Fréttir
Ísing á sefi
Ísing á sinu.

Tíðarfar í nóvember 2007

- stutt yfirlit

3.12.2007

Tíðarfar í nóvember var hlýtt, en nokkuð rysjótt á landinu. Nokkuð úrkomusamt var á landinu suðvestanverðu en fremur þurrt norðaustanlands. Snjólétt var um nær allt land. Mjög hlýtt var framan af mánuðinum en síðan kólnaði og hiti varð nærri meðallagi síðari hlutann.

Meðalhiti í Reykjavík mældist 3,1 stig og er það 2 stigum ofan meðallags. Á Akureyri var meðalhitinn 1,2 stig og er það 1,6 stigum ofan meðallags. Á Höfn í Hornafirði var meðalhitinn 1,7 stig og er það í tæpu meðallagi, á Hveravöllum var meðalhitinn -3,3 stig.

Úrkoman í Reykjavík mældist 113 mm og er það um 55% umfram meðallag. Þurrt var aðeins fjóra daga. Ámóta úrkoma mældist í nóvember 2004, en síðan þarf að fara aftur til 1993 til að finna meiri úrkomu í mánuðinum. Á Akureyri mældist úrkoman 13 mm og er það aðeins fjórðungur meðalúrkomu. Í nóvember 1995 mældist úrkoman 14 mm á Akureyri, en síðan þarf að fara allt aftur til 1952 til að finna minni úrkomu í þessum mánuði á Akureyri. Þá mældist hún aðeins 3 mm. Úrkoman á Höfn í Hornafirði mældist 134 mm.

Alauð jörð var allan mánuðinn í Reykjavík, en á Akureyri voru aðeins 4 alhvítir dagar, en flekkótt jörð nokkra daga til viðbótar.

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 25 og er það um 14 stundum undir meðallagi. Sólskinsstundir hafa oft orðið færri í Reykjavík. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 19 og er það 5 stundum umfram meðallag.

Meðalhiti á Stórhöfða í Vestmannaeyjum var 3,9 stig (1,4 stigum yfir meðallagi), í Bolungarvík var meðalhitinn 1,6 stig (0,7 stigum yfir meðallagi) og á Egilsstöðum var meðalhitinn 0,1 stig (0,8 stigum yfir meðallagi).

Hæsti hiti í mánuðinum mældist á sjálfvirku stöðinni á Skjaldþingsstöðum, 15,5°C. Á mönnuðu stöðinni á sama stað fór hitinn í 15,0°C. Lægstur varð hitinn á Brúarjökli þann 11., -21,1°C, en lægst fór hitinn í byggð í -16,8°C á Grímsstöðum á Fjöllum þann 25. Sama dag fór hiti niður í -16,0°C á sjálfvirku stöðinni á Reykjum í Fnjóskadal.

Haustið (október og nóvember)

Haustið var mjög úrkomusamt um landið sunnan- og vestanvert. Úrkoma í Reykjavík mældist 288 mm, ívið meiri úrkoma mældist haustið 1993 (297 mm), en síðan þarf að fara aftur til 1958 til að finna meiri úrkomu. Á Akureyri varð haustúrkoman hins vegar í meðallagi, mjög þurr nóvember fylgdi úrkomusömum október.

Hlýtt var bæði í Reykjavík og á Akureyri, en nokkuð hlýrra var þó á báðum stöðum fyrir fimm árum (2002).





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica