Snjóflóðasérfræðingur
Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða snjóflóðasérfræðing í fullt starf hjá deild snjóflóða og skriðufalla sem er á Þjónustu- og rannsóknasviði. Á deildinni starfa rúmlega 20 sérfræðingar við ýmis störf sem tengjast ofanflóðum, bæði við vöktun, rannsóknir og hættumat. Starfsfólk deildarinnar starfar á fjórum starfsstöðvum: Reykjavík, Ísafirði, Akureyri og Neskaupstað og einnig tilheyra deildinni snjóathugunarmenn sem eru staðsettir víða um land. Starfið felst í snjóflóðavöktun og tengdum þróunar- og rannsóknarverkefnum. Viðkomandi verður hluti af öflugu og samstilltu teymi sérfræðinga ofanflóðavöktunar Veðurstofunnar, sem er í nánu samstarfi meðal annars við snjóathugunarmenn og veðurfræðinga á vakt. Æskileg starfsstöð snjóflóðasérfræðings er í Neskaupstað en Akureyri og Ísafjörður koma einnig vel til greina.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sérfræðivinna við vöktun snjóalaga og veðurs á snjóflóðasvæðum. Öflun upplýsinga frá snjóathugunarmönnum og veðurfræðingum á vakt. Gerð snjóflóðaspáa og ráðgjöf er varðar snjóflóðavá. Vinna við þróunar- og rannsóknarverkefni sem tengjast snjóflóðavöktun.
Starfinu fylgir vaktavinna á álagstímum og þá sérstaklega yfir vetrartímann.
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Reynsla af fjallaferðum nauðsynleg og þá sérstaklega að vetrarlagi
Góð færni í íslensku og ensku og þá sérstaklega í rituðu máli
Góð þekking á landafræði Íslands
Geta til að vinna og taka ákvarðanir undir álagi
Færni í mannlegum samskiptum
Góð greiningarfærni
Geta til að vinna út frá óljósum upplýsingum
Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið snjóflóðanámskeiðum s.s. Level 1 hjá Kanadísku snjóflóðasamstökunum og/eða fagnámskeiði Landsbjargar
Þekking og geta til að vinna við GIS kerfi, almenna forritun, líkanareikninga eða R-forritun er kostur
Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð
Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, samvinna og framsækni. Ráðningar hjá stofnuninni taka mið af þessum gildum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.09.2025
Nánari upplýsingar veitir
Harpa Grímsdóttir, harpa@vedur.is
Sími: 5226000
Hugrún Björk Hafliðadóttir, hugrun@vedur.is
Sími: 5226000