Svínafellsheiði
Yfirlit og mánaðarskýrslur
Svínafellsheiðin er fyrsta svæðið á
landinu sem er vaktað með síritandi mælitækjum sem gefur kost á sólarhringsvöktun.
Mælitækjum var komið fyrir í hlíðinni ofan við austanverðan Svínafellsjökul
haustið 2018, eftir að niðurstöður úr kortlagningu og mælingum í samstarfi við
Háskóla Íslands leiddu í ljós að um 1,7 km langa sprungu væri að finna í
fjallshlíðinni. Fleiri mælitækjum var svo komið fyrir haustið 2019.

Yfirlitskort sem sýnir staðsetningu sprunga á Svínafellsheiði. Sjá einnig ítarlegra kort neðar á síðunni.
Sprunguna má rekja frá yfirborði jökulsins í 300 m h.y.s.
og upp á efsta hluta heiðinnar í um 850 m h.y.s. Ummerki benda til þess að hreyfingar hafi verið um sprunguna á síðustu
árum og að hún hafi myndast fyrir um 10-15 árum. Talið er að 60-100 milljón
rúmmetrar af efni gætu hlaupið út á Svínafellsjökul og mögulega náð ofan í
lónin fyrir framan jökulinn. Atburðir af
þessari stærðargráðu eiga sér gjarnan aðdraganda sem vonast er að hægt sé að
greina með síritandi mælitækjum.
Mánaðarlega skýrslur um ástand hlíðarinnar verða framvegis birtar á þessar síðu í kringum 15. hvers mánaðar.
Mánaðarlegar skýrslur um Svínafellsheiði
Ágúst 2026
Litlar sem engar hreyfingar eru greinanlegar í mælitækjum á efra svæðinu. Enn eru vandræði með neðri stöðina, en fyrirhugað er að heimsækja svæðið á næstu vikum. Rétt er að minnast á að mánaðarskýrslur síðustu tveggja mánaða bárust ekki á réttum tíma vegna tæknilegra örðugleika. Vert er að geta þess að Skriðuvakt Veðurstofunnar fylgist daglega með gögnum frá mælitækjum á svæðinu.
Júlí 2026
Litlar sem engar hreyfingar eru greinanlegar í mælitækjum á efra svæðinu. Vandræði hafa verið með neðri stöðina frá því að 3G-netsamband var lagt niður. Snjór er að mestu horfinn af svæðinu og því eru sveiflur í mæligögnum áberandi.Júní 2026
Mælitæki eru farin að koma undan snjó og því má sjá sveiflur í gögnunum, líkt og áður þegar dægursveiflur í hita fara að hafa áhrif á mælingar. Litlar sem engar hreyfingar eru greinanlegar í mælitækjum.Maí 2026
Rekstur mælitækja hefur gengið sæmilega. Neðri mælirinn sendir gögn óreglulega, en litlar sem engar hreyfingar hafa mælst.Apríl 2026
Engar hreyfingar er að greina á mælitækjum og rekstur mælitækja hefur gengið ágætlega. Litlar sveiflur eru á togmælunum þessa dagana sem er til marks um að þeir liggja undir snjó.Mars 2026
Engar hreyfingar er að greina á mælitækjum og rekstur mælitækja hefur gengið vel. Afar litlar sveiflur eru á togmælunum þessa dagana sem er til marks um að þeir liggja undir snjó. Meiri snjór er núna á svæðinu en var fyrstu tvo mánuði ársins.Febrúar 2026
Staðan hefur lítið breyst frá því að nýju mælitækin voru sett upp. Engar eða mjög litlar hreyfingar hafa mælst og hefur rekstur tækjanna almennt gengið vel. Rafmagnsvandamál komu upp á neðri stöðinni fyrri hluta mánaðarins vegna takmarkaðs sólskins á svæðinu, en aðstæður bötnuðu á seinni hluta mánaðarins.
Janúar 2026.
Staðan er svipuð og hún var í desember. Litlar hreyfingar sjást á mælitækjum og reksturinn er mjög svipaður og þá. Núna ætti sól að vera hærra á lofti og því ætti dögum þar sem mælitækin eru straumlaus að fara fækkandi. Lítill snjór er á svæðinu miðað við árstíma.
Desember 2025.
Rekstur mælitækja á Svínafellsheiði hefur gengið mun betur núna en síðustu ár. Sérstaklega hefur reksturinn á efra svæðinu verið góður, en lítil sól á neðra svæðinu veldur þó fleiri straumlausum dögum þar. Í desember voru aðeins átta straumlausir dagar á efra svæðinu, en alls nærri tvær vikur á neðra svæðinu. Þetta er engu að síður veruleg framför frá fyrri árum, enda nýr búnaður og betri stýringar á rafmagni á svæðinu.
Hreyfingar á mælitækjum eru mjög litlar sem engar, þrátt fyrir hlýindi og lítið snjóalag.
Nóvember 2025
Síðastliðinn mánuð komu engin frávik fram í rekstri mælitækjanna og niðurstöður haldast nánast óbreyttar, með þeim litlu sveiflum sem rekja má til hitabreytinga. Snjór hefur ekki enn hulið tækin þar sem hitasveiflur eru enn greinilegar. Reikna má með færri sólarstundum til að halda rafgeymum hlaðnum fram í miðjan febrúar og vonast er til að ný uppsetning tryggi að ekki verði gagnatap á þessu tímabili.
Október 2025
Nýju mælitækin hafa starfað án truflana síðastliðinn mánuð. Gögnin streyma jafnt og þétt í vaktkerfið og engin frávik hafa sést aðrir en þau sem má rekja til hitabreytinga.
September 2025
Dagana 15.–17. september fóru sérfræðingar á Svínafellsheiði til að setja upp nýja togmæla. Nú eru þrír togmælar starfandi á svæðinu: tveir á efra svæðinu og einn á neðra svæðinu. Togmælarnir hafa ekki enn sýnt neinar hreyfingar og fram að þessu hafa aðeins mælst mjög litlar færslur.
Ágúst 2025
Engar hreyfingar sáust á GPS tækjunum á heiðinni. Togmælarnir eru komnir til landsins og stefnt er að uppsetningu í byrjun næsta mánaðar.Júlí 2025
Engar hreyfingar sjást á GPS tækjunum á heiðinni. Búið er að panta nýja togmæla og stefnt er að því að setja þá upp í lok ágúst eða byrjun september.Júní 2025
Staðan er svipuð og hún hefur verið síðustu mánuði. Togmælarnir virkar ekki eðlilega en GPS tækin starfa eðlilega. Engar hreyfingar sjást á mælitækjum.Maí 2025
Litlar breytingar er að sjá á mælitækjum á heiðinni. Staðan er því svipuð og hún hefur verið síðustu mánuði.Framkvæmdar voru bylgjuvíxlmælingar (Insar) sem ná nokkur ár aftur í tímann. Þar kemur fram að litlar hreyfingar hafa verið síðustu ár sem rímar vel við gögn úr mælitækjum og mælingar sem hafa verið gerðar á vettvangi.Ítarlegri niðurstöður má finna í hættumatsskýrslu sem gefin verður út á næstunni. Búið er að panta ný mælitæki fyrir þau sem biluð eruð og stefnt er að uppsetningu í ágúst mánuði.Apríl 2025
Staðan er svipuð og hún hefur verið síðustu mánuði. Litlar sem engar hreyfingar eru greinilegar á GPS mælunum. Vefmyndarvéli sem horfir yfir svæðið virkar eðlilega eftir að skipt var um hana.Mars 2025.
Staðan er svipuð og hún hefur verið frá áramótum. Ekki öll mælitæki virka eðlilega, en einn togmælir og GPS-stöðvarnar starfa eðlilega, og engar hreyfingar sjást á mælitækjunum. Vefmyndavélin hætti að virka í lok síðasta mánaðar, en henni var skipt út, og síðan þá hefur hún starfað eðlilega.
Stefnt er að því að laga mælitækin snemma sumars, ef aðstæður leyfa.
11. febrúar 2025
Í dag barst tilkynning til Veðurstofunnar um að skriða hefði mögulega fallið á Svínafellsjökul. Miklar drunur bárust frá jöklinum upp úr kl. 11 í morgun. Flogið var yfir svæðið skömmu eftir hádegi og kom þá í ljós að mikið magn jökulíss hafði fallið ofan á sjálfan jökulinn. Hrunið átti sér stað mjög ofarlega á jöklinum, rétt sunnan við Eystra Hrútsfjall.
Einnig var flogið yfir Svínafellsheiði, en þar sáust engar breytingar. Það rímar vel við gögn frá mælitækjum sem sýna stöðugleika á því svæði.
Febrúar 2025
Rafmagn er aftur komið á Svínafellsheiði þar sem sólarsellurnar fá nú næga birtu. Efra svæðið tengdist í byrjun febrúar, en fyrstu mælingar voru óreglulegar vegna skorts á rafmagni, þó nógu margar til að senda gögn nokkrum sinnum á dag. Neðra svæðið tengdist í lok febrúar. Mælitækin sýna engar hreyfingar þrátt fyrir langvarandi sunnanáttir, hlýindi og rigningu síðustu vikna.
Janúar 2025
Í miðjum janúar urðu báðar GPS stöðvarnar straumlausar en komu svo inn nokkrum dögum seinna. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem að við lendum í vandræðum í janúar með rafmagnsmál á svæðinu en stöðvarnar eru reknar á rafhlöðum og sólarsellum. Þar sem desember var mjög kaldur mánuður og fáir bjartir dagar var lítil orkuframleiðsla á svæðinu og því lentum við í vandræðum í miðjum janúar. Núna er komið rafmagn á efri stöðina og gögn berast frá GPS tækinu og togmælinum en gögn frá neðri stöðinni koma mjög óreglulega. Rafmagnið á svæðinu er því ansi tæpt og getum við aftur lent í rafmagnsleysi. Þetta er ekki ákjósanleg staða en vefmyndavélin sem horfir á svæðið er í góðum rekstri og á meðan að skyggni er ágætt getum við metið aðstæður. Samkvæmt gögnum sem bárust frá mælitækjum í þessum mánuði var ekki hægt að greina neina breytingar.Desember 2024
Litlar sem engar hreyfingar hafa verið á mælum líkt og síðustu mánuði. Einungis einn togmælir er starfandi á svæðinu en GPS mælarnir starfa eðlilega.
Nóvember 2024
Rekstur mælitækja á heiðinni hefur gengið brösulega, eins og áður hefur komið fram. Í síðasta mánuði var farið upp á heiði til að gera við tækin, og virtist allt vera í eðlilegu horfi, fyrir utan tvo togmæla sem enn voru í ólagi. Fyrir nokkrum dögum hætti enn einn togmælir að virka eðlilega, sem þýðir að einungis einn togmælir er nú starfandi.
Ekki er hægt að fara upp á svæðið til að skipta um togmælana þar sem þeir eru grafnir undir snjó. Mikill tími fer í að skipta um mælana, og stutt dagsbirta á þessum árstíma gerir það enn flóknara. Búið er að setja upp áætlun um að fara og skipta um mælana næsta sumar.
GPS/GNSS-stöðvarnar tvær á heiðinni eru hins vegar í góðum rekstri og sýna litlar sem engar breytingar, líkt og eini starfandi togmælirinn. Snjór er kominn yfir svæðið og eru því mælingar togmælisins stöðugar.Þessar bilanir á mælitækjunum eru þó óvenjulegar, og eru tæknimenn í sambandi við framleiðanda tækjanna í þeirri von um að leysa þessi vandamál án þess að skipta um tækin.
Október 2024
Í síðustu viku var farinn ferð upp á Svínefellsheiði til að huga að mælitækjunum.
Það hefur ekki farið framhjá neinum að rekstur mælitækja upp á heiðinni hefur verið ansi erfiður á köflum en á síðustu árum hefur okkur tekist að einfalda reksturinn.
Í ferðinni var farið yfir GPS stöðvarnar og togmælana og eru flestir mælarnir farnir að starfa eðlilega og því tilbúnir að takast á við veturinn.
Ekki tókst að laga togmælinn á neðra svæðinu og óvíst er hvort að það takist fyrr en næsta sumar en verið að kanna hvort að hægt sé að leysa það með öðrum hætti.
Gögn frá mælitækjum gefa til kynna að allt sé enn með kyrrum kjörum á svæðinu og litlar hreyfingar hafi átt sér stað.
Litlar hreyfingar hafa verið á mælum líkt og síðustu mánuði. Enn eru bilanir á nokkrum tækjum en til stendur að fara upp á heiðina fyrir lok mánaðarins. Við munum uppfæra fréttina þegar að búið er að laga og yfirfara öll mælitæki í hlíðinni.
Ágúst 2024
Litlar sem engar breytingar hafa sést á mælitækjum á heiðinni síðustu daga og vikur. Það stendur til að fara í miðjum næsta mánuði og koma mælitækjum í gott horf fyrir veturinn.Júlí 2024
Því miður þarf að fresta viðhaldsferðinni fram á haustið vegna orlofa. Staðan á mælitækjum er sú sama og var í júní. Litlar sem engar hreyfingar hafa greinst á mælitækjum.
Júní 2024
Fyrir nokkrum dögum síðan fór tæknimaður Veðurstofunnar upp á Svínafellsheiði til að meta ástand mælitækja.Í ferðinni tókst að koma á tengingu við tvo togmæla á efra svæðinu en önnur mælitæki sýna bilanir sem þarf skoða betur.Tæknimenn eru að skipuleggja viðhaldsferð sem farin verður við fyrsta tækifæri en taka þarf tillit til snjóalaga efst á svæðinu.
Togmælir 1 á efra svæðinu er ennþá bilaður en mælir 2 og 3 senda gögn sem benda til þes að óverulegar hreyfingar hafi átt sér stað síðustu vikur.
Staðan er því svipuð og hún hefur verið síðustu mánuði.
Maí 2024
Það eru því miður ennþá vandræði með mælitæki á svæðinu en snjóalög hefta aðgengi að tækjunum. Stefnt er að viðhaldsferð í miðjum júni.Apríl 2024
Samskiptavandamál hafa komið upp í tengslum við togmælana og hafa gögn ekki borist í nokkra daga en samskipti við GPS mæla eru í lagi og vefmyndavélin virkar eðlilega. Tæknimenn eru að vinna að lausn. Mars 2024
Litlar breytingar hafa greinst á mælitækjum frá siðasta mánuð en
togmælirinn á neðra svæðinu er enn til vandræða eins og áður hefur verið nefnt. Stefnt er að því að
fara á upp á heiði þegar að snjóa leysir á svæðinu og koma tækinu aftur í lag og yfirfæra önnur tæki. Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 sem
eru á efra svæðinu eru því
enn í kringum 6 og 4,5 mm.
Febrúar 2024
Þrátt fyrir umhleypingar hafa litlar breytingar sést á mælitækjum síðastliðin mánuð og því er staðan mjög svipuð og hefur verið frá því að mælitækin voru sett upp. Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 sem
eru á efra svæðinu eru því
enn í kringum 6 og 4,5 mm.
Janúar 2024
Afar lítið hnik var á togmæli 1 í leysingunum í byrjun árs en ekkert kemur fram á öðrum mælum. Heildarfærslan er því mjög svipuð og hefur verið og telst ennþá vera mjög lítil. Það eru því miður ennþá vandræði með mælitæki á svæðinu en aðgengi að svæðinu er erfitt á þessum tíma árs vegna snjóalaga og veðurfars. Tæknimenn munu fara á vettvang um leið og aðstæður leyfa sem verður líklega ekki fyrr en í vor.Desember 2023
Litlar breytingar má sjá á gögnum sem borist hafa frá mælitækjum á svæðinu. Heildarfærslan er því mjög svipuð og hefur verið. Ennþá eru vandræði með mælitæki á svæðinu og ennþá stendur til að fara upp á heiði að lagfæra þau en óvíst er hvenær sú ferð verður farin vegna snjóalaga og veðurfars.
Nóvember 2023.
Beðist er velvirðingar á því að skýrsla þessi berist seint en mannleg mistök urðu til þess að skýrsla þessi birtst ekki á réttum tíma.
Staðan mælitækja er sú sama og í síðasta mánuði, en litlar sem engar færslur hafa komið fram á mælitækjum. Núna má gera ráð fyrir því að hluti mælitækja sé kominn undir snjó, þó að ekki sé mikill snjór á svæðinu.
Því miður er sama staða varðandi viðhaldferðina upp á heiði. Ferðin er enn á dagskrá en tæknimenn hafa verið uppteknir við uppsetningu og viðhald mælitækja á Reykjanesi síðustu vikur.
Október 2023
Litlar breytingar hafa greinst á mælitækjum frá siðasta mánuð en togmælirinn á neðra svæðinu er því miður enn til vandræða og einn mælir á efra svæðinu hefur verið að haga sér undarlega síðustu vikur. Viðhaldsferð upp á heiði hefur dregist á langinn en það stendur ennþá til að fara upp á heiði á næstu vikum og koma tækjum í lag fyrir veturinn. Mælitækin virðst vera komin undir snjó svo að dagsveiflurnar eru hættar að hafa áhrif á mælingar.Heildarfærslan er svipuð og hún hefur verið.
September 2023
Litlar sem engar breytingar hafa greinst á mælitækjum frá siðasta mánuð en togmælirinn á neðra svæðinu er því miður enn til vandræða. Ekki hefur gefist tími til að fara upp á heiði og laga búnaðinn en það stendur ennþá til að koma tækjum í lag fyrir veturinn. Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 sem eru á efra svæðinu eru því enn í kringum 6 og 4,7 mm.
Ágúst 2023
Engar breytingar hafa greinst á mælitækjum frá siðasta mánuð en togmælirinn á neðra svæðinu er enn til vandræða. Stefnt er að því að fara á upp á heiði í næsta mánuði og koma tækinu í lag og yfirfara búna fyrir veturinn. Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 sem eru á efra svæðinu eru því enn í kringum 6 og 4,5 mm.
Fyrr í sumar var sjálvirkum úrkomumæli komið fyrir í Skaftafelli sem þýðir að gögn berast nú á 1 klst fresti í stað sólarhringsfresti. Fremur þurrt var frá 15. júlí og fram til 15 ágúst en tæplega 8 mm af úrkomu söfnuðust fyrir í mælinn á þessu tímabili.
Júlí 2023
Litlar sem engar hreyfingar hafa sést á gögnum frá mælitiækjum á síðustu vikum. Enn eru truflanir á mælitækjum og samkvæmt upplýsingum frá tæknimönnum þarf að fara á vettvang til að laga búnað. Í næsta mánuði verður skipulögð ferð upp á heiði til að huga að búnaði.Júní 2023
Litlar sem engar breytingar hafa sést á mælitækjum á efra svæðinu síðasta mánuðinn. Einhverjar truflanir hafa verið á mælitækinu á neðra svæðinu sem tæknimenn telja að tengist rafmagnstruflunum. Eins og áður hefur verið nefnt hefur reynst erfitt að reka mælitæki á þessu svæði. Tæknimenn eru að vinna í að leysa þetta vandamál en líklega þarf að fara upp á svæðið til að laga eða skipta út búnaði.Maí 2023
Engar breytingar hafa greinst á mælitækjum frá siðasta mánuði.Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 sem eru á efra svæðinu, eru því enn í kringum 6 og 4,5 mm. Á togmæli 4 á neðra svæðinu er heildarfærslan um 1 mm.
Mikinn snjó hefur tekið upp í mánuðinn, enginn snjór er í lægri hluta hlíðarinnar en ennþá er talsverður snjór í lægðum á efra svæðinu.
Apríl 2023
Litlar sem engar breytingar hafa greinst á mælitækjum frá miðjum síðasta mánuði.Heildarfærsla á togmælum eru því sú sama og hún var í síðasta mánuði. Ennþá er talsverður snjór á efra svæðinu en fremur lítill snjór á neðrasvæðinu miðað við tíma árs.
Mars 2023
Engar breytingar hafa greinst á mælitækjum frá miðjum síðasta mánuði.Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 sem eru á efra svæðinu, eru því enn í kringum 6 og 4,5 mm. Á togmæli 4 á neðra svæðinu er heildarfærslan um 1 mm.
Febrúar 2023
Afar litlar breytingar hafa greinst á mælitækjum síðastliðinn mánuð þrátt fyrir óvenju mikil hlýindi og talsverða úrkomu. Heildarfærsla frá upphafi mælinga er því svipuð og hún hefur verið síðaustu mánuði þar sem togmælar 1 og 2 eru í kringum 6 og 4,5 mm. Á togmæli 4 er heildarfærslan um 1 mm.
Janúar 2023
Afar litlar breytingar hafa greinst á mælitækjum síðastliðinn mánuð. Heildarfærsla frá upphafi mælinga er því svipuð og hún hefur verið síðaustu mánuði þar sem togmælar 1 og 2 eru í kringum 5,8 og 4,5 mm. Á togmæli 4 er heildarfærslan um 1 mm.
Desember 2022Litlar sem engar breytingar hafa greinst á mælitækjum síðastliðinn mánuð.
Heildarfærsla frá upphafi mælinga er svipuð og hún var í síðasta mánuði þar sem togmælar 1 og 2 eru í kringum 5,5 og 4,5 mm. Á togmæli 4 er heildarfærslan um 1 mm.
November 2022
Togmælir 3 á efra svæðinu bilaði í byrjun mánaðarins og
óvíst er hvað veldur. Það eru tveir aðrir mælar á efra svæðinu svo það verður ekkert gagnatap. Litlar sem engar breytingar hafa greinst á mælitækjum.
Heildarfærsla frá upphafi mælinga er svipuð og hún var í síðasta mánuði þar sem togmælar 1 og 2 eru í kringum 5,5 og 4,5 mm. Á togmæli 4 er heildarfærslan um 1 mm.
Október 2022
Heildarfærsla frá upphafi mælinga er svipuð og hún var í síðasta mánuði þar sem togmælar 1 og 2 eru í kringum 5,5 og 4,5 mm. Á togmælum 3 og 4 er heildarfærslan um 3 og 1 mm. Lítil breyting hefur átt sér stað á síðustu mánuðum eins og hefur verið frá því að mælitækin hafa voru sett upp.
Uppsöfnuð mánaðar úrkoma í Skaftafelli er í kringum 50 mm.
September 2022
Í miðjum þessum mánuði fóru tæknimenn upp á Svínafellsheiði til að laga mælitækin. Bætt var við rafgeymum og skipt út mælitækjum sem hafa verið að haga sér undarlega. Eins var farið yfir allan búnað á svæðinu og gengið úr skugga að allt sé í lagi fyrir veturinn. Gögn frá mælitækjum streyma núna eðlilega og ekki hefur verið vart við neinar truflanir frá því að skipt var út biluðum tækjum.
Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 eru um 5,5 og 4,5 mm en þeir voru settir upp haustið 2018. Á togmælum 3 og 4 , sem voru settir upp haustið 2019, er heildarfærslan um 3 og 1 mm.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 141 mm.
Ágúst 2022
Undarleg útslög komu fram í mæligögnum frá togmælinum á neðra svæðinu í lok júlí mánaðar. Í fyrstu gáfu gögnin til kynna að sprungan hefði gliðnað um 20 cm en einungis nokkrum mínútum síðar voru öll gögn frá mælitækinu eðlileg. Vettvangsferð á staðin ásamt gögnum frá GPS stöðvum staðfestu að engar hreyfingar hefðu átt sér stað heldur einhver tæknileg vandamál sem þarf að skoða nánar á vettvangi. Neðri stöðin hagaði sér eðlilega í kjölfarið en núna fyrir nokkrum dögum síðan hættu gögn að berast frá bæði efra svæðinu og neðra svæðinu. Gögn frá mælitækjum fram að bilun sýna að litlar sem engar breytingar hafa átt sér stað á milli mánaða.
Stefnt er að vinnuferð á næstu dögum þar sem að farið verður yfir öll tæki fyrir veturinn.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 220 mm.
Samkvæmt gögnum frá
togmælum hafa litlar sem engar hreyfingar átt sér stað frá
því að mælitæki voru sett upp. Hreyfingar halda áfram að vera litlar líkt og þær voru á
síðastliðnu ári. Mælingar þessar eru í samræmi við mælingar sem gerðar voru á vettvangi. Það komu upp minniháttar vandamál með gagnaafhendingu fyrir nokkrum dögum
síðan þegar að gögn hættu að berast frá tækjum en búið er að leysa það vandamál.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 131 mm.
Júní 2022
Samkvæmt gögnum frá togmælinum á neðra svæðinu komu fram litlar hreyfingar í miðjum mánuðinum, en hreyfingarnar tengjast breytingum í lofthita. Hreyfingar eru því áfram litlar á neðra svæðinu.
Það komu upp vandamál með gagnaafhendingu fyrir nokkrum vikum síðan þegar að gögn hættu að berast frá tækjum á efra svæðinu. Búið er að greina bilunina og stefnt er að klára lagfæringar fyrir lok mánaðrins.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 84 mm.
Maí 2022
Samkvæmt gögnum frá togmælinum á neðra svæðinu hafa litlar sem engar hreyfingar átt sér stað frá því um áramót. Hreyfingar halda áfram að vera litlar líkt og þær hafa verið. Það komu upp vandamál með gagnaafhendingu í síðasta mánuði þegar að gögn hættu að berast frá tækjum á efra svæðinu. Enn er ekki búið að fara á vettvang til að laga bilunina en stefnt er að vettvangsferð við fyrsta tækifæri.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 102 mm.
Apríl 2022
Samkvæmt gögnum frá togmælum á Svínafellsheiði hafa litlar sem engar hreyfingar átt sér stað frá því um áramót. Hreyfingar halda áfram að vera litlar líkt og þær voru á síðastliðnu ári. Það komu upp vandamál með gagnaafhendingu fyrir nokkrum dögum síðan þegar að gögn hættu að berast frá tækjum á efra svæðinu. Búið er að greina bilunina og stefnt er að vettvangsferð við fyrsta tækifæri.
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | |||
|
Gliðnunarmælir
1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,1 mm | 5.3 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,0 mm | 4,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 0,8 mm | |
| GPS stöðvar | |||
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | |||
| Uppsöfnuð úrkoma | 234 mm | ||
Mars 2022
Samkvæmt gögnum frá gliðnunarmælum á Svínafellsheiði hafa litlar sem engar hreyfingar átt sér stað á milli mánaða. Eins og staðan er núna er allt með kyrrum kjörum.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 263 mm.
Febrúar 2022
Eins og fram kom í síðustu mánaðarskýrslu, komu upp tæknileg vandamál í desember sem ollu því að gögn bárust ekki til Veðurstofunnar. Tæknimönnum tókst að leysa hluta af vandamálin í byrjun mánaðarins og restina í síðustu viku. Öll tæki sem eru í rekstri upp á Svínafellsheiði virka núna eðlilega.
Samkvæmt gögnum frá gliðnunarmælum á Svínafellsheiði hafa litlar sem engar hreyfingar átt sér stað á síðustu mánuðum. Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 eru um 5,1 og 4,0 mm en þeir voru settir upp haustið 2018. Á togmælum 3 og 4 , sem voru settir upp haustið 2019, er heildarfærslan um 3 og 0,6 mm.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 187 mm.
Janúar 2022
Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 eru um 5,2 og 4,0 mm en þeir voru settir upp haustið 2018. Á togmælum 3 og 4 , sem voru settir upp haustið 2019, er heildarfærslan um 3 og 0,8 mm. Litlar hreyfingar mældust því árið 2021.
Það komu upp vandamál með gagnaafhendingu í lok síðasta mánaðar sem talið er að tengist rafmagnsleysi. Ekki er unnt að koma tækjunum í gang nema fara á vettvang en verið er að skipuleggja ferð upp á heiði og stefnt er á að fara við fyrsta tækifæri. Eins og áður hefur verið nefnt getur reynst erfitt að reka mælitæki við þær veðuraðstæður sem geta skapast á þessum slóðum.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 150 mm.
Desember 2021
Fyrir nokkrum dögum síðan hættu að berast gögn frá togmælunum á efra svæðinu. Óvíst er hvað veldur þessum gagnavandamálum en tæknimenn eru vinna í að leysa vandamálið. Fram að því höfðu engar hreyfingar mælst á togmælunum á efra svæðinu né á neðra svæðinu.
Gögn úr togmælum 15. desember 2021
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | |||
|
Gliðnunarmælir 1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,0 mm | 5,2 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,0 mm | 4,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 0,8 mm | |
| GPS stöðvar | |||
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | |||
| Uppsöfnuð úrkoma | 137 mm | ||
Nóvember 2021
Af ljósmyndum úr vefmyndavélinni og út frá gögnum
frá gliðnunarmælum er ljóst að mælarnir á efra svæðinu eru komnir á kaf í snjó
en ekki mælirinn á neðra svæðinu. Samkvæmt
gögnum úr mælunum hafa litlar sem engar hreyfingar hafa mælst á mælum 1, 2
og 4 í sumar en gögnin sýna að lítilsháttar gliðnun hefur átt sér stað á mæli 3
eða í kringum 1 mm á síðustu 4 mánuðum.
Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 eru um 5 og 4,0 mm en þeir voru settir upp haustið 2018. Á togmælum 3 og 4 , sem voru settir upp haustið 2019, er heildarfærslan um 3 og 0,8 mm.
Gögn úr togmælum 15.nóvember 2021
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | |||
|
Gliðnunarmælir 1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,0 mm | 5,2 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,3 mm | 4,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 0,8 mm | |
| GPS stöðvar | |||
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | |||
| Uppsöfnuð úrkoma | 131 mm | ||
Október 2021
Samkvæmt gögnum frá mælitækjum á heiðinni hefur lítil sem engin gliðnun mælst síðastliðinn mánuð. Talsverð úrkoma hefur verið á svæðinu eins og við er að búast á þessum árstíma og er uppsöfnuð mánaðar úrkoma í Skaftafelli í kringum 169 mm. Lítill snjór er á svæðinu.
Samskiptavandamál komu upp í byrjun mánaðarins sem þýddi að engin gögn bárust frá togmælunum í rúmar tvær vikur en áfram bárust gögn frá GPS stöðvunum tveimur sem eru í hlíðinni. Í morgun var tæki lagað sem olli þessum samskiptavandamálum. Öll mælitæki virka nú eðlilega.
Þar sem dægursveifla hefur áhrif á mælingar, verður taflan ekki birt fyrr en togmælarnir fara aftur undir snjó
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
September 2021
Lítil sem engin gliðnun hefur mælst á togmælum á Svínafellsheiði síðastliðinn mánuð. Talsverð úrkoma hefur verið á svæðinu frá því í miðjum ágúst. Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli var í kringum 173 mm.
Í lok ágúst fóru tæknimenn frá Veðurstofunni í viðhaldsferð til að yfirfara mælitæki fyrir veturinn. Skipt var um loftnet á GPS stöðvunum sem eru á efra og neðra svæðinu og gengið í skugga um að allt væri klárt fyrir veturinn. Einnig var vefmyndavél komið fyrir á flugskýlinu í Skaftafelli sem horfir upp á Svínafellsheiðina svo hægt sé að fylgjast með breytingum á yfirborði.
Þar sem dægursveifla hefur áhrif á mælingar, verður taflan ekki birt fyrr en togmælarnir fara aftur undir snjó
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Ágúst 2021
Litlar sem engar hreyfingar hafa sést á mælum á Svínafellsheiði síðastliðinn mánuð en síðasti mælirinn kom undan snjó í miðjum júlí. Rekstur mælitækja hefur gengið vel eftir breytingar sem gerðar voru fyrr í sumar. Fremur þurrt hefur verið á svæðinu síðastliðinn mánuð og mældist uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli 43 mm.
Þar sem dægursveifla er farin að hafa áhrif á mælingar, verður taflan ekki birt fyrr en togmælarnir fara aftur undir snjó
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Júlí 2021
Hreyfingar halda áfram að vera litlar samkvæmt gögnum frá togmælunum og hefur lítil sem engin hreyfing mælst á togmæli 1, 2 og 4 en lítlsháttar gliðnun hefur átt sér stað á mæli 3 á síðustu dögum en hann er staðsettur á efra svæðinu. Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuðinn er í kringum 80 mm.
Þar sem dægursveifla hefur áhrif á mælingar, verður taflan ekki birt fyrr en togmælarnir fara aftur undir snjó.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Samkvæmt gögnum frá gliðnunarmælum á
Svínafellsheiði hafa litlar hreyfingar átt sér stað frá því í miðjum janúar. Hreyfingar
halda áfram að vera litlar líkt og þær hafa verið síðustu mánuði. Síðustu vikur
hefur veðrið verið milt að undanskildum nokkrum dögum, en hlýindin hafa stuðlað að snjóbráðnun og er snjór
farinn að bráðna ofan af tækjum.
Þar sem dægursveifla er farin að hafa áhrif á mælingar, verður taflan ekki birt fyrr en togmælarnir fara aftur undir snjó
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Gögn úr togmælum 15.júní 2021
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | |||
|
Gliðnunarmælir 1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,1 mm | 5,3 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,0 mm | 3,1 mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 0,8 mm | |
| GPS stöðvar | |||
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | |||
| Uppsöfnuð úrkoma | 185 mm | ||
Gögn frá gliðnunarmælum á Svínafellsheiði benda til þess að enn sé allt með kyrrum kjörum upp á Svínafellsheiði. Hreyfingar halda áfram að vera litlar líkt og þær hafa verið síðustu mánuði. Fremur kalt er búið að vera síðustu vikur og því hafa leysingar til fjalla ekki hafist að fullu.
Í byrjun þessa mánaðar var farin vettvangsferð til að laga búnað upp á heiði. Sú ferð gekk vel og hafa engin frekari vandamál komið upp. Stefnt er á að fara í aðra vettvangsferð í haust til að yfirfara tæki fyrir næsta vetur.
Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 eru um 5,3 og 3,1 mm en þeir voru settir upp haustið 2018. Á togmælum 3 og 4 , sem voru settir upp haustið 2019, er heildarfærslan um 3 og 0,8 mm.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Gögn úr togmælum 15.maí 2021
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | |||
|
Gliðnunarmælir 1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,1 mm | 5,3 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,1 mm | 3,1 mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 0,8 mm | |
| GPS stöðvar | |||
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | |||
| Uppsöfnuð úrkoma | 214 mm | ||
Aprl 2021
Samkvæmt gögnum frá gliðnunarmælum á Svínafellsheiði hafa litlar sem engar hreyfingar átt sér stað á milli mánaða og standa því mælingar í stað.
Samskiptavandamál hafa verið til staðar síðustu vikur en búið er að greina vandamálið og til stendur að fara í ferð upp á heiði við fyrsta tækifæri til að skipta út búnaði sem er í ólagi.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Gögn úr togmælum 15.april 2021
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | |||
|
Gliðnunarmælir 1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,0 mm | 5,2 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,0 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 0,8 mm | |
| GPS stöðvar | |||
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | |||
| Uppsöfnuð úrkoma | 80 mm | ||
Mars 2021
Samkvæmt gögnum frá gliðnunarmælum á Svínafellsheiði hafa litlar hreyfingar átt sér stað frá því í miðjum febrúar. Hreyfingar halda áfram að vera litlar líkt og þær hafa verið síðustu mánuði.
Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 eru um 5,2 og 3,0 mm en þeir voru settir upp haustið 2018. Á togmælum 3 og 4 , sem voru settir upp haustið 2019, er heildarfærslan um 3 mm og 0,2 mm.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Gögn úr togmælum 15.mars 2021
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | |||
|
Gliðnunarmælir 1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,1 mm | 5,2 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,1 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,1 mm | 0,8 mm | |
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | |||
| Uppsöfnuð úrkoma | 144 mm | ||
Febrúar 2021
Samkvæmt gögnum frá gliðnunarmælum á Svínafellsheiði hafa litlar hreyfingar átt sér stað frá því í miðjum janúar. Gliðnunarmælir 3 hefur staðið í stað síðustu vikur og afar litlar hreyfingar hafa verið á mælum 1 og 2. Mælir 4 hefur ekki sent gögn síðustu daga en fram að því voru litlar sem engar hreyfingar mælanlegar. Hreyfingar halda áfram að vera litlar líkt og þær hafa verið síðustu mánuði.
Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 eru um 5,1 og 3,0 mm en þeir voru settir upp haustið 2018. Á togmælum 3 og 4 , sem voru settir upp haustið 2019, er heildarfærslan um 3 og 0,6 mm.
Áfram eru vandræði með gagnaafhendingu sem virðist vera flókið að leysa en tæknimenn eru að greina hvað veldur.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 31 mm, mest í formi snævar.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Gögn úr togmælum 15.febrúar 2021
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | |||
|
Gliðnunarmælir 1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,2 mm | 5,1 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,0 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,1 mm | 0,7 mm | |
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | |||
| Uppsöfnuð úrkoma | 31 mm | ||
Janúar 2021
Samkvæmt gögnum frá togmælum á Svínafellsheiði hafa litlar sem engar hreyfingar átt sér stað frá því miðjum nóvember. Hreyfingar halda áfram að vera litlar líkt og þær voru á síðastliðnu ári.
Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 eru um 5 og 3,0 mm en þeir voru settir upp haustið 2018. Á togmælum 3 og 4 , sem voru settir upp haustið 2019, er heildarfærslan um 3 og 0,6 mm.
Það komu upp vandamál með gagnaafhendingu í byrjun mánaðarins þar sem að gögn bárust ekki frá stöðvunum í nokkra daga. Tæknimenn eru að greina orsökin og unnið er að því að leysa þessi samskipta vandamál.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 102 mm.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Gögn úr togmælum 15.janúar 2021
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | |||
|
Gliðnunarmælir 1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,3 mm | 4,9 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,2 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | 3,0 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,1 mm | 0,6 mm | |
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | |||
| Uppsöfnuð úrkoma | 102 mm | ||
Desember 2020
Samkvæmt gögnum frá togmælum á Svínafellsheiði hafa litlar sem engar hreyfingar átt sér stað frá því miðjum nóvember. Engar truflanir hafa verið á rafmagnsframleiðslu en lítilsháttar truflanir hafa verið á samskiptum og hafa gögn ekki verið að berast á réttum tíma. Tæknimenn hafa verið að skoða hvað veldur þessum samskiptavandamálum.
Í upphafi mánaðarins varð jarðskjálfi í Svínafellsjökli, skammt frá svæðinu sem verið er að vakta. Skjálftinn var grunnur og um M2.1 að stærð. Engar hreyfingar komu fram á togmælum í kjölfari skjálftans.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 59 mm.
Vegna skriðuhrinu á Austurlandi í miðjum desember var þessi skýrsla ekki birt á réttum tíma, beðist er velvirðingar á því.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Mælarnir þrír upp á efra svæðinu eru komnir undir snjó en svo virðist sem það sé lítill snjór á mælinum á neðra svæðinu vegna þess að lofthiti virðist ennþá hafa áhrif á mælingar. Eins og síðustu mánuði hafa litlar sem engar hreyfingar mælst, en 0,6 mm samdrátt sem kom fram á einum mælinum á efra svæðinu.
Opinn íbúafundur var haldinn 22. október af sveitarfélaginu Hornafirði en vegna sóttvarnarráðstafanna fór fundurinn fram á netinu. Góð mæting var á fundinn þar sem niðurstöður hættumatsins voru kynntar.
Árleg skýrsla frá austuríska fjarkönnunarfyrirtækinu Enveo barst Veðurstofunni fyrir tæpri viku síðan. Í skýrslunni má finna niðurstöður úr árlegri bylgjuvíxlmælingum sem eru í góðu samræmi við gögn frá togmælum og mælingum á vettvangi en niðurstöðurnar staðfesta að litlar hreyfingar hafa verið í hlíðinni frá því í nóvember 2019.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 113 mm.
Þar sem dægursveifla hefur áhrif á mælingar sem eru innan við 2 mm, verður taflan ekki birt fyrr en togmælar fara allir aftur undir snjó.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Október 2020
Fyrir rúmri viku síðan fóru jarðvísindamenn og tæknimenn frá Veðurstofunni og Háskóla Íslands á Svínafellsheiði. Tilgangurinn var að gera úrbætur á raforku- og samskiptakerfinu fyrir mælitækin sem eru í rekstri. Upppfærsla kerfisins var ekki í fullu samræmi við væntingar og eru ennþá hikstar í sambandi við stöðvarnar og vandamál með rafmagn á neðra svæðinu en tæknimenn eru vinna við að finna lausn á málum. Samhliða þessari viðhaldsferð voru fastpunktar mældir og gerðar voru árlegar sprungumælingar en niðurstöður úr þeim mælingum gefa til kynna að litlar hreyfingar séu á milli ára. Þessa mælingar eru í góðu samræmi við aðrar mælingar .Lesa má nánar um ferðina hér .
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 132 mm.
Þar sem dægursveifla hefur áhrif á mælingar sem eru innan við 2 mm, verður taflan ekki birt fyrr en togmælar fara aftur undir snjó.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
September 2020
Í miðjum síðasta mánuði voru vandræði með afhendingu gagna frá mælitækjum sem rekja má til samskiptavandamála. Þar sem tækin hafa verið til vandræða í sumar er skipulögð ferð til að bæta kerfið fyrir veturinn. Litlar sem engar hreyfingar (<1mm) hafa komið fram á togmælum síðastliðinn mánuðinn.Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 131 mm.
Þar sem dægursveifla hefur áhrif á mælingar sem eru innan við 2 mm, verður taflan ekki birt fyrr en togmælar fara aftur undir snjó.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
Ágúst 2020
Allir togmælar eru komnir undan snjó og leysingar
eru að mestu búnar. Gögn frá mælitækjum sýna litla sem engar hreyfingar (<
1mm) þrátt fyrir leysingar og mikla úrkomu síðastliðin mánuð. Tæknilegir
örðuleikar valda því að gögn berast ekki alltaf á réttum tíma en verið er að
vinna í að laga það. Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 157 mm .
Þar sem dægursveifla hefur áhrif á hreyfingar sem mælast
innan 2 mm, verður taflan ekki birt fyrr en togmælarnir fara aftur undir snjó.
Vegna mistaka birtist þessi skýrsla ekki á réttum tíma, beðist er velvirðingar
á því
Snemma í júlí komu allir togmælar undan snjó. Mælar 1-3, sem eru á efra svæðinu, sýna litla sem engar hreyfingar þrátt fyrir miklar leysingar síðustu daga og vikur.
Togmælir 4 er enn í ólagi en til stendur að lagfæra hann á næstu vikum ásamt því að endurskipuleggja rafkerfið.
Uppsöfnuð úrkoma í Skaftafelli síðasta mánuð er 104 mm og féll mesta úrkoman í lok júní.
Þar sem dægursveifla hefur áhrif á hreyfingar sem mælast innan 2 mm, verður taflan ekki birt fyrr en togmælarnir fara aftur undir snjó.
Júní 2020
Áfram mælast litlar hreyfingar á svæðinu en vandræði hafa verið með mælitæki á Svínafellsheiði síðastliðna tvo mánuð sem stafar af rafmagnstruflunum og samskiptavandamálum og hafa því gögn frá mælitækjum ekki alltaf verið að skila sér á réttum tíma. Margvísleg vandamál geta komið upp við rekstur mælitækja til fjalla en verið er að vinna að finna hentuga lausn fyrir þetta svæði.
Leysingar hafa verið á svæðinu síðustu daga og vikur og sýna hitamælar á togmælum 1 og 2 að þeir eru farnir að gæjast upp úr snjóþekjunni en mælir þrjú er ennþá undir snjó. Engin gögn hafa borist frá togmæli 4, sem er neðarlega í hlíðinni, síðan 25 maí en þessi vandræði má rekja til rafmagnstruflana.
Í byrjun mánaðarins urðu snarpar breytingar á mæli 1 þegar 0.2 mm færsla mældist á einni klst en síðan þá hefur mælirinn sýnt litlar breytingar. Litlar sem engar breytingar hafa verið á mælum 2 og 3 síðastliðinn mánuð. Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 eru 5,1 og 3,2 mm. Á togmæli 3 er heildarfærslan aðeins um hálfur millimetri en gögn frá mæli 4 verða ekki birt vegna þar sem engar mælingar hafa borist frá 25. maí.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Síðastliðið ár | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | ||||
| Gliðnunarmælir 1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) | 0,2 mm | 2,2 mm | 5,1 mm | |
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) | 0,0 mm | 1,7 mm | 3,2 mm | |
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) | 0,1 mm | 0,5 mm | 0,6 mm | |
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) | - | - | - | |
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | ||||
| Uppsöfnuð úrkoma | 115 mm | |||

Maí 2020
Áfram mælast litlar hreyfingar á svæðinu. Vandræði hafa verið með mælitæki á Svínafellsheiði síðastliðinn mánuð sem stafar af meðal annars af rafmagnstruflunum og hafa gögn frá mælitækjum ekki alltaf verið að skila sér á réttum tíma. Síðustu daga hafa þó allir mælar starfað eðlilega. Í byrjun mánaðarins urðu snarpar breytingar á mæli 1 þegar 0.2 mm færsla mældist á einni klst en síðan þá hefur mælirinn sýnt litlar breytingar. Mælar 2 og 3 hafa sýnt litlar breytingar síðastliðinn mánuð en mælir 4 sem er á neðra svæðinu hefur verið að haga sér undarlega síðustu daga og vikur en líklega má rekja þau vandræði til rafmagnstruflana sem hafa verið á neðra svæðinu. Heildarfærsla frá upphafi mælinga á togmælum 1 og 2 eru 4,7 og 3,1 mm en þeir voru settir upp haustið 2018. Á togmæli 3, sem settur var upp haustið 2019, er heildarfærslan aðeins um hálfur millimetri en er hægt að segja til um niðurstöður mælinga úr mæli 4 og því verða þær ekki birtar en ljóst er að breytingar eru ekki miklar.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Síðastliðið ár | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | ||||
|
Gliðnunarmælir
1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,3 mm | 2,5 mm | 4,7 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,0 mm | 1,7 mm | 3,1mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,1 mm | 0,4 mm | 0,5 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
- |
- |
- |
|
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | ||||
| Uppsöfnuð úrkoma | 38 mm | |||

Apríl 2020
Gögn frá togmæli fjögur er ekki að berst til okkar að svo stöddu en gögn frá öðrum mælum streyma til Veðurstofunnar og samkvæmt þeim hafa litlar hreyfingar átt sér stað frá því 15. mars eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Gögn bárust frá togmæli 4 í nánast allan mars mánuð og gefa þau til kynna að hreyfingar séu litlar sem engar. Heildarfærsla á togmælum 1 og 2 er farin að nálgast 4,4 og 3,1 mm en togsmælar 3 og 4 er um0,4 og rúmlega 0,5 mm.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir.
Gögn úr togmælum 15. apríl 2020
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Síðastliðið ár | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | ||||
|
Gliðnunarmælir
1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,1 mm | 2,2 mm | 4,4 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,2 mm | 1,7 mm | 3,1mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,1 mm | 0,3 mm | 0,4 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,1 mm |
0,4 mm |
~0,5 mm |
|
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | ||||
| Uppsöfnuð úrkoma | 121 mm | |||

Yfirlitsmynd sem sýnir staðsetningu mælitækja og lega sprunga í hlíðinni
Mars 2020
Samkvæmt
gögnum frá togmælum á Svínafellsheiði hafa litlar hreyfingar átt sér stað frá
því 15. febrúar eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Heildarfærsla á togmælum 1
og 2 er farin að nálgast 4,2 og 3 mm en togmælir 3 er í kringum 0,3 mm.
Þann
8. mars fóru tæknimenn Veðurstofunnar upp á heiði til að laga samskiptavandamál
sem tengdust togmælinum og GPS mælinum á neðra svæðinu. Sú ferð gekk vel og eru
því öll mælitæki á svæðinu komin í lag. Verið er að vinna í að birta gögnin af neðra svæðinu og munu þau birtast í næstu mánaðarskýrslu.
Mánaðaryfirlit er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir.
Gögn úr togmælum 15. mars 2020
| Mælistaðir | Aflestur | Mánuður | Síðastliðið ár | Frá upphafi |
| Láréttar hreyfingar | ||||
|
Gliðnunarmælir
1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,2 mm | 2,1 mm | 4,3 mm | |
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,1 mm | 1,5 mm | 2,9 mm | |
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,1 mm | 0,3 mm | 0,3 mm | |
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
- |
- | - |
|
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | ||||
| Uppsöfnuð úrkoma | 104 mm | |||

Yfirlitsmynd sem sýnir staðsetningu mælitækja og lega sprunga í hlíðinni
Febrúar 2020
Samkvæmt
gögnum frá togmælum á Svínafellsheiði hafa litlar hreyfingar átt sér stað á
síðustu mánuðum. Ársfærsla á togmælum 1 og 2 eru 2,3 mm og 1,6 mm en heildarfærsla
mælanna er farin að nálgast 4,1 og 3 mm. Í miðjum október mánuði var bætt við
tveimur nýjum togmælum þar
sem komið var fyrir nýjum mæli á efra svæðið og öðrum á neðra svæðið. (Sjá mynd hér að neðan). Af
tæknilegum ástæðum er mælirinn á neðra svæðinu er ekki orðinn virkur en
mælirinn á efra svæðinu sýnir litla sem enga hreyfingu.

Í miðjum nóvember fór að bera á rafmagnstruflunum upp á heiðinni. Þetta olli því að gögn úr mælitækjunum fóru að berast með óreglulegu millbili. Þessar truflanir má meðal annars rekja til bilaðra mælitækja af völdum veðurs en veðrið síðustu mánuði hafði leikið vindrellurnar grátt og höfðu báðar vindrellurnar sem framleiða rafmagn fyrir svæðið, laskast í vonskuviðri.
Í janúar gafst tæknimönnum Veðurstofunnar loksins tækifæri til að fljúga með þyrlu Landhelgisgæslunnar upp á heiði til að lagfæra mælitækin og endurskipuleggja rafkerfið.
Til stendur að koma mælinum á neðra svæði í lag á næstu vikum.
Mánaðaryfirlit
er gefið út í kringum 15. hvers mánaðar og oftar ef þurfa þykir.
Gögn úr togmælum 15. febrúar 2020
| Mælistaðir | Mánuður | Síðastliðið ár | Frá upphafi | ||
| Láréttar hreyfingar | |||||
|
Gliðnunarmælir
1 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,2 mm | 2,3 mm | 4,1 mm | ||
|
Gliðnunarmælir 2 – efra svæði (Mælingar hófust í september 2018) |
0,0 mm | 1,6 mm | 2,8 mm | ||
|
Gliðnunarmælir 3 – efra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
0,0 mm | Nýtt mælitæki | |||
|
Gliðnunarmælir 4 – neðra svæði (Mælingar hófust í október 2019) |
Nýtt mælitæki | ||||
| Úrkoma síðasta mánuðinn í Skaftafelli | |||||
| Uppsöfnuð úrkoma | 73mm | ||||



