Fréttir
Veðurfregnatíminn kl. 12.40 hefur að mestu verið endurtekning á spám sem lesnar eru kl. 10.03 og verður sá tími óbreyttur.

Breytt fyrirkomulag á veðurfregnum í hádegisútvarpi Rásar 1 á RÚV

30.11.2020

Á morgun, 1. desember, hefst nýr fréttaskýringaþáttur, Hádegið, á Rás 1 hjá RÚV. Lestur veðurfregna frá Veðurstofunni kl. 12.40 heyrir þá sögunni til. Sá veðurfregnatími hefur að mestu verið endurtekning á spám sem lesnar eru kl. 10.03 og verður sá tími óbreyttur. Veðurspá og viðvaranir verða engu að síður áfram hluti af hefðbundnum hádegisfréttatíma kl. 12.20 og með nýja þættinum á Rás 1 sjáum við fram á áframhaldandi gott samstarf við RÚV um miðlun hverskonar upplýsinga frá Veðurstofunni.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica