Fréttir
GPS mælir á toppi fjallsins Þorbjarnar. Benedikt Ófeigsson, sérfræðingur í jarðskorpuhreyfingum á Veðurstofu Íslands, tók þessa mynd í lok janúar 2020 stuttu eftir að hann lauk við uppsetningu mælisins í ljósaskiptunum. GPS mælar eru hluti af því mælaneti sem greina landris.

Áfram þensla við fjallið Þorbjörn og landris komið í rúma þrjá sentimetra

Nýjum mælum til vöktunar komið fyrir í dag. Búast má við áframhaldandi jarðskjálftavirkni á svæðinu. Næsti samráðsfundur vísindamanna haldinn á fimmtudag

28.1.2020

Mælar Veðurstofunnar greina áframhaldandi landris við fjallið Þorbjörn á Reykjanesskaga. Risið er á sama hraða og síðustu daga, 3-4mm á dag, sem er óvenju hratt. „Þróunin síðasta sólarhringinn er bara mjög svipuð og hún hefur verið frá upphafi. Það er stöðugt landris, þrír til fjórir millímetrar á dag, og það sem við sjáum í morgun er að það hefur haldið áfram,“ segir Benedikt Ófeigsson, sérfræðingur í jarðskorpuhreyfingum hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að búast megi við áframhaldandi skjálftavirkni á svæðinu. Benedikt ásamt öðrum sérfræðingum Veðurstofunnar hefur í dag unnið að uppsetningu á nýjum mælum til vöktunar á svæðinu í kringum Grindavík. „Það er stefnan að setja upp alla vega tvo mæla, einn uppi á fjallinu Þorbirni og síðan á ákjósanlegum stað vestan við  fjallið“, segir Benedikt.

Áfram er unnið úr frá þeim sviðsmyndum sem vísindamenn telja mögulegar og birtar hafa verið í fréttum, en sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist grannt með þróun mála og safnar gögnum til frekari greiningar. Næsti formlegi samráðsfundur vísindamanna er fyrirhugaður á fimmtudaginn.

Grindavik_Skjaltar_2601-2801

Talsverður fjöldi skjálfta hefur mælst á svæðinu frá miðnætti 26. janúar til dagsins í dag. Sá stærsti á tímabilinu mældist síðdegis á mánudag, 3,1 að stærð.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica