Fréttir
Þorraþing Veðurfræðifélagsins
11. febrúar 2010
Þorraþing Veðurfræðifélagsins verður sett fimmtudaginn 11. febrúar kl. 13:00 í Víðgelmi í Orkugarði að Grensásvegi 9. Veðurfræðifélagið er opið öllum áhugamönnum um veður og veðurfræði og þingið sömuleiðis. Þema þorraþingsins er "veður og jöklar" en einnig verða flutt almenn veðurerindi.
Dagskrá þingsins:
- 13:00 Inngangur
- 13:05 Jöklar á Íslandi: jöklafræði, gagnaöflun og rannsóknir - Finnur Pálsson
- 13:20 Einfalt líkan til þess að reikna afrennslisaukningu frá jöklum í hlýnandi loftslagi - Tómas Jóhannesson
- 13:35 Orkubúskapur á íslenskum jöklum: mælingar og dæmi um niðurstöður - Sverrir Guðmundsson
- 13:50 Afkoma Hofsjökuls 2008-2009 - Þorsteinn Þorsteinsson
- 14:05 Samband veðurathugana í Eyjafirði og afkomumælinga smájökla í Svarfaðardal - Sveinn Brynjólfsson
Kaffihlé
- 14:50 Rek hafíss í Austur-Grænlandsstraumi sunnan Scoresbysunds - Ingibjörg Jónsdóttir
- 15:05 Ósonmælingar í Reykjavík 1957-2009 - Árni Sigurðsson
- 15:20 Óveður - aðferð til að meta styrk og afleiðingar í óveðrum - Einar Sveinbjörnsson
- 15:35 The Bergen Shelter - Marius O. Jonassen
- 15:50 Hvasst við Hvarf - Guðrún Nína Petersen
Í framhaldi af þinginu heldur Veðurfræðifélagið aðalfund sinn kl. 16:15 á sama stað.