðarbungu. Ellefu skjálftar hafa mælst þar og tæplega 20 í ganginum undir Dyngjujökli og við eldstöðvarnar.

15. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjálftavirkni er áþekk og undanfarna daga. Um 120 skjálftar hafa mælst síðan á miðnætti, langflestir í nyrðri hluta kvikuinnskotsins. Nokkrir skjálftar urðu í eldri hluta innskotsins, þ.e. aðeins suðvestan við þann stað þar sem gangurinn tók norðlægari stefnu þann 23. ágúst. Allir skjálftar í innskotinu hafa verið undir tveimur að stærð.

Stöku skjálftar urðu í öskjubrún Bárðarbungu, enginn þeirra yfir 2 eftir M5,4 um áttaleytið í morgun. Smáskjálftavirkni nærri Dreka (austur af Öskju) heldur áfram en ekki ört, sama má segja um Herðubreið.

15. september 2014 11:30 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Fundinn sat einnig fulltrúi Umhverfisstofnunar og sóttvarnarlæknis.

Niðurstöður fundar vísindamannaráðs er að finna í meðfylgjandi pdf-skjali (pdf 0,2 Mb).

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

15. september 2014 06:55 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjáfltavirkni virðist svipuð og síðustu nætur. Á umbrotasvæðinu mældust 23 skjálftar milli kl. 00:00 og 06:00, þar af níu í Bárðarbungu. (Þetta eru um helmingi færri skjáfltar en síðustu nótt en svipað og þarsíðustu nótt.)
Tveir stærstu skjálftarnir urðu upp úr miðnætti, M3,6 kl. 00:11 og M3,7 kl. 00:14, við suðurjaðar Bárðarbungu. Skjálfti af svipaðri stærð, M3,8, varð svo aftur kl. 02:27. Hrina við Herðubreiðartögl og Herðubreið er enn í gangi: 9 skjálftar mælust þar í nótt og fimm skjálftar við Dreka í Dyngjufjöllum.

14. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjálftar hafa orðið álíka ört og undanfarna daga, um 140 skjálftar hafa mælst síðan á miðnætti (til 18:50). Flestir eiga sér stað nyrst í kvikuinnskotinu, frá eldstöðvunum og um 6 km inn undir Dyngjujökul. Þessir jarðskjálftar í innskotinu voru nær aldrei yfir 2 að stærð. Enn er þó nokkuð af jarðskjálftum á brúnum Bárðarbunguöskjunnar; einn af stærð um 5 kl. 14:06 á nyrðri brún og aðrir fimm af stærðinni 3-4. Lítil runa skjálfta varð um kl. 17:00 nærri Dreka (austur af Öskju) en þeir voru allir undir 1,5 að stærð.

Jafnt og þétt sig kemur fram á GPS mælinum í Bárðarbunguöskjunni, gróft áætlað um 50-60 cm síðan á miðnætti. Snöggt sig um 10-15 cm tengist hugsanlega jarðskjálftanum frá kl. 14:06.

14. september 2014 11:30 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Fundinn sat einnig fulltrúi Umhverfisstofnunar.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Staða og horfur um eldgosið í Holuhrauni og áframhaldandi sig í Bárðarbungu eru svipaðar. Hægt hefur á framrás hraunsins.  Það breiðir meira úr sér og minni sýnileg virkni er í gosgígunum.
  • Sig í Bárðarbungu heldur áfram og er nú mest um 23 m.
  • Í flugi vísindamanna yfir svæðið kom í ljós að nýjar hrauntungur eru að brjótast út þvert á aðalhraunfarveginn til austurs og vesturs. Stærsta hrauntungan teygist til austurs og var orðin 300 m breið og  2 km löng kl 18:00 í gær. Gosský nær  í 4 km hæð en lækkar þegar fjær dregur.
  • Skjálftavirkni er svipuð og hefur verið síðustu daga, en skjálftar eru heldur færri og minni. Rúmlega 60 jarðskjálftar hafa mælst frá miðnætti. Flestir við Bárðarbungu og ganginn undir Dyngjujökli. Stærsti skjálftinn, 4,0 að stærð, varð laust fyrir kl. 7 við suðurbarm öskjunnar. Þrír aðrir skjálftar, rúmlega 3 að stærð, urðu við öskjubarminn í nótt.
  • GPS mælingar sýna áframhaldandi sig í Bárðarbungu og óverulegar jarðskorpuhreyfingar norðan Vatnajökuls umhverfis ganginn.
  •  Loftgæði í byggð:
    • Í gær mældist töluverð gasmengun á Egilsstöðum og í Reyðarfirði en spár gera ráð fyrir því að gasmökkinn leggi til norðurs næsta sólarhring. Gera má ráð fyrir háum styrk í Mývatnssveit, Kelduhverfi, á Tjörnesi, Húsavík, í Aðaldal og Reykjahverfi.
  • Leiðbeiningar:
    • Ef fólk finnur fyrir óþægindum er mælt með að halda sig innandyra, loka gluggum, auka kyndingu og slökkva á loftræstingu. Gott er að lofta vel út þegar loftgæði eru góð. Tafla um viðbrögð við loftmengun hefur verið birt á vef Umhverfisstofnunar www.ust.is. Hægt er að fylgjast með mælingum á loftgæðum á síðunni loftgæði.is. Veðurstofan birtir textaspár á vef sínum og viðvaranir eftir því sem aðstæður breytast.
    • Tilmæli og leiðbeiningar frá sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun má finna á heimasíðum stofnananna.
    • Veðurfræðingar Veðurstofu munu koma fréttum af brennisteinsgasi á framfæri í heðfbundnum veðurfréttatímum á RUV.
    • Umhverfisstofnun kannar möguleika á því að fá fleiri mæla til landsins svo betur megi fylgjast með gosmengn frá eldgosinu.
    • Hægt er að senda inn fyrirspurnir og upplýsingar til Umhverfisstofnunar vegna loftmengunnar  á netfangið gos@ust.is. Umhverfisstofnun óskar sérstaklega eftir upplýsingum frá fólki sem hefur lent í háum styrk; hvar það var statt, tímasetningu, lýsingum á gasmekki, eins og lit og skyggni og lýsingum á áhrifum (sviði í augum o.s.frv.). Fljótlega verður virkjuð upplýsingasíða á vef Veðurstofunnar fyrir þannig upplýsingagjöf.
  • Loftgæði á gosstað:
    • Mikið gasstreymi er áfram í eldstöðinni og kringum hana. Bráð lífshætta stafar af gasinu og ekki er óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Við gosstöðvarnar má búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem gera aðstæður þar mjög hættulegar. Vísindamenn á vettvangi hafa gasmæla til þess að tryggja öryggi sitt við störf.  
  •  Þrír möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:
    • Öskjusig í Bárðarbungu hættir áður en það verður mikið og gosið í Holuhrauni fjarar út.
    • Stórt öskjusig í Bárðarbungu. Gos í Holuhrauni verður langvinnt eða vex. Mögulegt að sprungan lengist til suðurs inn undir Dyngjujökul og valdi jökulhlaupum og gjóskufalli. Einnig er mögulegt að sprungur opnist annars staðar undir jöklinum.
    • Stórt öskjusig í Bárðarbungu og gos í öskjubroti. Slíkt gos gæti brætt mikinn ís og valdið verulegu jökulhlaupi. Öskufall gæti orðið nokkuð.

Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

  • Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og kóði fyrir Öskju er grænn.

Upplýsingablaðið frá fundinum (pdf 0,3 Mb)

14. september 2014 07:10 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Um 40 jarðskjálftar mældust á umbrotasvæðinu í nótt. Jarðskjálftar mældust á svipuðum slóðum og síðustu daga, í Bárðarbungu, í ganginum (aðallega undir Dyngjujökulssporðinum) og nokkrir við Herðubreiðartögl og Herðubreið. Stærstu skjálftarnir voru 3,4 að stærð kl. 01:47 og 4,0 kl. 06:54 við suður- og suðausturjaðar Bárðarbungu, sjá kort. Eftir því sem best verður séð á vefmyndavélum í nótt (og fram til 06:10 í morgun) er virkni á gosstöðvunum svipuð og í gær, virkni í miðgígnum (Baug). Íshellan í Bárðarbungu virðist hafa sigið um 20 cm frá miðnætti.

13. september 2014 21:10

Samkvæmt nýju yfirlitskorti frá Jarðvísindastofnun Háskólans hefur hraunið lítið lengst í dag og framrás þess verið hægari en undanfarna daga samkvæmt athugunum á vettvangi.

13. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Fremur rólegt í skjálftavirkninni, 85 skjálftar staðsettir. Flestir, 38 talsins, í grennd við norðurenda gangsins en 22 í Bárðarbungu, 19 kringum Herðubreið og Herðubreiðartögl og 6 annars staðar á landinu. Stærsti skjálfti dagsins var klukkan 7:58 í morgun í norðurhluta Bárðarbungu og var hann 4,9 að stærð; honum fylgdi um 25 cm sig í öskjunni samkvæmt nýuppsettum GPS mæli þar. Tveir skjálftar nálægt 3,5 að stærð urðu síðdegis, báðir í Bárðarbungu. Aðrir skjálftar hafa verið minni. Samkvæmt upplýsingum frá vísindamönnum á gosstöðvum hefur dregið úr virkni þar og aðeins sá gígur, sem kallaður hefur verið Baugur, er virkur.

Látlaust
""
Eldstöðvarnar í Holuhrauni 13. september 2014. Ljósmynd: Martin Hensch.

13. september 2014 12:50 - spá um dreifingu gass

Veðurstofan vekur athygli á því að nú er gerð spá um dreifingu brennisteinsgass. Spána er að finna á flipanum Veður, undir Textaspár.

13. september 2014 11:35 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Fundinn sat jafnframt fulltrúi Umhverfisstofnunar.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Staða og horfur um eldgosið í Holuhrauni og áframhaldandi sig í Bárðarbungu eru óbreyttar.
  • Sig Bárðarbungu heldur áfram og jarðskjálftavirkni er með líkum hætti og verið hefur síðustu daga. GPS mælir á Bárðarbungu sýnir um hálfs metra sig síðasta sólarhringinn. 
  • Gangur eldgossins í Holuhrauni er svipaður og verið hefur síðustu daga. Hraun rennur áfram í farveg Jökulsár á Fjöllum.
  • Flatarmál hraunsins mældist 24,5 ferkílómetrar síðdegis í gær.
  • Uppsafnað rúmmál hraunsins er nú áætlað að minnsta kosti 200 milljón rúmmetrar.
  • Gasský leggur frá gosstöðvunum til austurs. Mjög hár styrkur brennisteins (SO2) mældist á Reyðarfirði um kl 10:00 í gærkvöldi. Hæstu gildin voru tæplega 4000 míkrógrömm á rúmmetra sem hæstu gildi sem mælst hafa hér á landi. Hár toppur mældist einnig á Egisstöðum í gær uppá 685 míkrógrömm á rúmmetra.
  • Viðvörun var send út með SMS skilaboðum í alla gsm síma í Fjarðarbyggð.
  • Loftgæði í byggð:
    • Spár gefa til kynna að hár styrkur brennisteinsgass (SO2) og annarra gosefna gæti orðið á  norðanverðum Austfjörðum, Fljótsdal, Héraði, Jökuldal og á Langanesi. Spáin gefur til kynna að styrkur gæti aukist á norðausturlandi er líða fer á daginn. Svæði með háum styrk gæti orðið stærra. Umhverfisstofnun stefnir að því að setja upp mælitæki á Akureyri og Suðurlandi. Taka verður tillit til landfræðilegra aðstæðna á hverjum stað við mat loftgæða.
  • Leiðbeiningar:
    • Ef fólk finnur fyrir óþægindum er mælt með að halda sig innandyra, loka gluggum, auka kyndingu og slökkva á loftræstingu. Gott er að lofta vel út þegar loftgæði eru góð. Tafla um viðbrögð við loftmengun hefur verið birt á vef Umhverfisstofnunar. Hægt er að fylgjast með mælingum á loftgæðum á síðunni loftgæði.is. Veðurstofan birtir textaspár á vef sínum og viðvaranir eftir því sem aðstæður breytast.
    • Tilmæli og leiðbeiningar frá sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun má finna á heimasíðum stofnananna.
    • Veðurfræðingar Veðurstofu munu koma fréttum af brennisteinsgasi á framfæri í heðfbundnum veðurfréttatímum á RUV.
    • Umhverfisstofnun kannar möguleika á því að fá fleiri mæla til landsins svo betur megi fylgjast með gosmengn frá eldgosinu.
    • Hægt er að senda inn fyrirspurnir til Umhverfisstofnunar vegna loftmengunnar á gos@ust.is.
  • Loftgæði á gossvæðinu:
    • Mikið gasstreymi er áfram í og kringum eldstöðina. Bráð lífshætta stafar af gasinu og ekki er óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Við gosstöðvarnar má búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem gera aðstæður þar mjög hættulegar. Allir vísindamenn á vettvangi hafa gasmæla á sér til þess að tryggja öryggi þeirra við störf.
    • SO2 afgösun frá hrauninu er nú talin vera allt að 750kg/sec.
  • Þrír möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:
    • Öskjusig í Bárðarbungu hættir áður en það verður mikið og gosið í Holuhrauni fjarar út.
    • Stórt öskjusig í Bárðarbungu. Gos í Holuhrauni verður langvinnt eða vex. Mögulegt að sprungan lengist til suðurs inn undir Dyngjujökul og valdi jökulhlaupum og gjóskufalli. Einnig er mögulegt að sprungur opnist annar staðar undir jöklinum.
    • Stórt öskjusig í Bárðarbungu og gos í öskjubroti. Slíkt gos gæti brætt mikinn ís og valdið verulegu jökulhlaupi. Öskufall gæti orðið nokkuð.
  • Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu.

13. september 2014 06:50 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Um 20 jarðskjálftar mældust á umbrotasvæðinu í nótt og hefur þeim því heldur fækkað miðað við síðustu nótt. Jarðskjálftar mældust á svipuðum slóðum og síðustu daga, í Bárðarbungu, í ganginum bæði nyrst og undir Dyngjujökulssporðinum og nokkrir við Herðubreiðartögl. Sjá jarðskjálftakort (miðkortið) og vikuyfirlit jarðskjálfta. Stærstu skjálftar urðu rétt fyrir miðnætti (kl. 23:59; M 4,7) við Bárðarbungu. Eftir því sem best verður séð á vefmyndavélum í nótt er virkni á gosstöðvunum svipuð og í gær.

12. september 2014 - af vettvangi

Sprungan
""
Allur virki hluti sprungunnar um hádegi 12. september 2014. Ljósmynd: Ármann Höskuldsson.

Hraunið gengur enn fram í farvegi Jökulsár og er nú stríður þröngur áll á milli hrauns og eystri veggjar farvegs. Reglulega verða smáar gufusprengingar við jaðrana en þær eru ekki samfelldar. Hraun gekk fram um sem nemur 600 m á síðasta sólahring. Hraun breiðir enn úr sér til norðurs, ofan farvegs Jökulsár. Gossprungan er virkust um Suðra og Baug.

Gosmökkur hefur verið jafn í allan dag, föstudaginn 12. september. Mest gas kemur úr Baugi. Strókar í Baug hafa verið á bilinu 70-120 m á hæð en hann er eini gígurinn sem enn heldur strókavirkni.

12. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjálftar hafa ekki verið örir í dag miðað við atburðina í heild en þó er enn stöðug jarðskjálftavirkni í nyrðri hluta kvikuinnskotsins og kringum Bárðarbunguöskjuna. Frá miðnætti til 18:50 nú í kvöld hafa orðið rétt tæpir 100 skjálftar, flestir mældir í sjálfvirka kerfinu en nokkrir þegar samfelld gögn voru yfirfarin. Síðasti skjálfti yfir fjórum að stærð var kl. 09:32 í morgun (M4,7) á nyrðri brún öskjunnar. Eldvirkni í eldstöðinni virðist stöðug, samkvæmt vefmyndavélum og frásögnum vísindamanna á staðnum.

12. september 2014 16:00 - ný spá um dreifingu gass

Veðurstofan vill vekja athygli á því að nú er gerð spá um dreifingu brennisteinsgass. Spána er að finna á flipanum Veður, undir Textaspár.

Útbreiðsla hraunsins
""
Útbreiðsla hraunsins, 12. sept. 2014. Jarðvísindastofnun. Stækkanlegt.

12. september 2014 11:30 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Fundinn sátu jafnframt Sóttvarnarlæknir og fulltrúi Umhverfisstofnunar. 

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Ekki dregur úr gosinu í Holuhrauni. Samkvæmt athugunum á vettvangi er gosvirkni svipuð og undanfarna daga. Hraun rennur áfram í farveg Jökulsár á Fjöllum, áin flæmist til austurs undan hrauninu en árfarvegurinn þrengist. Hraunið nær 5-10 m upp yfir farveg árinnar. Ekki er sprengivirkni þar sem hraunið rennur í ána en gufubólstrar stíga upp.
  • Í flugi vísindamanna yfir svæðið í gær sáust ekki nýjar breytingar á yfirborði jökulsins.
  • Loftgæði í byggð:
    • Spár gefa til kynna að hár styrkur brennisteinsgass (SO2) og annarra gosefna gæti orðið á norðanverðum Austfjörðum, Fljótsdal, Héraði, Jökuldal og Vopnafirði. Spáin gefur til kynna að styrkur geti orðið mestur á Héraði seinnipartinn. Svæði með háum styrk gæti orðið stærra. Umhverfisstofnun stefnir að því að setja upp mælitæki á Akureyri og Suðurlandi. Taka verður tillit til landfræðilegra aðstæðna á hverjum stað við mat loftgæða. Ef fólk finnur fyrir óþægindum er mælt með að halda sig innandyra, loka gluggum og slökkva á loftræstingu. Tafla um viðbrögð við loftmengun hefur verið birt á vef Umhverfisstofnunar www.ust.is. Hægt er að fylgjast með mælingum á loftgæðum á síðunni loftgæði.is. Veðurstofan birtir textaspár á vef sínum og viðvaranir eftir því sem aðstæður breytast.
    • Tilmæli og leiðbeiningar frá sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun má finna á heimasíðum stofnananna.
  • Loftgæði á gossvæðinu:
    • Mikið gasstreymi er áfram kringum eldstöðina. Bráð lífshætta stafar af gasinu og ekki er óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Við gosstöðvarnar má búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem gera aðstæður þar mjög hættulegar. Allir vísindamenn á vettvangi hafa gasmæla á sér til þess að tryggja öryggi þeirra við störf.
  • Jarðskjálftavirkni í öskju Bárðarbungu breytist lítið frá degi til dags. Skjálftarnir dreifast einkum um norður- og suðausturhuta öskjumisgengisins. Dregið hefur enn úr skjálftum við norðurenda kvikugangsins. Rúmlega 50 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Dregið hefur úr óróa.
  • GPS mælingar:
    • Smávægilegar jarðskorpuhreyfingar sem mælast umhverfis ganginn benda til þess að kvikustreymi inn í ganginn sé heldur meira en útstreymi í gosinu í Holuhrauni.
    • Þegar litið er yfir tímabilið frá því gos hófst má hins vegar greina hreyfingar í átt að Bárðarbungu sem benda til áframhaldandi sigs í öskjunni.
    • GPS stöð var sett upp á Bárðarbungu í gær til þess að fylgjast með sigi öskjunnar.
  • Þrír möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:
    • Öskjusig í Bárðarbungu hættir áður en það verður mikið og gosið í Holuhrauni fjarar út.
    • Stórt öskjusig í Bárðarbungu. Gos í Holuhrauni verður langvinnt eða vex. Mögulegt að sprungan lengist til suðurs inn undir Dyngjujökul og valdi jökulhlaupum og gjóskufalli. Einnig er mögulegt að sprungur opnist annar staðar undir jöklinum.
    • Stórt öskjusig í Bárðarbungu og gos í öskjubroti. Slíkt gos gæti brætt mikinn ís og valdið verulegu jökulhlaupi. Öskufall gæti orðið nokkuð.
  • Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu en kóði fyrir Öskju er grænn.

Upplýsingablaðið frá fundinum (pdf 0,3 Mb)

12. september 2014 06:22 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Engar breytingar hafa orðið síðan um miðnætti. Þrjátíu skjálftar hafa mælst, flestir með upptök í ganginum undir Dyngjujökli og við gosstöðvar, og svo við norðurbarm Bárðarbungu. Stærstu skjálftarnir eru um tvö stig. Nokkrir skjálftar hafa mælst við Öskju, Herðubreiðartögl og Tungnafellsjökul.

Milli kl. 18:00 og 24:00 í gær, 11. sept., var lítil en stöðug skjálftavirkni í kvikuinnskotinu, mest undir Dyngjujökli og nokkur við gosstöðvarnar. Stærstu skjálftarnir voru í Bárðarbunguöskjunni, 5,2 kl. 19:57 og 3,1 kl. 23:33.

Út í ána
""
Hraunjaðarinn kominn út í kvíslina að kvöldi 11. september. Jarðvísindastofnun Háskólans. Stækkanleg.

11. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Virkni á Bárðarbungusvæðinu er nokkuð svipuð og í gær. Alls hefur um 150 skjálfta orðið vart í sjálfvirka kerfinu síðan á miðnætti, flestir reyndust þeir í nyrðri hluta innskotsins. Enginn skjálfti fór yfir 2 í stærð fyrr en rétt í þessu (kl. 18:50). Um 40 jarðskjálftar urðu á brún Bárðarbunguöskjunnar. Þeir sterkustu í dag voru 5,3 kl. 00:07 og 4,3 kl. 05:00 og 4.5 kl. 14:23. Margir smáskjálftar mældust í Tungnafellsjökli og í nágrenni Herðubreiðar og Herðubreiðartagla, allir undir þremur í stærð. Engar markverðar breytingar hafa orðið.

Útbreiðsla
""
Útbreiðsla hraunsins, staðan að morgni 11. sept. 2014. Jarðvísindastofnun. Stækkanlegt. Jaðarinn (gula línan) fikrar sig nær Vaðöldu miðað við samskonar kort frá 9. september.

11. september 2014 11:30 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Fundinn sátu jafnframt Sóttvarnarlæknir og fulltrúi Umhverfisstofnunar.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Ekki dregur úr gosinu í Holuhrauni. Samkvæmt athugunum á vettvangi er gosvirkni svipuð og undanfarna daga. Hraun rennur til austurs, lítill hluti þess breiðir úr sér til norðurs en megintungan rennur áfram í farveg Jökulsár á Fjöllum og áin flæmist til austurs undan hrauninu. Ekki er sprengivirkni þar sem hraunið rennur í ána en gufubólstrar stíga til himins.
  • Loftgæði í byggð:
    • Spár gefa til kynna að hár styrkur brennisteinsgasa gæti orðið á norðanverðum Austfjörðum, Fljótsdal, Héraði, Jökuldal og Vopnafirði. Svæði með háum styrk gæti orðið stærra. Ef fólk finnur fyrir óþægindum er mælt með að halda sig innandyra, loka gluggum og slökkva á loftræstingu. Hægt er að fylgjast með mælingum á loftgæðum á síðunni loftgæði.is. Veðurstofan birtir viðvaranir eftir því sem aðstæður breytast á vedur.is.
    • Tilmæli og leiðbeiningar frá sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun má finna á heimasíðum stofnananna.
  • Loftgæði á gossvæðinu:
    • Mikið gasstreymi er kringum eldstöðina. Bráð lífshætta stafar af gasinu og ekki er óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Við gosstöðvarnar má búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem gera aðstæður þar mjög hættulegar.
  • Jarðskjálftavirkni í öskju Bárðarbungu breytist lítið frá degi til dags. Skjálftarnir dreifast einkum um norður- og suðausturhuta öskjumisgengisins. Skjálfti af stærðinni 5,3 varð klukkan 00:07. Dregið hefur nokkuð úr skjálftum við norðurenda kvikugangsins. Rúmlega 30 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Órói virðist vera svipaður og undanfarna daga.
  • GPS mælingar sýna óverulegar jarðskorpuhreyfingar þannig að kvikustreymi inn í ganginn virðist haldast svipað og útstreymi í gosinu í Holuhrauni.  Þegar litið er yfir tímabilið frá því gos hófst má hins vegar greina hreyfingar í átt að Bárðarbungu sem benda til áframhaldandi sigs í öskjunni.
  • Þrír möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:
    • Öskjusig í Bárðarbungu hættir áður en það verður mikið og gosið í Holuhrauni fjarar út.
    • Stórt öskjusig í Bárðarbungu. Gos í Holuhrauni verður langvinnt eða vex. Mögulegt að sprungan lengist til suðurs inn undir Dyngjujökul og valdi jökulhlaupum og gjóskufalli. Einnig er mögulegt að sprungur opnist annarsstaðar undir jöklinum.
    • Stórt öskjusig í Bárðarbungu og gos í öskjubroti. Slíkt gos gæti brætt mikinn ís og valdið verulegu jökulhlaupi.
  • Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu en kóða fyrir Öskju hefur verið breytt í grænt.

Þetta upplýsingablað sem pdf (0,2 Mb)

11. september 2014 06:55 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Um 20 skjálftar mældust á umbrotasvæðinu í nótt  (00:00-06:00) og hefur þeim því heldur fækkað miðað við síðustu nótt. Skjálftavirknin er ennþá að mestu bundin við Bárðarbungu og norðurenda gangsins (við jaðar Dyngjujökuls). Skjálftahrinan sem hefur verið við Herðubreiðartögl er í rénun. Stærstu skjálftarnir urðu rétt upp úr miðnætti (M 5,3) og um fimm-leytið (M 4,3 og M 3) við  Bárðarbungu. Skjálftahrinan sem hefur verið við Herðurbreiðartögl er í rénum og hefur að mestu fært sig norður fyrir Herðubreið, þar hafa mælst um 16 skjálftar frá miðnætti (í sjálfvirka kerfinu).

10. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Um 150 jarðskjálftar hafa mælst í sjálfvirka kerfinu síðan á miðnætti, flestir í nyrðri hluta kvikuinnskotsins milli eldstöðvarinnar og suður eftir því allt að 6 km inn undir Dyngjujökul, en um 30 voru í Bárðarbunguöskjunni og um 20 annarsstaðar á landinu.

Allir skjálftar í kvikuinnskotinu voru minni en 2,5 að stærð. Sterkustu skjálftarnir í öskjunni voru aftur á móti M5,5 kl. 05:28 í morgun á nyrðri brúninni, ásamt tveimur á syðri brúninni að stærð M4,1 kl. 15:51:00 og M4,8 kl. 15:51:14. Stærð seinni skjálftans er ef til vill aðeins ofmetin vegna skekkju sem kóðinn frá fyrri skjálftanum olli. Seinni skjálftinn er þó örugglega stærri.

Í heild má segja að virknin sé óbreytt. Skjálftar komu ekki alveg jafn ört og undanfarna daga en virknin er ekki á undanhaldi.

Blámóðan undir skýjum
""
MODIS mynd frá 13:10 sem sýnir hvernig gosmökkurinn (blátt) lá yfir Austurlandi. Stækkanleg.

10. september 2014 11:55 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Fundinn sátu jafnframt Sóttvarnarlæknir og fulltrúi Umhverfisstofnunar.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Ekkert dregur úr gosinu í Holuhrauni. Samkvæmt athugunum á vettvangi er gosvirkni svipuð og undanfarna daga. Hraun rennur áfram til austurs af svipuðum krafti og áður. Nú rennur hraunið í farveg Jökulsár á Fjöllum. Áin flæmist til austurs undan hrauninu. Ekki er sprengivirkni þar sem hraunið rennur í ána en gufubólstrar stíga til himins.

Loftgæði í byggð:

  • Upplýsingar um loftgæði í Reykjahlíð, á Egilsstöðum og á Reyðarfirði eru nú aðgegnilegar á vefsíðunni loftgæði.is. Dreifingarspá Veðurstofunnar gerir ráð fyrir að seinnipartinn í dag geti styrkur mælst á bilinu 30-40 µg/m³ á geira sem gæti náð yfir Vopnafjörð, Egilsstaði og Reyðarfjörð. Sá styrkur gefur ekki tilefni til neinna sérstakra ráðstafana. Tilmæli frá sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun má finna á heimasíðum stofnananna.

Loftgæði á gossvæðinu:

  • Mikið gasstreymi er í og í kringum eldstöðina. Bráð lífshætta stafar af gasinu og ekki er óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Við gosstöðvarnar má búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem gera aðstæður þar mjög hættulegar.
  • Um 80 skjálftar hafa mælst frá miðnætti, þeir stærstu í norðurhluta Báðrarbunguöskjunnar, 5,5 og, 4,9 að stærð.  Órói virðist vera svipaður og undanfarna daga.
  • GPS mælingar sýna óverulegar jarðskorpuhreyfingar þannig að kvikustreymi inn í ganginn virðist haldast svipað og útstreymi í gosinu í Holuhrauni.

Þrír möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:

  • Öskjusig í Bárðarbungu hættir áður en það verður mikið og gosið í Holuhrauni fjarar út.
  • Stórt öskjusig í Bárðarbungu. Gos í Holuhrauni verður langvinnt eða vex. Mögulegt að sprungan lengist til suðurs inn undir Dyngjujökul og valdi jökulhlaupum og gjóskufalli. Einnig er mögulegt að sprungur opnist annars staðar undir jöklinum.
  • Stórt öskjusig í Bárðarbungu og gos í öskjubroti. Slíkt gos gæti brætt mikinn ís og valdið verulegu jökulhlaupi.

Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

Þetta upplýsingablað sem pdf (0,3 Mb)

10. september 2014 06:40 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Hátt í 50 skjálftar mældust á umbrotasvæðinu í nótt. Skjálftavirknin er ennþá að mestu bundin við Bárðarbungu og norðurenda gangsins (við jaðar Dyngjujökuls). Enn mælast skjálftar við Herðubreiðartögl en heldur færri en í síðustu sólarhringa. Stærsti skjálftinn varð kl. 05:28:34 við norðanverða Bárðarbungu og var um 4,9 að stærð (ekki að fullu yfirfarinn; stærðarmat skv. USGS).

Hraunmyndir
""
Hraunmyndirnar eru síbreytilegar. Myndina tók Ólafur Freyr Gíslason 5. sept. kl. 09:39.

9. september 2014 18:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Síðan í morgun hafa um 230 jarðskjáfltar mælst. Aðalvirknin hefur verið í norðurhluta gangsins, norðan Herðubreiðar, við Herðubreiðartögl og í Bárðarbungu. Engir skjálftar yfir þrjá að stærð hafa mælst síðan rúmlega eitt í nótt.

Útbreiðsla
""
Útbreiðsla hraunsins að kvöldi 9. september. Jarðvísindastofnun. Stækkanlegt.

9. september 2014 11:55 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

  • Ekkert dregur úr gosinu í Holuhrauni.
  • Loftgæði í byggð: Styrkur styrkur brennisteinsdíoxíðs getur valdið óþægindum hjá fólki með undirliggjandi öndunarfæravandamál.
  • Loftgæði á gossvæðinu: Mikið gasstreymi er í og í kring um eldstöðina. Bráð lífshætta stafar af gasinu og því er ekki óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma.
  • Um 150 skjálftar hafa mælst frá miðnætti.
  • GPS mælingar sýna óverulegar jarðskorpuhreyfingar.
  • Sviðsmyndir eru hinar sömu og áður. Ítarlegt upplýsingablað frá fundinum (pdf-0,3 Mb).

9. september 2014 06:40 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Hátt í 50 skjálftar mældust á umbrotasvæðinu í nótt. Skjálftavirknin er ennþá að mestu bundin við Bárðarbungu, norðurenda gangsins og Herðubreiðartögl. Stærsti skjálftinn varð kl. 01:07 við norðanverða Bárðarbungu og var um 5,2 að stærð (ekki að fullu yfirfarinn; stærðarmat skv. USGS (5.4), EMSC (5.0) og VÍ-alert). Órói hefur verið stöðugur í nótt, virðist þó hækka aðeins á stöð Brúarjökli seinni hluta nætur.

8. september 2014 19:20 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Í dag hefur jarðskjálftavirknin verið áfram aðallega á norðurhluta gangsins, inn undir og út fyrir jaðar Dyngjujökuls. Stærsti skjálfti síðan í lok ágúst í ganginum mældist í dag kl. 16: 27, 4,5 að stærð. Stærstu skjálftar á barmi Bárðarbungu í dag voru:

kl. 06:15 4,8 að stærð
kl. 07:20 4,6 að stærð
kl. 14:48 5,0 að stærð
kl. 17:53 4,3 að stærð

Hrina smáskjálfta er í gangi norður af Herðubreið. Um 80 skjálftar hafa mælst, allir undir tveimur að stærð. Ekki er óalgengt að hrinur verði á þessu svæði. Vísindamenn á vettvangi búa sig undir að yfirgefa svæðið vegna aukins brennisteinstvíildis sem stafar af gosinu.

Hraunjaðarinn og áin
""
Eldstöðin í Holuhrauni 8. sept. 2014, austnorðausturjaðarinn, við Jökulsá á Fjöllum. Ljósmynd: Morten S. Riishuus.

8. september 2014 - sigdæld í Bárðarbunguöskjunni

""
Sig Bárðarbunguöskjunnar heldur áfram. Mælingin núna sýnir mesta sig 18,5 m en 15,8 m á föstudag. Jafnframt hefur sigskálin öll dýpkað.

8. september 2014 12:00 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Fundinn í dag sátu jafnframt fulltrúar Sóttvarnarlæknis og Umhverfisstofnunar.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Ekkert dregur úr gosinu í Holuhrauni.
    • Gosvirkni er svipuð og undanfarna daga. Hraun rennur til austurs af svipuðum krafti og áður. Það hægir ekki á hrauninu að það renni í Jökulsá á Fjöllum, áin flæmist til austurs undan hrauninu. Ekki er sprengivirkni þar sem hraunið rennur í ána en gufubólstrar stíga til himins.
    • Flatarmál hraunsins er nú áætlað 19 km2.
    • Engin virkni, hvorki hraun né kvikustrókar er merkjanleg á suðursprungunni. Veikt gasstreymi er upp úr kulnuðum gígunum
  • Loftgæði í byggð:
    • Sá styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2)  sem mælst hefur á vöktunarstöðvum í Reyðarfirði getur valdið óþægindum hjá fólki með undirliggjandi öndunarfæravandamál en aðrir ættu ekki að finna fyrir teljandi áhrifum.
    • Unnið er að því að bæta mælanet Umhverfisstofnunar til þess að mæla magn brennisteinsdíoxíðs (SO2) á fleiri stöðum í byggð. Tilmæli frá sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun má finna á heimasíðum stofnananna.
    • Haldist gosvirkni svipuð má áætla að loftgæði verði sambærileg næstu daga.
  • Loftgæði á gossvæðinu:
    • Mikið gasstreymi er í og í kring um eldstöðina. Bráð lífshætta stafar af gasinu og því er ekki óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Vísindamenn hafa þurft að rýma svæðið þrisvar síðasta sólarhringinn vegna þess að gasstyrkur fór langt yfir hættumörk þegar vindátt breyttist skyndilega. Við gosstöðvarnar má búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem gera aðstæður þar mjög hættulegar.
  • Dregið hefur úr skjálftavirkni á svæðinu. Um 80 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Í Bárðarbungu varð skjálfti að stærð 4,7 klukkan 07:20. Lítill og stöðugur órói hefur mælst síðustu daga.
  • Kvikustreymi inn í ganginn virðist haldast svipað og útstreymi í gosinu í Holuhrauni. GPS mælingar sýna óverulegar jarðskorpuhreyfingar.
  • Fjórir möguleikar eru áfram taldir líklegastir um framvindu. Sjá einnig sem pdf-skjal (0,3 Mb).

8. september 2014 06:50 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjálftavirknin síðan á miðnætti er sem fyrr aðallega á norðurhluta gangsins (inn undir og út fyrir jaðar Dyngjujökuls) og við sjálfa Bárðarbungu. Skjálftum hefur heldur fækkað miðað við síðastliðna sólarhringa, á fjórða tug skjálfta hafa verið staðsettir á umbrotasvæðinu síðan á miðnætti, enginn þeirra stór. Óróinn hefur verið stöðugur síðan í gærkvöldi og gos virðist stöðugt af vefmyndavélum að dæma.

7. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Í dag hafa flestir skjálftarnir verið í Bárðarbunguöskjunni, við gosstöðvarnar, undir Dyngjujökli og í Herðubreiðartöglum. Tveir stærstu skjálftarnir (4,6 og 5,4 að stærð) voru sl. nótt og snemma í morgun í Bárðarbunguöskjunni. Um 155 skjálftar hafa mælst síðan í morgun og órói á mælum er minni en í gær. Samkvæmt jarðvísindamönnum á vettvangi gossins eru miðgígarnir virkastir líkt og undanfarna daga. Nýjasti gígurinn, syðst á sprungunni, virðist ekki lengur vera virkur.

7. september 2014 12:00 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna RLS

  • Ekkert dregur úr gosinu í Holuhrauni. Kvikustreymi er milli 100 og 200 m3/s, hraunið gengur fram um 1 km á dag og var orðið um 16 km2 að stærð síðdegis í gær.
  • Gosvirkni er á sömu stöðum og áður en gosvirkni á syðri sprungunni sem opnaðist á föstudag er lítil. Hrauntungan nær nú 11 km til norðurs og er komin út í vestari meginkvísl Jökulsár á Fjöllum. Ekki hefur orðið vart við sprengivirkni þar sem áin og hraunið mætast en gufa stígur upp af hrauninu. Hvítt gosský nær í 3-4 km hæð og leggur til norður og norðausturs.
  • Skjálftavirkni á svæðinu er svipuð og í gær. Um 140 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Í Bárðarbungu varð skjálfti að stærð 4,6 klukkan 03:30 og annar 5,4 að stærð laust upp úr klukkan sjö. Það er með stærstu skjálftum sem orðið hafa í Bárðarbungu frá upphafi umbrotanna 16. ágúst. Kvikustreymi inn í ganginn virðist vera svipað og útstreymi í gosinu í Holuhrauni.
  • Sviðsmyndir eru hinar sömu og áður. Upplýsingablaðið frá fundinum (pdf 0,2 Mb).

7. september 2014 - nýtt kort af hrauninu

Hraunrennslið í Holuhrauni
""
Holuhraun, staðan að morgni dags 7.9.2014. Jarðvísindastofnun Háskólans, byggist á upplýsingum af vettvangi. Stækkanlegt.

7. september 2014 07:55 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Skjálftar voru alls 70 í nótt. Sá stærsti varð klukkan átta mínútur yfir sjö, 5,4 að stærð í Bárðarbunguöskjunni. Eldvirknin virðist á vefmyndavélum vera svipuð og fyrr og órói minnkaði er leið á nóttina. Hraunið nær nú að meginfarvegi Jökulsár á Fjöllum og gufubólstrar stíga upp.

6. september 2014 22:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjálftar mældust á svipuðum slóðum og síðustu daga, í Bárðarbungu, í ganginum bæði nyrst og undir Dyngjujökulssporðinum og nokkrir við Herðubreiðartögl. Tveir jarðskjálftar að stærð 4,3 og 4,4 mældust í Bárðarbungu í eftirmiðdaginn, kl. 14:32 og kl. 18:43 en í morgun kl. 05:40 mældist skjálfti að stærðinni 5 á svipuðum slóðum. Heildarfjöldi sjálfvirkt staðsettra skjálfta frá miðnætti er um 170. Sjá jarðskjálftakort. Jarðvísindamenn við gosstöðvar telja að virkni á gosstöðvunum sé svipuð og í gær. Útslag jarðskjálftaóróa er lítið í dag.

6. september 2014 - yfirborð jökulsins hefur sigið

""
Bárðarbunga – sig jökulyfirborðs (m). Mæling með TF-FMS frá því í gær borin saman við Lidar kort frá 2011 og yfirborðsmælingar frá í júní á þessu ári. Jarðvísindastofnun Háskólans.

6. september 2014 12:00 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Í eftirlitsflugi í gær var yfirborð Bárðarbungu mælt með radarhæðarmæli flugvélar Ísavia. Mælingarnar sýna stórar breytingar á yfirborði Bárðarbungu. Allt að 15 metra lækkun hefur orðið í miðju öskjunnar og nemur rúmmálsbreytingin um 0,25 km³. Lögun dældarinnar er í samræmi við að botn öskjunnar hafi sigið sem þessu nemur.
    • Sig af þessari stærðargráðu hefur ekki orðið á Íslandi síðan mælingar á jarðskorpuhreyfingum hófust hérlendis um miðja síðustu öld.
    • Engin merki sjást um eldgos eða aukinn jarðhita í Bárðarbunguöskjunni.
    • Rúmmál sigsvæðis í Bárðarbungu er verulegur hluti af áætluðu heildarrúmmáli kvikugangsins.
    • Sennilegasta skýringin er að þetta sig sé í tengslum við mikla jarðskjálftavirkni undanfarið og kvikustreymi neðanjarðar til norðausturs.
  • Í eftirlitsfluginu í gær fannst breið og grunn sigdæld í Dyngjujökli 10 km frá jökuljaðri. Önnur dæld 6 km frá sporði Dyngjujökuls sem fylgst hefur verið með undanfarna daga hefur farið dýpkandi og mældist 35 m djúp.
    • Sennilegt er að þessar dældir séu merki um stutt smágos sem orðið hafa undir jöklinum.
  • Ekkert dregur úr gosinu í Holuhrauni.
    • Gosvirkni er á tveimur sprungum. Megingosið er á sömu sprungu og verið hefur virk frá upphafi. Auk þess er enn gosvirkni á sprungu sem opnaðist í gærmorgun.
    • Hrauntungan nær nú 10 km til ANA og á tæpan km eftir í Jökulsá á Fjöllum.
  • Dregið hefur úr skjálftavirkni á svæðinu síðan í gær. Um 90 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Einn jarðskjálfti 5 að stærð mældist við Bárðarbunguöskjuna kl. 05:40 í morgun. 14 skjálftar hafa orðið stærri en 5 við Bárðarbungu síðan 16. ágúst.
  • Litlar breytingar eru á jarðskorpuhreyfingum norðan Vatnajökuls, mældum með GPS, síðan í gær.
  • Fjórir möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:
    • Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og kvika brjótist ekki til yfirborðs á fleiri stöðum.
    • Gangurinn nái til yfirborðs á fleiri stöðum utan jökuls. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.
    • Gangurinn nái til yfirborðs undir jökli aftur og leiði jafnvel til umtalsverðs eldgoss. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.
    • Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum, en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.
  • Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

Upplýsingablaðið frá fundinum má vista sem pdf (0,3 Mb).

6. september 2014 - kort og loftmyndir

Einblínt að ofan
""
Mynd úr RapidEye gervitungli 06.09 2014 að beiðni "IsViews" verkefnisins sem Fjarkönnun ehf er aðili að. Stækkanleg.
Vakir yfir öllu
""
Landsat 8 falslitamynd frá NASA og USGS frá kl. 12:27 í dag. Gervihnattarmyndir má nýta á ýmsa vegu. Hér hefur Jarðvísindastofnun Háskólans unnið myndina í þeim tilgangi að meta umfang hraunstraumanna innan hraunbreiðunnar. Stækkanleg.
Gosmökkurinn í hádeginu
""
Gosmökkurinn kemur skýrt fram á þessari gervihnattarmynd frá í hádeginu. Stækkanleg.
Hnit suðurjaðars og útbreiðsla til norðausturs
""
Jarðvísindastofnun Háskólans 6. september 2014: Hnit suðurjaðars skv. upplýsingum úr flugi Almannavarna RLS. Útlínur hrauns 31.8-6.9. byggjast á ratsjármyndum frá Landhelgisgæslu TF-SIF og staðsetningarhnitum af vettvangi frá JHÍ. Kortagrunnur Landmælinga. Stækkanlegt. Flatarmál hraunsins er nú talið 14,8 km² (hraun við syðstu sprungu ekki talið með).

6. september 2014 06:18 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjálftar mældust á svipuðum slóðum og síðustu daga, í Bárðarbungu, í ganginum bæði nyrst og undir Dyngjujökulssporðinum og nokkrir við Herðubreiðartögl. Jarðskjálfti 5 að stærð mældist í Bárðarbungu kl. 05:40. Heildarfjöldi sjálfvirkt staðsettra skjálfta frá miðnætti er um 50. Sjá jarðskjálftakort. Eftir því sem best verður séð á vefmyndavélum í nótt er virkni á gosstöðvunum svipuð og í gær.

5. september 2014 - ljósmyndir úr flugi

Í sérstakri grein má sjá flugljósmyndir Ólafs Sigurjónssonar af eldgosinu.

5. september 2014 19:30 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Síðan á miðnætti hafa mælst 270 skjálftar. Skjálftavirknin er svipuð og undanfarna daga þar sem mest virkni er nálægt norðurenda gangsins. Ekki hafa orðið merkjanlegar breytingar á óróa síðan hann jókst lítillega á næstu stöðvum við gosið upp úr klukkan 4 í nótt.

Tvær gossprungur
""
Að morgni 5.9.2014, nýja sprungan í forgrunni. Eldri sprungan fjær, virkni þar er enn mjög mikil. Ljósmynd: Þóra Árnadóttir.

5. september 2014 - nýtt kort

Hnit suðurenda nýrrar sprungu (táknað með rauðum þríhyrningi) og staða hraunjaðars (táknað með rauðum punkti) frá því í morgun. Kortið (stækkanlegt) sýnir einnig hvernig hraunið úr fyrri sprungunni hefur vaxið. Undir kortinu er ljósmynd af kvikustrókum á þeirri sprungu.

Hnit nýrra jaðra og útbreiðsla síðustu daga
""
Jarðvísindastofnun Háskólans 5. september 2014: Ný hnit samkvæmt upplýsingum úr flugi Almannavarna RLS. Útlínur hrauns 31.8-4.9. byggjast á ratsjármyndum frá Landhelgisgæslu TF-SIF og staðsetningarhnitum af vettvangi frá JHÍ. Kortagrunnur Landmælinga Íslands.
Kvikustrókar
""
Ljósmynd (og heiti!) af vefsíðu Jarðvísindastofnunar, frétt frá 5. september: Sprungan sem byrjaði að gjósa sunnudaginn 31. ágúst. Virkni að mestu bundin við Suðurgíg (Suðra), Norðurgíg (Norðra) og Miðgíga (Baug). Mestur gangur í Baug með 70-100 m háum kvikustrókum; virknin í Suðra einkennist af 30-50 m kvikustrókum en heldur smærri upp í gegnum hrauntjörnina í Norðra. Ljósmynd: Þorvaldur Þórðarson.

5. september 2014 12:10 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Um kl. 7 í morgun barst tilkynning frá fréttamanni RÚV sem flaug yfir svæðið um að nýjar gossprungur hefðu opnast sunnan við núverandi sprungu.
  • Farið var í eftirlitsflug kl. 8:30 með vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands.
  • Athuganir úr vélinni hafa leitt í ljós að:
    • Tvær gossprungur hafa myndast suður af gosstöðinni í Holuhrauni, í sigdalnum um 2 km frá Dyngjujökli.
    • Mun minni strókar eru frá nýju sprungunum, gufa og gas stígur til suðausturs.
    • Sigketillinn í Dyngjujökli virðist hafa dýpkað.
    • Engar breytingar er að sjá á Bárðarbungu.
  • Mikið brennisteinstvíildi mælist kringum gosstöðvarnar eins og í gær.
  • Mælingar sýna smávægilega aukningu í leiðni í Jökulsá á Fjöllum. 
  • Dálítill órói sást á jarðskjálftamælum upp úr kl. 3 í nótt. Draga fór úr honum um 6-leytið í morgun.
  • Töluverð virkni er í nyrðri gossprungunni (sprunga 1)  og er hæðin á  gufustróknum ca. 15.000 fet.
  • Ekkert bendir til þess að gosið í Holuhrauni sé í rénun. Hraunið úr sprungu 1 rennur enn aðallega til  ANA og hefur lengst síðan í gær.
  • Skjálftavirkni á svæðinu er svipuð og í gær. Um 170 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Tveir jarðskjálftar, 4,4 og 5,3, mældust við Bárðarbunguöskjuna um miðnætti.
  • Enn hefur hægst á jarðskorpuhreyfingum, mældum með GPS, og eru þær nú innan óvissumarka.
  • Fjórir möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu: 
    • Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og ekki komi til annars eldgoss.
    • Gangurinn nái til yfirborðs á fleiri stöðum utan jökuls. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.
    • Gangurinn nái til yfirborðs undir jökli. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.
    • Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum, en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.
  • Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

Upplýsingablaðið frá fundinum má vista sem pdf (0,3 Mb)

MODIS Aqua sýnir mökkinn klukkan eitt
""
Gosmökkur úr Holuhrauni 5. september 2014. Virðist sveigja suður á bóginn rétt austan Vatnajökuls. Hluti úr stærri gervihnattamynd: NERC Satellite Receiving Station, University of Dundee, Channel 1, 4, 3, Aqua, Friday Sept 05 13:03:46 2014.

5. september 2014 06:20 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjálftar, til kl. 06:00, mældust á svipuðum slóðum og síðustu daga; í Bárðarbungu, í ganginum bæði nyrst og undir Dyngjujökulssporðinum og við Herðubreiðartögl. Tveir jarðskjálftar, 4,3 og 5,2 að stærð, voru mældir í Bárðarbungu kl. 23:33 (4. sept.) og kl. 01:19 í dag. Heildarfjöldi sjálfvirkt staðsettra skjálfta frá miðnætti er um 100. Eftir því sem best verður séð á vefmyndavélum í nótt er virkni á gosstöðvunum svipuð og í gær. Sjá kort.

4. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Virknin í Bárðarbungu og í Flæðum, norður af Dyngjujökli, heldur áfram af svipuðum mætti og í gær. Lágtíðnióróinn frá í gær minnkaði markvert í gærkvöldi. Um klukkan sex í morgun varð vart við óróa á ný, en miklu lægri en í gær. Þetta dvínaði skjótt og um hádegi var það að mestu horfið. Jarðskjálftavirkni heldur áfram á svipaðan hátt og í gær, að meðtöldum fjórum skjálftum stærri en M4 nærri Bárðarbungu. GPS mælingar gefa enn í skyn að rúmmál kvikugangsins aukist en þó ekki jafnhratt. Þetta bendir til þess að enn sé streymi kviku inn í ganginn meira en gýs út á yfirborði. Eldvirknin í gossprungunni heldur áfram af svipaðri ákefð. Samkvæmt vitnisburði viðstaddra þakti hraunið um 10-11 ferkílómetra í morgun og nú í dag hefur flatarmál þess aukist töluvert. Eldvirknin nú undir kvöld er heldur minni en í gærkvöldi.

4. september 2014 12:20 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Gos er enn í gangi í Holuhrauni og ekkert bendir til þess að það sé í rénun. Hraunið rennur aðallega til ANA og hefur lengst töluvert síðan í gær. Bráðabirgðamat frá um kl. 8 í morgun er að útbreiðsla hraunsins sé um 11 km2.
  • Stærstu skjálftar síðan á miðnætti eru fjórir, 4-5 að stærð, allir í Bárðarbunguöskjunni. Alls um 180 skjálftar hafa mælst síðan á miðnætti, flestir á svæðinu við jaðar Dyngjujökuls. Sá stærsti var 4,8 að stærð.
  • Órói sem sást á mælum í gær dó út í gærkvöldi og byrjaði aftur í morgun en er mun minni en í gær. Ekki hefur verið staðfest hvaðan þessi órói kemur en hugsanlegt er að kvika hafi komist í snertingu við vatn.
  • Ekki eru merki um gos undir Dyngjujökli. Engar augljósar breytingar eru á leiðni eða vatnsflæði í ám. Í yfirlitsflugi TF-SIF var ekki að merkja aukið vatnsflæði á eða frá jöklinum. Breytingar sáust heldur ekki á sprungum. Ratsjármyndir sýna engar breytingar.
  • GPS-mælingar síðustu 24 klukkustundir sýna að hægt hefur á hreyfingum. Færslur á stöðvum norðan Vatnajökuls benda þó til rúmmálsaukingar í ganginum. Ekki sjást verulegar breytingar á stöðvum í nágrenni Bárðarbungu.
  • Engar tilkynningar um öskufall hafa borist. Mælanlegt öskufall er ekkert.
  • Brennisteinstvíildi mælist kringum eldstöðina.
  • Gufuský lagði undan vindi í gær en er kyrrstætt í dag þar sem lygnt er á svæðinu. Magn brennisteinstvíildis í gufunni á fjarlægari mælistöðvum er nokkuð undir öryggismörkum og telst ekki hættulegt. Búast má við hærri gildum í dag nær eldstöðvunum þar sem lygnt er. Vindur mun snúast til norðurs og gufuna leggur þá til suðurs.

    Hæð skýsins er um 6 km.
  • Fjórir möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:
  1. Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og ekki komi til annars eldgoss.
  2. Gangurinn nái til yfirborðs og annað eldgos hefjist, jafnvel á nýrri sprungu. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.
  3. Gangurinn nái til yfirborðs og annað eldgos hefjist en verulegur hluti eða öll sprungan verði undir Dyngjujökli. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.
  4. Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum, en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.
  • Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

Upplýsingablaðið frá fundinum má vista sem pdf (0,3 Mb).

Eldar í Holuhrauni
""
Eldstöðvarnar snemma að morgni 4. september 2014. Gígar á miðsprungu; horft í austur, þ.e. suður er til hægri á mynd. Gígurinn hægra megin hefur alltaf verið virkur en sá til vinstri byrjaði að myndast 2. sept. og hefur breytilega virkni; hvarf reyndar seinna þennan morgun. Hæð gosstróka mest 113 m. Ljósmynd: Ármann Höskuldsson.

4. september 2014 06:09 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Virkni frá kl. 00:00-06:00: Órói sem sást á mælum í gær dó út um 21:30 í gær og sást ekki aftur um nóttina. Stærsti skjálfti næturinnar mældist um kl. 3:45, 4,8 að stærð. Hann var staðsettur nyrst í Bárðarbunguöskju. Smáskjálftar mældust á svipuðum slóðum og áður, í Bárðarbungu, í ganginum bæði nyrst og undir Dyngjujökulsporðinum, austan Öskju og Herðubreiðartagla. Helsta nýnæmið var að fáeinum smáskjálftum er mældust 6-7 km norður af Herðubreið. Rúmlega 80 skjálftar hafa verið sjálfvirkt staðsettir í nótt. Ekki sést til gosstöðva á myndavélum sem stendur en virkni þar var svipuð síðast er sást til gosstöðvanna. Sjá jarðskjálftakort: kort1 (þrjú mismunandi) og kort2 (vikuyfirlit).

Útsýni gærdagsins
""
Flogið yfir sporð Dyngjujökuls í átt að gosstöðvunum 3. september 2014 klukkan 16:30. Ljósmynd: Ólafur Freyr Gíslason.

3. september 2014 - óvenjuleg upptaka á staðnum

Óvenjuleg upptaka af eldstöðvunum í Holuhrauni sýnir þyrilfyrirbæri sem líklega er úr gasi og hugsanlega öskuögnum. Tækið er Nicarnica Aviation's NicAIR II á vegum Fred Prata.

3. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Jarðskjálftavirkni heldur enn áfram í nyrðri hluta kvikugangsins, milli eldstöðvanna og inn undir Dyngjujökul til suðurs, allt að 6 km innfyrir jökuljaðarinn. Jarðskjálftar verða ekki eins ört og undanfarna daga. Nokkrir urðu í Bárðarbungu, allir undir M4 síðan M5,5 varð síðastliðna nótt (kl. 03:09). Eldvirkni á sprungunni í Holuhrauni er stöðug, engar markverðar breytingar voru tilkynntar frá þeim sem eru á vettvangi.

Ástæður aukins óróa frá því í morgun eru enn óljósar og enn er verið að vinna úr gögnunum. Engin merki eru um gos undir Dyngjujökli. Í flugi með TF-SIF eftir hádegið urðu vísindamenn hvorki varir við frekari sigdældir í jöklinum né aukið vatnsrennsli í ám. Vatnshæðarmælar í Jökulsá á Fjöllum sýna engar óvenjulegar breytingar í rennsli og leiðni. Lágtíðnióróinn sést enn á jarðskjálftamælum en styrkur hans er misjafn.

Vinnukort af Holuhrauni
""
Útbreiðsla nýja hraunsins í Holuhrauni árla dags 3. september 2014 (gula línan). Kortið (stækkanlegt), sem er frá Jarðvísindastofnun Háskólans, byggist á ratsjármyndum frá Landhelgisgæslunni og GPS hnitum af vettvangi frá JHÍ, loftmynd frá Loftmyndum ehf og kortagrunni Landmælinga Íslands.

3. september 2014 12:20 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Skjálftavirkni heldur áfram, um 160 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Flestir skjálftar mælast á nyrsta hluta Dyngjujökuls. Kl. 03:08 mældist skjálfti að stærð 5,5 norðantil í Bárðarbunguöskjunni.
  • GPS mælingar sýna að kvikugangurinn hefur stækkað frá því að gosið hófst, það bendir til að meiri kvika hafi farið inn í ganginn en upp úr honum í gosinu.
  • GPS mælingar sýna að hægt hefur á jarðskorpuhreyfingum í kringum kvikuganginn sem hefur verið að myndast frá því að atburðir hófust.
  • Ratsjármyndir sýna 0,5 - 1 km breiðan sigdal sem hefur myndast fyrir framan Dyngjujökul og undir honum. Greina má merki sigs tæpa 2 km inn undir jökul. Þykkt jökulsins dregur úr sýnilegum ummerkjum sigsins, svo líklega nær sigið lengra undir jökulinn.
  • Í ljósi gagna frá GPS mælingum, ratsjármyndum og jarðskjálftamælingum þá minnkar ekki hætta á að gos brjóti sér leið suður frá gossprungunni og upp undir Dyngjujökul. Þeirri atburðarás fylgir bráð flóðahætta á flæðum framan við Dyngjujökul. Í ljósi þess verður farið yfir hættumat fyrir vísindamenn sem starfa á svæðinu.
  • Eldgosið heldur áfram í Holuhrauni, meginhrauntungan stefnir í ANA.
  • Kl. 08:00 í morgun var heildarflatarmál hraunsins áætlað 7,2 km2.
  • Engar tilkynningar um öskufall hafa borist. Öskuframleiðsla er lítil sem engin.
  • Brennisteinsdíoxíð mælist í kringum eldstöðina. Gosmökkur berst til norðausturs við gosstöðvarnar.
  • Fjórir möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:
    • Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og ekki komi til annars eldgoss.
    • Gangurinn nái til yfirborðs og annað eldgos hefjist, jafnvel á nýrri sprungu. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.
    • Gangurinn nái til yfirborðs og annað eldgos hefjist en verulegur hluti eða öll sprungan verði undir Dyngjujökli. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.
    • Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.
  • Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

Upplýsingablaðið frá fundinum má vista sem pdf (0,3 Mb).

Mökkur án ösku
""
Mökkur án ösku sem rís yfir eldstöðvarnar í Holuhrauni 3.9.2014. Ljósmynd: Richard Yeo.

3. september 2014 06:24 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Smáskjálftavirkni hélt áfram á svipuðum nótum og í gær fram til klukkan 03:09 er skjálfti, 5,5 að stærð, varð norðantil í Bárðarbunguöskju. Í framhaldinu jókst skjálftavirknin, bæði á svæðinu nyrst undir Dyngjujökli suður af gosstöðvunum en þó sérstaklega í Herðubreiðartöglum. Stærsti skjálftinn þar, hingað til, var tæplega 3 að stærð. Sjálfvirkt staðsettir skjálftar eru kringum 130 klukkan 06:00.

Eftir jarðskjálftann í Bárðarbungu klukkan 03:09 jókst órói lítillega á stöðvunum næst gosinu en fór að draga aftur úr um klukkan 5. Engin merki sáust í infrasound-gögnum og ólíklegt er að ástæðan sé veður, það var gola á svæðinu og engin stór lægð á leiðinni. Það rigndi á svæðinu í gærkvöldi og skúraleiðingar voru í nótt en tímasetningar virðast ekki passa við tíma óróans. Uppruni hans er óþekktur. Eftir því sem best verður séð á vefmyndavélum er virkni á gosstöðvunum svipuð og í gær. Sjá kort.

Siggengi
""
Siggengi skoðuð 3. september 2014. Þau eru í bólstra- og móbergshrauk sem liggur u.þ.b. 2 km norðan við Dyngjujökul. Ljósmynd: Þorvaldur Þórðarson.

2. september 2014 18:30 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Frá miðnætti hafa um 400 jarðskjálftar mælst í sjálfvirka kerfinu, um 300 færri en á sama tíma í gær. Aðalvirknin er í kvikuganginum einkum norðan til. Tveir jarðskjálftar mældust við brún Bárðarbunguöskjunnar í dag. Sá fyrri M4,7 við hana norðanverða klukkan 11:26 og sá síðari M4,3 við hana sunnanverða klukkan 13:55. Nokkrir skjálftar urðu við Herðubreiðartögl. Sjá jarðskjálftakort.

Á vettvangi
""
Þorgils Ingvarsson skiptir um geyma í hitamyndavél við nýja hraunið í Holuhrauni kl. 09:30 2. september 2014. Ljósmynd: Baldur Bergsson.

2. september 2014 12:00 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Skjálftavirkni er mun minni undanfarnar 24 klst, eða um helmingur þess sem hún hefur verið undanfarna daga. Frá miðnætti hafa mælst um 300 skjálftar. Á sama tíma í gær, 1 september, greindust 500 skjálftar á mælum. Skjálftarnir síðan á miðnætti voru við gosstöðvarnar, sá stærsti 3 að stærð. Nokkrir minni voru í öskju Bárðarbungu.
  • GPS-tæki í nágrenni innskotsins sýnir mun minni færslur en fyrir gosið. Það hefur gerst á sama tíma og skjálftavirknin hefur minnkað. Þetta gefur til kynna að kvikuflæðið inn í ganginn og kvikuflæði inn í gosinu eru gróft séð í jafnvægi eins og er.
  • Engin aska kemur frá gosinu.
  • Hvítur gosmökkur rís um 4,5 km frá gosstöðvunum. Vindáttin stýrir áttinni sem mökkurinn fer. Í gær náði hann um 60 km til norð-norðausturs.
  • Í samanburði við gærdaginn mælist nú meira brennisteinsdíoxíð undan vindi frá eldstöðinni.
  • Sandstormur á gossvæðinu kann að hafa blandað örfínum ögnum upp í gosmökkinn, og kann að útskýra ljósbrúna móðu yfir Egilsstöðum í morgun.
  • Gossprungan er um 1,5 km á lengd og um 4,5 km frá jökulrönd Dyngjujökuls.
  • Klukkan 14:00 í gær var flatarmál hraunsins um 4,2 km2, klukkan 08:00 í morgun hafði rönd þess teygt sig 1,5 km til aust-suðausturs.
  • Eldgosið heldur áfram þótt það virðist hafa dregið lítillega úr virkninni frá því sem var í gær.
  • Ekki er hægt að segja til um það á þessari stundu hvert framhaldið verður. Fjórir möguleikar eru taldir líklegastir:
  1. Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og ekki komi til annars eldgoss.
  2. Gangurinn nái til yfirborðs og eldgos hefjist á ný norðan Dyngjujökuls, jafnvel á nýrri sprungu. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.
  3. Gangurinn nái til yfirborðs og eldgos hefjist á ný en verulegur hluti eða öll sprungan verði undir Dyngjujökli. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.
  4. Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup komi niður Jökulsá á Fjöllum en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.
  • Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

    Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

Gasmælingar
""
Baldur Bergsson mælir gas í hrauninu sem kom upp aðfaranótt 29. ágúst. Myndin er tekin 30 ágúst. Ljósmynd: Þorgils Ingvarsson.

2. september 2014 06:50 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Eldgosið í Holuhrauni er stöðugt. Vefmyndavélar hafa ekki sýnt breytingar frá í gær, 1. september, hvorki í hraunflæði né hegðun gossins. Jarðskjálftavirkni hefur verið í rólegri kantinum í nótt. Stærsti skjálftinn, 3,1 að stærð, mældist snemma nætur. Jarðskjálftar á tímabilinu 00:00 til 06:50 voru um 110. Flestir skjálftanna, þar á meðal sá stærsti, urðu í norðurhluta berggangsins en virknin náði þó suður undir sporð jökulsins. Sjá kort.

1. september 2014 19:00 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Frá miðnætti hafa rúmlega 700 jarðskjálftar mælst í sjálfvirka kerfinu, heldur færri en undanfarna daga. Aðalvirknin er í bergganginum. Tveir jarðskjálftar, annar M5,0 klukkan 08:58 og hinn M5,3 klukkan 11:41. Tilkynningar bárust um að þeir hefðu báðir fundist á Akureyri. Rúmlega 140 skjálftar mældust við Herðubreiðartögl. Fáir skjálftar urðu við Öskju.

1. september 2014 17:47 - puntkar úr eftirlitsflugi

Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, flaug yfir umbrotasvæðið við norðanverðan Vatnajökul kl. 13:45 - 16:30. Í fluginu voru vísindamenn frá Jarðvísindastofnun Háskólans, Veðurstofu Íslands og fulltrúi frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Nokkuð skýjað var á svæðinu en þokkalegt skyggni náðist í lágflugi auk þess sem radarmyndir voru teknar í háflugi. Gossprungan í Holuhrauni var könnuð, útbreiðsla hrauns, og sigdældir í Vatnajökli (suðaustan Bárðarbungu og í Dyngjujökli) kannaðar.  Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:

Gossprunga og hraun:

  • Gossprungan er rúmlega 1,5 km á lengd. Þar af er samfellt gos á um 600-800 m löngum kafla nærri miðbiki hennar. Stakur gígur er virkur syðst á gossprungunni en ekki rennur hraun að ráði frá honum nú. Kvikustrókar rísa í nokkurra tuga metra hæð þar sem virknin er mest um miðbikið.
  • Hraunið nær 3,5 km til ANA frá miðju gossprungunnar. Breidd þess er mest um 1,6 km en mjókkar síðan eftir því sem lengra dregur frá gígunum. Endi hraunsins myndar um 500 m breiða tungu. Samfelld hrauná liggur eftir miðju hrauninu langleiðina að jaðri. Víða er glóð í jöðrum hraunsins. Ekki varð séð að vatn úr kvíslum Jökulsár næði neinstaðar að jaðrinum.
  • Flatarmál hraunsins er nú rúmir 4 km2. Gróflega áætlað eru nú (kl. 16) komnir upp 20-30 millj. rúmmetrar af hrauni. Miðað við stærð hraunsins í gærkvöldi hafa bæst við 5-10 millj. rúmmetrar á 18-19 tímum. Meðalrennsli hraunsins yfir þetta tímabil er því af stærðargráðunni 100 m3/s.
  • Tvær litlar sigdældir í Dyngjujökli í stefnu gossprungunnar og sigdalsins sunnan hennar virtust óbreyttar frá því á föstudag 29. ágúst.
  • Radarmyndir voru teknar af Bárðarbungu og sigdældum suðaustan hennar. Ekki varð vart við breytingar.

Gosmökkur:

  • Mökkur, hvítur að lit, steig upp af gosstöðvunum. Blár litur sást neðst í mekkinum. Mökkinn leggur til austnorðausturs. Hann rís hæst í 15000 feta hæð (4,5 km y.s.) ca. 10 km frá gosstað. Mökkurinn myndar ský með mjög skarpri efri og neðri brún. Neðri brúnin er í 6500 fetum (2,0 km hæð y.s.). Þetta ský nær a.m.k. 60 km til NNA. Suðurjaðar þess liggur yfir Báruvatni, Laugarvalladal og syðsta hluta Lagarins. Skýið er um 10 km breitt, 30 km norðaustan gosstöðvanna. Sandrok sem á uppruna á Flæðunum, liggur undir mekkinum og skýinu. Ekki var hægt að sjá að nein aska félli úr skýinu enda bendir hvíti liturinn til þess að öskumagn sé hverfandi. Í stóru skjali með skýringum (pdf 32,8 Mb) má skoða ljósmyndir af mekkinum: Halldór Björnsson, Pálmi Erlendsson og Emmanuel Pagneux.
Hvítur mökkur
""
Upptök makkarins eru gossprunga sem er nokkur hundruð metra löng. Einnig sést virkni í litlum gíg fremst á myndinni. Ljósmynd: Halldór Björnsson. Fleiri myndir í tengli fyrir ofan myndina.

1. september 2014 12:23 - af fundi vísindamannaráðs Almannavarna

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Upplýsingablaðið frá fundinum má vista sem pdf (0,3 Mb).

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

  • Hraungos stendur enn yfir í  Holuhrauni. Hraunið rennur til norðurs frá gosstöðinni.
  • TF-SIF fer í loftið kl. 13:00 og flýgur yfir svæðið með vísindamenn frá Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun og fulltrúa Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. Upplýsinga er að vænta síðar í dag.
  • Kl. 20:00 í gærkvöldið náði hraunið yfir um 3 km2 svæði. Rúmmál hraunsins er talið vera á milli 16 til 25 milljón rúmmetrar.
  • Ekkert öskufall er frá gosstöðvunum.
  • Gasbólstrar og gufa rísa frá sprungunni í nokkur hundruð metra hæð næst eldstöðvunum. Bólstrarnir stíga síðan í allt að 1200 metra hæð þegar fjær dregur.
  • Gasmælar hafa verið settir upp í nágrenni gosstöðvanna í Holuhrauni í tengslum við FutureVolc verkefnið. Gasmælingar leiða í ljós umtalsvert magn af brennisteinssamböndum í gosmekkinum. Því getur mikil hætta falist í því að nálgast svæðið. Mikilvægt er að þeir sem fara nærri gosstöðvunum séu með gasmæla og gasgrímur.
  • GPS mælingar sýna áframhaldandi láréttar færslur vegna gliðnunar við norðurjaðar Vatnajökuls. Ekki sjást skýr merki um þrýstingslækkun í ganginum í tengslum við eldgosið en greina má óreglu í GPS færslum í næsta nágrenni við hann. Berggangurinn virðist ekki hafa færst til norðurs svo nokkru nemi.
  • Nokkuð dró úr skjálftavirkni þegar gos hófst. Enn er þó umtalsverð skjálftavirkni en um 500 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Mesta virknin er enn á 15 km löngu svæði með miðju á jaðri Dyngjujökuls.
  • Kl. 08:58 mældist skjálfti 5 að stærð í Bárðarbunguöskjunni og annar að stærð 5,2 kl. 11:41 á sama svæði.
  • Enn er óvissa um hvert framhaldið á atburðarásinni verður. Fjórir möguleikar eru enn taldir líklegastir:
  1. Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og ekki komi til annars eldgoss.
  2. Gangurinn nái til yfirborðs og annað eldgos hefjist, jafnvel á nýrri sprungu. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.
  3. Gangurinn nái til yfirborðs og annað eldgos hefjist en verulegur hluti eða öll sprungan verði undir Dyngjujökli. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.
  4. Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum, en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.
  • Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

1. september 2014 06:50 - frá vakthafandi jarðvísindamanni

Framvindan frá því á miðnætti til kl. 06:50 1. september:

Eldsumbrot í Holuhrauni:

Eldgosið í sprungunni er stöðugt. Ekki hefur orðið vart við sprengingar og hraunflæði er jafnt. Hvorki jarðskjálftamælar né vefmyndavélar sýna neinar augljósar breytingar frá í gærkvöldi. Nánari lýsingar frá vísindamönnum á staðnum koma væntanlega fljótlega.

Jarðskjálftavirkni:

Um það bil 250 jarðskjálftar hafa mælst á tímabilinu. Flestir hafa þeir orðið í norðurhluta berggangsins, frá gosstöðvunum og í suður, um 10 km inn í Dyngjujökul. Stærstu skjálftarnir voru allt að 2. Skjálftavirkni hefur minnkað eftir að gosið hófst vegna minni þrýstings í bergganginum en heldur þó áfram. Nokkrir skjálftar hafa orðið við brúnir Bárðarbunguöskjunnar, þeir stærstu 4,2 kl. 03:09 við suðurbrún hennar og 4,5 kl. 04:59 við norðurbrúnina. Sjá kort.

Á Öskjusvæðinu urðu flestir jarðskjálftar við Herðubreiðartögl. Stærsti skjálftinn þar mældist 2,9 kl. 02:56. Jarðskjálftar á þessu svæði eru algengir og jarðskjálftavirknin núna þarf ekki að tengjast aukinni spennu vegna eldsumbrotanna (endi bergganganna er í um 25 km fjarlægð í suðvestur frá þessu jarðskjálftasvæði). Engra jarðskjálfta varð vart í Öskju í nótt.

Horfið listaverk náttúrunnar
""Hraunið sem kom upp í Holuhrauni aðfaranótt 29. ágúst 2014. Myndin er tekin kl. 10:52. Náttúran var greinilega ekki ánægð með verkið og hraunaði yfir það eftir tvo sólarhringa með stærra listaverki sem enn er í mótun. Ljósmynd: Sara Barsotti.

16. - 31. ágúst 2014 - ágústmánuður í annarri grein

Upplýsingar um jarðhræringar við Bárðarbungu í ágústmánuði 2014 má lesa í annarri grein.

Aftur upp

Þessa septembergrein má sækja sem pdf-skjal (2,30 Mb)





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica