Fréttir
merki (lógó) Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins

Norðurslóðaáætlun í Ráðhúsi Reykjavíkur

kynning 10. og 11. nóvember

10.11.2009

Veðurstofan vekur athygli á því að kynning stendur nú yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur á samstarfsverkefnum Norðurslóðaáætlunar 2007-2013. Opið er þriðjudaginn 10. nóvember kl. 12-18 og miðvikudaginn 11. nóvember kl. 10-18. Fjölbreytt verkefni sem Ísland tekur þátt í eru kynnt.

Verkefnin eru m.a. á sviðum viðbragða við loftslagsbreytingum, menningartengdrar ferðaþjónustu, heilsugæslu, fiskeldis, verslunar, veiða, handverks, viðbragða við stórslysum, almenningssamgangna, nýtingu trjáviðar, endurnýjanlegra orkugjafa, öldrunarþjónustu, vegagerðar og skapandi greina.

Á hluta sýningarinnar verður lifandi vinnustofa“ skapandi frumkvöðla sem leggja aukið gildi til valinna NPP verkefna.

Norðurslóðaáætlun 2007-2013 er ein af svæðaáætlunum Evrópusambandsins og meginmarkmið hennar er að efla atvinnu-, efnahags-, umhverfis- og félagslega framþróun svæða og landa á norðurslóðum með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.

Þema ráðstefnunnar er atvinnusköpun með áherslu á sóknarfæri sem felast í tengingu hefðbundinna atvinnugreina við skapandi greinar. Lögð er áhersla á virkt samstarf og tækifæri sem liggja í samstarfi hefðbundins og skapandi iðnaðar.

Nánar má lesa um verkefnasýninguna á vef Byggðastofnunar.



kynningarspjald NPP ráðstefnunnar




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica