Veðurstofa Íslands 90 ára

mælar á grónu landi
© Elvar Ástráðsson
Írafoss í Grímsnesi. Veðurfarsstöð nr 956 frá 1972; mengunarmælistöð frá 1980. Fyrir miðju er úrkomumælir með vindhlíf en hitamælaskýli í forgrunni. Aftara skýlið hýsir loftdælur fyrir mengunarmælingar. Úrkomusafnari lengst til hægri og er úrkoman úr honum efnagreind.

Nýjar fréttir

Tíðarfar í febrúar 2026

Febrúar var kaldur, hægviðrasamur og illviðri óvenju fátíð miðað við árstíma. Austlægar áttir voru ríkjandi nær allan mánuðinn og það var þurrt í öllum landshlutum, nema á Austurlandi þar sem úrkoma var í kringum meðallag. Óvenjuþurrt og sólríkt var á sunnan- og vestanverðu landinu. Snjór var tiltölulega lítill á landinu öllu og snjólaust var nær allan mánuðinn á suðvesturhluta landsins. Tiltölulega einsleitt veðurlag breyttist í lok mánaðar með úrkomu og snjó suðvestanlands og rysjóttara veðri.

Lesa meira

Kvikusöfnun undir Svartsengi nálgast 23 milljónir rúmmetra frá síðasta eldgosi

Kvika hefur safnast undir Svartsengi í um 210 daga og er þetta lengsta samfellda kvikusöfnunartímabilið frá því að eldgosahrinan á Sundhnúksgígaröðinni hófst í desember 2023. Haldi kvikusöfnun áfram á sama hraða má gera ráð fyrir að í næstu viku verði magn kviku sem safnast hefur frá síðasta gosi orðið það mesta sem á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinunnar.  Lesa meira

Dagur stúlkna og kvenna í vísindum: Forysta og vísindi á Veðurstofu Íslands

Á Alþjóðadegi kvenna og stúlkna í vísindum er sjónum beint að sterkri menningu Veðurstofu Íslands fyrir fjölbreytni og þátttöku kvenna í vísindum. Konur eru 48% starfsfólks stofnunarinnar og um fimmtungur starfsfólks er af erlendum uppruna. Fjölbreytt sjónarhorn styrkja bæði vísindastarf og samfélag. Lesa meira

Norræn skýrsla um AMOC: Þörf á öflugri loftslagsaðgerðum, vöktun og viðbúnaði

Skýrslan A Nordic Perspective on AMOC Tipping fer yfir stöðu þekkingar á mögulegum áhrifum hruns hafstraumakerfis Atlantshafsins (AMOC) og setur fram ráðleggingar um aðgerðir í stefnumótun. Skýrslan var birt fimmtudaginn 5. febrúar kl. 10 á vef Norðurlandaráðs. 
Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands, er einn höfunda skýrslunnar. 

Lesa meira

Tíðarfar í janúar 2026

Tíðarfar í janúar var óvenjulega gott. Það var hægviðrasamt, bjart, óvenjuþurrt og snjór var með minnsta móti bæði á láglendi og til fjalla. Sérlega þurrt og snjólétt var á sunnan- og vestanverðu landinu og þar var mánuðurinn á meðal þurrustu janúarmánaða frá upphafi mælinga. Hitafar mánaðarins var tvískipt, fyrri hlutinn var kaldur en seinni hlutinn hlýr. Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica