Hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga
Árið 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga. Meðalhiti í byggðum landsins var 5,2 stig sem er 1,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020, og hefur aldrei verið hærri. Áður var árið 2014 hlýjasta árið á landsvísu.

Ársmeðalhiti
í byggðum landsins. Súluritið sýnir hlýjustu og köldustu árin, ásamt
meðaltali áranna 1991 til 2020.
Árið 2025 hefur einkennst af miklum hlýindum. Hiti var vel yfir meðallagi alla mánuði ársins, nema í janúar, júní, október og nóvember. Maí var langhlýjasti maímánuður frá upphafi mælinga, júlí var hlýjasti júlímánuðurinn (ásamt júlí 1933 sem var jafnhlýr) og desember var þriðji hlýjasti desembermánuður frá upphafi mælinga.
Vorið (apríl og maí) var jafnframt það hlýjasta sem skráð hefur verið á landsvísu. Hitabylgjan í maí, sem stóð yfir dagana 13.– 22. maí, var sú mesta sem vitað er um í maímánuði.
Ný hámarkshitamet voru einnig sett í einstökum mánuðum
- Nýtt landsmet í maí: 26,6 stig á Egilsstaðaflugvelli 15. maí.
- Nýtt landsmet í ágúst: 29,8 stig á Egilsstaðaflugvelli 16. ágúst.
- Nýtt landsmet í desember: 19,8 stig á Seyðisfirði 24. desember.

Landsmeðalhiti hvers sólarhrings á árinu 2025 sýndur sem vik frá landsmeðalhita síðustu 10 ára (2015-2025). Hitasveiflur eru alltaf meiri yfir vetrarmánuðina.
Árið var það hlýjasta á mörgum veðurstöðvum, meðal annars í Stykkishólmi þar sem hiti hefur verið mældur samfleytt í 180 ár, allt frá árinu 1845. Þar hafði árið 2016 áður verið það hlýjasta. Af þeim stöðvum sem hafa mælt hvað lengst var árið einnig það hlýjasta í Reykjavík (af 155 árum ), Bolungarvík (af 128 árum), Grímsstöðum á Fjöllum (af 119 árum), Dalatanga (af 71 ári) og Stórhöfða (af 149 árum) og næsthlýjasta árið á Egilsstöðum (af 71 ári), Teigarhorni (af 152 árum) og Keflavíkurflugvelli (af 74) árum.
Á þessum stöðvum voru það ýmist árin 2014, 2016 eða 2003 sem voru áður þau hlýjustu eða álíka hlý, mismunandi eftir landshlutum.

Ársmeðalhiti í Stykkishólmi frá 1846-2025. Brotna línan
sýnir meðalárshita alls tímabilsins, árin sem eru hlýrri en meðaltalið eru
merkt með rauðum punkti en þau sem eru kaldari með bláum punkti.
Betur verður farið yfir tíðarfar ársins 2025 í ársyfirlitinu sem birtist síðar í mánuðinum.
Kristín Björg Ólafsdóttir, sérfræðingur á sviði veðurfarsrannsókna, tók saman.




