Fréttir

Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum

Ekki er talin snjóflóðahætta í byggð eins og er en fylgst er með aðstæðum

25.1.2021

Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á Austfjörðum. Um 1 km breitt flekaflóð féll í Hólmgerðarfjalli innan við Oddsskarð í dag þegar sól tók að skína á hlíðarnar. Annað stórt flóð sást í morgun í Harðskafa og fleiri flóð hafa fallið á Austfjörðum síðasta sólarhring. Mikill nýr snjór hefur bæst við síðustu daga í norðlægum áttum og er snjórinn greinilega mjög óstöðugur.

Veður hefur gengið mikið niður og ekki er búist við mikilli snjósöfnun til viðbótar en gert er ráð fyrir dimmum éljum fram eftir kvöldi. Í nótt og á morgun, þriðjudag, er spáð úrkomulitlu veðri. Vegna þess hve snjórinn er óstöðugur eru ennþá líkur á að stór flóð geti fallið. Ekki er talin snjóflóðahætta í byggð eins og er en fylgst er með aðstæðum.

Fréttin hefur verið uppfærð. Áður var flóðið í Hólmgerðarfjalli metið 1,5 km breitt. En við nánari mælingar reyndist það 1 km.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica