Kötlugos

Kötlugos

Megineldstöð Kötlukerfisins er undir Mýrdalsjökli og sprungusveimur kerfisins teygir sig ~70 km norðaustur í átt að Síðujökli. Megineldstöðin liggur undir 700 m þykkum ís og í henni er ísfyllt askja. Katla er fjórða virkasta eldstöðvakerfi landsins og hefur gosið í a.m.k. 21 skipti á síðustu 1100 árum. Frá landnámi og til ársins 1918 var meðallengd goshléa um 50 ár og því hefur Katla látið bíða eftir sér á þessari öld. Á næsta ári verða 100 ár síðan Kötlugos braust síðast í gegnum íshettu Mýrdalsjökuls.

Einkennisgos Kötlu eru basalt sprengigos en samspil kviku og íss veldur því að gjóska myndast sem dreifist yfir nærliggjandi sveitir, mismikil eftir stærð gosa. Ef jökull lægi ekki yfir megineldstöðinni er líklegt að gosin yrðu hraungos. Katla hefur líka gosið súrum sprengigosum en þau eru mun sjaldgæfari en basaltgosin. Samfara Kötlugosum koma mikil jökulhlaup enda bræðir kvikan mikinn ís úr jöklinum en hlaupin hafa komið niður Mýrdalssand á sögulegum tíma en í fyrndinni hafa þau líka komið niður Markarfljót. Þriðja og sjaldgæfasta tegund gosa á Kötlukerfinu eru stór flæðigos á sprungusveimi kerfisins en síðasta og jafnframt stærsta slíka gosið var Eldgjárgosið sem hófst ~ 939 e.Kr. en í því mynduðust um 20 km3 af hrauni og gjósku. Til samanburðar má nefna að í Holuhraunsgosinu 2014-2015 myndaðist um 1,5 km3 af hrauni.

KAT_1918

Ljósmynd: Kjartan Guðmundsson, 1918.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica