Fréttir
undirritun við langborð utandyra
Í byrjun júní 2010 skrifuðu 17 aðilar undir samstarfssamning um öryggismál ferðamanna.
1 2 3

Vefsíða um öryggismál ferðamanna

www.safetravel.is

23.6.2010

Í byrjun júní 2010 skrifuðu sautján aðilar, er koma að ferðaþjónustu á einn eða annan hátt, undir samstarfssamning í Krýsuvík um öryggismál ferðamanna.

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur á undanförnum árum beitt sér í auknum mæli að öryggismálum ferðamanna, til dæmis með Hálendisvakt björgunarsveitanna. Í ár var ákveðið að ganga skrefinu lengra og efla forvarnir með því að ná saman flestum þeim er koma að öryggi ferðafólks. Leitað var til félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana í þeim tilgangi að nýta betur fjármuni, þekkingu og reynslu þeirra.

Þessir aðilar hafa sameinast um einn vettvang þar sem allar upplýsingar um örugga ferðamennsku eru aðgengilegar. Sá staður er vefsíðan Safetravel, ásamt blaði með sama nafni. Þar eru upplýsingar um margs konar útivist, íslenska náttúru og veður. Jafnframt verða tenglar inn á landakort, færð á vegum, veðurhorfur, afþreyingu og fleira.

Vefsíðan er á sex tungumálum; íslensku, ensku, frönsku, þýsku, spænsku og ítölsku. Þar er að finna ítarlegar upplýsingar um ferðamennsku á Íslandi og munu ferðaþjónustuaðilar auglýsa hana á sínum vefjum. Er það von þeirra sem að verkefninu standa að ná megi til erlendra ferðamanna áður en þeir koma til landsins og að þeir lesi sér til um öryggisatriði ferðamáta síns áður en ferðalagið hefst. Vefsíðan nýtist einnig íslensku ferðafólki.

Blaðið Safetravel er á ensku, þýsku og frönsku og mun liggja frammi víðast hvar þar sem ferðamenn koma við.

Fjöldi ferðamanna hefur aukist á hverju ári samkvæmt Ferðamálastofu. Níutíu prósent Íslendinga ferðuðust innanlands síðasta sumar og um hálf milljón erlendra ferðamanna heimsóttu landið en eins og vitað er hafa orðið hörmuleg banaslys, ekki síst meðal erlendra ferðamanna. Slysin eru ekki einsleit heldur tengjast bæði landi, láði og legi. Hugsanlega hefði mátt fyrirbyggja einhver þeirra með öflugri forvörnum.

Eftirtaldir aðilar koma að Safetravel verkefninu:

  • Slysavarnafélagið Landsbjörg
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Neyðarlínan 112
  • Vegagerðin
  • Ferðafélag Íslands
  • Veðurstofa Íslands
  • Samtök ferðaþjónustunnar
  • Ríkislögreglustjóri
  • Íslandsspil
  • FÍB
  • Síminn
  • Sjóvá
  • Ferðafélagið Útivist
  • Umhverfisstofnun
  • 4x4
  • Umferðarstofa
  • Bylgjan
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Ferðamálastofa

logo safetravel.is





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica