Mælingar sýna að landris í Öskju hefur stöðvast
Landrisið sem hófst í Öskju árið 2021 hefur stöðvast. Fyrstu vísbendingar eru jafnframt um landsig á svæðinu.
Vettvangsvinnu í Öskju lauk í vikunni. Þar framkvæmdu vísindamenn Veðurstofunnar og Háskólans í Gautaborg mælingar á aflögun og gasi. Aflögunarmælingarnar sýndu að landrisið er hætt, auk þess sem smávægilegt landsig mælist. Engar breytingar mældust á samsetningu gass í eystri hluta Öskju miðað við fyrri ár. Skjálftavirkni á svæðinu er lítil og í samræmi við þekkta bakgrunnsvirkni.
Niðurstöðurnar gefa því til kynna að atburðarásinni sem hófst árið 2021 sé lokið. Í ljósi þess er viðvörunarstig eldstöðvarinnar fært aftur á stig 0. Það táknar eðlilegt bakgrunnsástand.
Líkt og áður geta þó orðið gufusprengingar innan jarðhitasvæða í Öskju.
Fluglitakóði Öskju er áfram grænn.
Nánari upplýsingar um viðvörunarstig eldstöðva

Mælingar við vatnið í Öskju. Vettvangsvinnu á svæðinu lauk í vikunni og benda niðurstöðurnar til þess að landrisinu sem hófst árið 2021 sé lokið. Mynd:Ásta Rut Hjartardóttir
GNSS-mælingar í Öskju eru notaðar til að fylgjast með aflögun jarðskorpunnar. Nýjustu mælingar sýna að landrisið er hætt og að smávægilegt landsig mælist. Mynd:Michelle Parks
Vísindafólk Veðurstofu Íslands og Háskólans í Gautaborg við vettvangsvinnu. Gerðar voru mælingar á aflögun og gasi.Mynd:Michelle Parks
Aflögunarmælingar við Öskjuvatn. Niðurstöðurnar benda til þess að atburðarásinni sem hófst árið 2021 sé lokið. Mynd:Michelle Parks




