Fréttir
Horft upp eftir Skaftá frá Skaftárdal.

Tíðarfar í nóvember 2012

Stutt yfirlit

3.12.2012

Tíðarfar í mánuðinum var lengst af óhagstætt. Mikill snjór var víða um landið norðanvert en snjólétt syðra. Illviðri voru með meira móti, sérstaklega framan af, og fyrstu dagana gerði óvenjuöflugt norðanillviðri með foktjóni víða um land.

Hiti

Hiti var nærri meðallagi, aðeins ofan við það á Suður- og Austurlandi en lítillega undir um landið norðvestan- og norðanvert. Mánaðarmeðalhitinn í Reykjavík var 1,5 stig og er það 0,3 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990. Á Akureyri var meðalhitinn -1,0 stig og er það um 0,7 stigum undir meðallagi. Meðalhita á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

 

stöð hiti vik röð af
Reykjavík 1,5 0,3 70 142
Stykkishólmur 0,6 -0,4 105 168
Bolungarvík 0,2 -0,7 87 115
Akureyri -1,1 -0,7 98 131
Egilsstaðir -0,7 0,0 38 58
Dalatangi 2,2 0,4 45 75
Teigarhorn 1,8 0,5 69 140
Höfn í Hornafirði 1,9
Kirkjubæjarklaustur 1,2 0,1 57 87
Stórhöfði 2,6 0,2 75 136
Árnes 0,0 0,3 [70] [133]
Hveravellir  -4,5 0,3 26 48

 

Meðalhiti í mánuðinum var hæstur í Surtsey, 3,7 stig, og 3,1 á Garðskagavita. Lægstur var meðalhitinn í Sandbúðum, -6,4 stig. Lægstur meðalhiti í byggð var í Möðrudal, -4,5 stig.

Hæsti hiti sem mældist í mánuðinum var 13,7 stig og mældist hann þann 5. bæði í Búðardal og á Kambanesi. Hæsti hiti á mannaðri stöð mældist þann 5. á Dalatanga, 11,8 stig. Lægsti hiti mánaðarins mældist við Hágöngur þann 26., -20,3 stig. Lægsti hiti í byggð mældist -19,6 stig, það var í Möðrudal þann 26. Lægsti hiti á mannaðri stöð mældist -15,6 stig á Grímsstöðum á Fjöllum þann 29.

Úrkoma

Mjög úrkomusamt var um landið norðan- og austanvert, en tiltölulega þurrt víðast hvar á Suðurlandi, þó ekki í Reykjavík því þar mældist úrkoma 85,6 mm og er það 18 prósent umfram meðallag. Á Akureyri mældist úrkoman 127,3 mm og er það meira en tvöföld meðalúrkoma í nóvember. Jafnmikil úrkoma hefur ekki mælst á Akureyri í nóvember síðan 1991 – en þá var hún heldur meiri en nú. Úrkoman á Höfn í Hornafirði mældist 125 mm. Í Stykkishólmi var úrkoman aðeins rétt rúmur helmingur meðalúrkomu og á Stórhöfða í Vestmannaeyjum var hún um 73 prósent meðalúrkomu. Úrkoma á Höfn í Hornafirði mældist 125 mm.

Ekki hefur mælst nærri því jafnmikil úrkoma í nóvember og nú á Grímsstöðum á Fjöllum. Þar hefur úrkoma verið mæld samfellt frá 1935. Nóvembermet var einnig slegið á Tjörn í Svarfaðardal, þar hefur verið mælt frá 1969.

Á Grímsstöðum á Fjöllum hinn 11. desember 2012. Bragi Benediktsson, eftirlitsmaður, við hitamælaskýlið. Úrkomumælir í baksýn en þarna er hálfs meters jafnfallinn snjór sem er óvenjumikið. Ljósmynd: Sighvatur K. Pálsson.

Sólskinsstundir

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 33 og er það um 5 stundum færri en í meðalári. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 8 og er það 6 stundum minna en í meðalári.

Snjólag

Óvenju snjóþungt var um landið norðanvert. Á Akureyri var alhvítt alla daga mánaðarins og hefur það ekki gerst þar í nóvember síðan 1969. Alhvítt var 29 daga í nóvember 2010. Í Reykjavík voru 4 alhvítir dagar en þrjá þeirra var aðeins grátt í rót, meðalsnjódýpt alhvítu dagana var aðeins 1 cm. Í Reykjavík er að meðaltali alhvítt 6 daga í nóvember og meðalsnjódýpt þá 6 cm.

Vindhraði og loftþrýstingur

Vindhraði var um það bil 0,6 m/s meiri en í meðalári, sá mesti í nóvember síðan 2006. Óvenjumikið norðanveður gerði fyrstu daga mánaðarins með töluverðu tjóni víða á landinu. Veðrið stóð linnulítið í hátt á fjórða sólarhring.

Loftþrýstingur var lægri en í meðalári, í Reykjavík var hann 5,9 hPa undir meðallaginu 1961 til 1990. Hæsti loftþrýstingur í mánuðinum mældist á Egilsstaðaflugvelli þann 27.,1029,4 hPa, en lægstur mældist hann á Stórhöfða í Vestmannaeyjum þann 8., 960,5 hPa.

Fyrstu 11 mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu 11 mánuði ársins er 5,9 stig, hiti hefur á sama tímabili aðeins 10 sinnum verið hærri frá því að mælingar hófust (1871). Í Stykkishólmi er meðalhitinn það sem af er árinu 5,4 stig og er tímabilið þar í 7. hlýjasta sætinu (frá 1846). Á Akureyri er það í 15. hlýjasta sæti (frá 1882).

Úrkoma í Reykjavík er þegar komin um 50 mm fram úr meðalársúrkomu og um 40 mm á Akureyri.

Ís á Krókatjörn við Nesjavallaleið kl. 15 hinn 19. nóvember 2012. Ljósmynd: Gunnar Sigurðsson.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica