Fréttir
Kynningarfundir um kortlagningu flóðasvæða
Veðurstofa Íslands hefur unnið að kortlagningu flóða sem urðu á helstu flóðasvæðum landsins í desember 2006.
Á næstu vikum, nú síðla hausts 2010, verða kynnt drög að kortum og aðrar niðurstöður vegna flóða í Hvítá í Borgarfirði, Skagafirði og neðri hluta Ölfusár.
Eftirfarandi kynningarfundir eru fyrirhugaðir:
- Skagafjörður: 27. október 2010 kl. 15 - 17 í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð
- Borgarbyggð: 4. nóvember 2010 kl. 20:30 - 22:30 í Félagsheimlilinu Valfelli, Borgarbyggð
- Ölfus: 11. nóvember 2010 kl. 15 - 17 í Ráðhúskaffi, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn
Fundirnir eru opnir öllum og er sérstaklega óskað eftir athugasemdum og ábendingum heimamanna.