Fréttir

Öræfajökull - fréttir

ljósmynd

Öræfajökull í november 2017. Ljósmynd: Ágúst J. Magnússon.

Fréttagreinarnar hér fyrir neðan eru birtar í öfugri röð; það nýjasta er efst.

Öræfajökull, aukin jarðskjálftavirkni og aflögun – 27. október 2018

Virkni Öræfajökuls nú er dæmigerð fyrir eldfjöll sem búa sig undir eldgos. Samantekt og staðan metin að loknum samráðsfundum Veðurstofunnar, Jarðvísindastofnunar Háskólans og Almannavara, auk íbúafunda í Öræfasveit.

Meira 

Yfirlit vegna Öræfajökuls – 13. júlí 2018

Almannavarnir funduðu með vísindamönnum um Öræfajökul 12. og 13 júlí. Að loknum samráðsfundum, meðal annars með Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands og Íslenskum orkurannsóknum, birtu Almannavarnir samantekt um núverandi stöðu, mögulega þróun og viðbragðsáætlanir.

Meira 

Almannavarnir viðhalda óvissustigi í nágrenni Öræfajökuls – 4. maí 2018

Hátt í níu mánuðir er liðnir frá því að aukinnar virkni varð vart í Öræfajökli. Þann 17. nóvember 2017 var litakóði fyrir flug settur á gult og óvssustigi Almannavarna lýst yfir vegna aukinnar virkni í eldstöðinni, en Öræfajökull er virk eldstöð sem  tvisvar hefur gosið á sögulegum tíma, 1362 og 1727-1728.

Aukin virkni lýsti sér með skjálftavirkni, merki um gas í Kvíá og með myndun hringlaga ketils á yfirborði jökulsins í öskju Öræfajökuls.  Þetta benti til aukinnar jarðhitavirkni í öskjunni samanborið við síðustu áratugi. Virknin var vel yfir skilgreindri bakgrunnsvirkni eldstöðvarinnar sem gæti leitt til eldsumbrota sem hefðu áhrif á flugumferð. Því ákvað Veðurstofa Íslands að breyta litakóða Öræfjökuls fyrir flug úr grænum í gulan. Samhliða því lýsti Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra yfir óvissustigi. Í kjölfarið var vöktun á Öræfajökli aukin umtalsvert.

Meira 

Skjálfti af stærð 3,6 í öskju Öræfajökuls – 9. febrúar 2018

Jarðskjálfti af stærð 3,6 varð í öskju Öræfajökuls klukkan 5:07, 9. febrúar. Um 10 eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið. Nokkrir íbúar í nágrenni Öræfajökuls fundu skjálftann en flestir sváfu. Jarðskjálftinn er sá stærsti sem mælst hefur í Öræfajökli en jarðskjálftamælir var fyrst settur upp á þessu svæði árið 1976. Skjálftinn átti upptök undir öskjunni, rétt suðaustur af katlinum sem myndaðist í nóvember á síðasta ári. Upptökin virðast hafa verið á nokkurra kílómetra dýpi.

Meira en ár er síðan jarðskjálftamælar fóru að sýna merki um aukna skjálftavirkni í Öræfajökli. Frá síðasta hausti hafa auk þess mælst tveir aðrir skjálftar stærri en 3 (3.5 þann 3. október 2017 og 3.1 þann 18. janúar 2018). Ekki hafa orðið aðrar breytingar á síðustu vikum samkvæmt gögnum sem berast til Veðurstofunnar frá mælistöðvum.

Meira

Vöktun Öræfajökuls - staðan 22. desember 2017

Náttúruvárvöktun við Öræfajökul hefur verið bætt umtalsvert síðan í haust þegar skjálftavirkni jókst í eldstöðinni og töluverðrar jarðhitavirkni varð vart í miðri öskjunni. Búið er að fjölga síritandi skjálftamælum, vatnamælum, vefmyndavélum og aflögunarmælum í nágrenni Öræfajökuls og er gögnum streymt til Veðurstofunnar þar sem er vakt allan sólarhringinn. ...

Þegar öll gögn eru tekin saman benda þau til þess að ástand Öræfajökuls hafi verið nokkuð stöðugt undanfarnar vikur en of snemmt er að segja til um hvort dragi úr virkni. Veðurstofan verður því áfram með gult viðvörunarstig fyrir flug til marks um að virkni sé yfir eðlilegri bakgrunnsvirkni  eldfjallsins.

Meira

mynd

Hluti starfsmanna við náttúruvárvöktun Veðurstofunnar, staddir við Sólheimajökul. Ljósmynd: Kristín Jónsdóttir.

ljósmynd

Íbúafundur i Öræfum 27. nóvember 2017. Ljósmynd: Kristín Jónsdóttir.

Fundur vísindaráðs Almannavarna 7. desember 2017

Fundinn sátu fulltrúar frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, lögreglustjóranum á Suðurlandi, Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands og Embætti Sóttvarnarlæknis.
Niðurstöður:

  • Á síðustu viku hefur smáskjálftum sem mælst hafa í Öræfajökli fjölgað. Í síðustu viku mældust þar 160 smáskjálftar. Svo margir skjálftar hafa ekki mælst þar fyrr.
  • Jarðskjálftarnir eru aðallega dreifðir í og við öskjuna í efstu 10 km jarðskorpunnar.
  • Nýjustu mælingar á sigkatlinum í öskju Öræfajökuls sýna að hann heldur áfram að dýpka og stækka í samræmi við viðvarandi aukna jarðhitavirkni og að vatn renni frá katlinum.
  • Mælingar í Skaftafellsá, Virkisá, Kotá og Kvíá sýna óverulegar breytingar undanfarnar vikur. Mælingar á leiðni og efnasamsetningu sýna að jarðhitavatn kemur fram í Kvíá.
  • Frekari túlkun á mælingum á jarðskorpubreytingum síðustu ára sýnir smávægilegar færslur við suðurjaðar jökulsins.
  • Atburðarás og mælingar á svæðinu benda til minniháttar kvikuinnskots á um 2-6 km dýpi undir fjallinu.

Vöktun við Öræfajökul verið aukin til muna, bætt hefur verið við vatnamælum, jarðskjálftamælum og síritandi GPS tæki auk nokkurra vefmyndavéla. Rannsóknir á vettvangi hafa verið auknar.

Fundur vísindaráðs Almannavarna 21. nóvember 2017

Vísindaráð almannavarna hittist til þess að ræða mælingar og vöktun vegna Öræfajökuls.
Kynntar voru niðurstöður úr mælingum á vatnssýnum sem tekin voru um helgina úr ám sem renna frá Öræfajökli.  Þær voru bornar saman við mælingar sem framkvæmdar voru 1988.  Í ljós kom að það vatn sem kemur fram í Kvíá er blanda bræðslu- og jarðhitavatns.  Ekki sjást greinileg merki um kvikugös í vatninu.  Af því má draga þá ályktun að stækkun á sigkatlinum í Öræfajökli stafi af aukinni jarðhitavirkni.
Meira

Stöðufundur á Veðurstofunni um Öræfajökul 18. nóvember 2017

Vísindamenn Jarðvísindastofnunar Háskólans og Veðurstofunnar ásamt fulltrúum almannavarna flugu yfir Öræfajökul í dag. Í kjölfarið, kl18:30-20:30, var haldinn stöðufundur á Veðurstofunni um Öræfajökul.

Farið var á þyrlu Landhelgisgæslunnar og flugvél Isavia auk þess sem vísindamenn voru við árnar og söfnuðu vatni. Gerðar voru mælingar á gasi og rafleiðni vatns í ám, vatnssýnum safnað og yfirborðshæð jökulsins mæld í öskju Öræfajökuls. Sigketilinn sem greint var frá í gær var m.a. mældur og er hann um 1 km í þvermál og 15-20 m djúpur. Vatn úr katlinum rennur í Kvíá og á meðan svo er eru ekki taldar miklar líkur á umtalsverðu jökulhlaupi.

Meira

Ketill í Öræfajökli - 17. nóvember 2017

Nýlegar gervihnattamyndir af Öræfajökli sýna að nýr ketill hefur myndast í öskjunni síðastliðna viku. Flugstjóri í farþegaflugi náði einnig ljósmyndum af katlinum í dag og sendi Veðurstofunni. Ketillinn er um 1km í þvermál og endurspeglar nýlega aukningu í jarðhitavirkni í öskju Öræfajökuls.

Svo virðist sem jarðhitavatn hafi lekið hægt undan katlinum og komið fram undan Kvíárjökli, en brennisteinslykt hefur fundist í nágrenni við Kvíá síðastliðna viku. Líklega er mesta vatnið nú þegar runnið undan katlinum. Aukin skjálftavirkni hefur verið síðustu mánuði, en heldur hefur dregið úr henni síðustu daga. Þessi gögn benda til aukinnar virkni í eldstöðinni sem hefur ekki gosið síðan 1727.  Engin merki eru um gosóróa eða yfirvofandi eldgos.

Veðurstofa Íslands hefur í kjölfar þessarar auknu virkni hækkað litakóða Öræfajökuls vegna flugs í gu í gulan.

Meira

Nýir jarðskjálftamælar við Öræfajökul - 1. nóvember 2017

Skjálftavirkni hefur aukist í Öræfajökli á undanförum mánuðum og hefur Veðurstofan brugðist við með því að efla eftirlit og bæta við mælistöðvum á svæðinu. Í síðustu viku settu starfsmenn Veðurstofunnar upp tvo nýja jarðskjálftamæla við Öræfajökul, við Háöxl (hox), suður af jöklinum, og við Kvísker (kvi), austan megin. Fyrr í mánuðinum tók Veðurstofan í notkun skjálftamæli í eigu bresku jarðfræðistofnunarinnar BGS sem rekur mæli við Falljökul (fal), vestan við Öræfajökul. Jarðskjálftamælirinn, sem var settur upp til að rannsaka jöklaskjálfta, hefur nýst vel við að staðsetja jarðskjálfta í Öræfajökli síðan hann var tekinn í notkun.

maður og landslag

Steypt undir jarðskjálftamæli á Háöxl við Hvannadalshnjúk 24. október 2017. Ljósmynd: Þorgils Ingvarsson.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica