Fréttir
Jökulstífluð lón við austanverðan Skeiðarárjökuls
Horft til austurs inn Norðurdal þar sem sjá má lónin.
1 2

Lítilsháttar Skeiðarárhlaup 21. júlí 2009

21.7.2009

Frá því snemma í morgun (21. júlí 2009) hafa nokkrir ísskjálftar verið staðsettir í austanverðum Skeiðarárjökli, u.þ.b. 1,5 km suðvestur af Færnestindum (sjá nánar). Í Norðurdal, norður af tindunum, eru fjögur jökulstífluð lón.

Þegar flogið var yfir þetta svæði 11. júlí sl. voru lónin full af vatni eins og sjá má á myndunum hér til hliðar. Jón G. Sigurðsson flugmaður flaug yfir svæðið í morgun kl. 10 og staðfestir hann að runnið hafi úr lónunum. Athugun við Skeiðarárbrú leiddi í ljós að smávöxtur er í Skeiðará. Von er á fleiri myndum síðar í dag.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica