Þrjár vísindanefndir meta þekkingu á loftslagsmálum á Íslandi
Nýtt fyrirkomulag við mat á vísindalegri þekkingu á loftslagsmálum var kynnt á opnum fundi í Norræna húsinu 3. nóvember. Í fyrsta sinn verður unnin sérstök samantekt um mótvægisaðgerðir í íslensku samhengi.
Þrjár vísindanefndir munu draga saman og meta vísindalega þekkingu á loftslagsbreytingum á Íslandi, áhrifum þeirra, aðlögun og aðgerðum til að draga úr losun og auka bindingu. Niðurstöðurnar eiga að nýtast stjórnvöldum á öllum stjórnsýslustigum, fyrirtækjum og almenningi. Áætlað er að skýrslur allra þriggja nefndanna liggi fyrir í lok árs 2029.
Landsnefnd um vísindastarf vegna loftslagsbreytinga samhæfir starfið. Hún stóð að fundinum í samstarfi við Veðurstofu Íslands og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands.
Horfa á upptöku af fundinum „Loftslagsmál í ljósi vísindanna“
Þrjár vísindanefndir að fyrirmynd IPCC
Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands og formaður landsnefndar um vísindastarf vegna loftslagsbreytinga, kynnti hlutverk og skipan landsnefndarinnar og nýtt fyrirkomulag við samantekt og mat á vísindalegri þekkingu. Í landsnefndinni sitja fulltrúar með þekkingu og reynslu af rannsóknum og stjórnsýslu í loftslagsmálum.
Vinnan skiptist milli þriggja vísindanefnda að fyrirmynd milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, IPCC. Formenn þeirra hafa þegar verið skipaðir:
- Vinnuhópur 1 fjallar um eðlisvísindalegan grundvöll loftslagsbreytinga. Formaður er Halldór Björnsson hjá Veðurstofu Íslands.
- Vinnuhópur 2 fjallar um áhrif loftslagsbreytinga, aðlögun og viðkvæmni. Formaður er Hafdís Hanna Ægisdóttir hjá Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands.
- Vinnuhópur 3, sem nú hefur fengið nafnið vísindanefnd um mótvægisaðgerðir, fjallar um samdrátt í losun og aukna bindingu. Formaður er Brynhildur Davíðsdóttir hjá Háskóla Íslands.
Landsnefndin samhæfir og styður starfið og leggur áherslu á samstarf vísindanefndanna.
Vinna við mat á mótvægisaðgerðum hafin
Fulltrúar vinnuhóps 3, vísindanefndar um mótvægisaðgerðir, hafa þegar verið skipaðir og vinna nefndarinnar er hafin. Sambærileg samantekt hefur ekki áður verið gerð í íslensku samhengi og taldi landsnefnd mikilvægt að hún hæfist sem fyrst.
Fulltrúar vinnuhóps 3, vísindanefndar um mótvægisaðgerðir. Frá vinstri: Sveinn Agnarsson, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands; Áróra Árnadóttir, sérfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun; Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands; Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands; Bryndís Marteinsdóttir, sviðsstjóri rannsókna, vöktunar og árangurs hjá Landi og skógi; og Hlynur Stefánsson, prófessor í verkfræði við Háskólann í Reykjavík.
Brynhildur Davíðsdóttir kynnti áherslur nefndarinnar og næstu skref. Meðal viðfangsefna eru árangur aðgerða innan og milli geira, áhrif stjórnvaldsaðgerða og hvata og tengsl mótvægisaðgerða við réttlæti, lífsgæði, líffræðilega fjölbreytni og aðlögun. Markmiðið er að niðurstöðurnar nýtist stjórnvöldum á öllum stjórnsýslustigum, fyrirtækjum og almenningi.
Byggt á fyrirliggjandi rannsóknum
Vinna vísindanefndanna byggir á mati á fyrirliggjandi rannsóknum, gögnum og greiningum innanlands og erlendis, ásamt niðurstöðum IPCC og samtali við sérfræðinga. Nefndirnar standa ekki sjálfar fyrir nýjum rannsóknum heldur draga saman og meta stöðu þekkingar.
Vísindaskýrslur um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi eiga sér langa sögu. Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri á skrifstofu loftslagsmála í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, rakti í opnunarávarpi sínu hvernig vinna við samantekt loftslagsvísinda á Íslandi hefur þróast í gegnum árin.
Fyrsta skýrslan kom út árið 2000. Síðan hafa þrjár skýrslur bæst við, sú síðasta árið 2023. Með henni var umfang matsins víkkað og fleiri fræðasvið tekin inn í matið. Magnús lagði áherslu á að stuðningur við loftslagsvísindi væri mikilvægur þáttur í stefnu þjóðar og sérstaklega brýnn nú þegar vísindin eiga undir högg að sækja.
Kallað eftir þekkingu og samstarfi
Vísindanefnd um mótvægisaðgerðir áformar málstofur vorið 2027 þar sem leitað verður til fræða- og sérfræðingasamfélagsins til að afla þekkingar og ræða viðfangsefni nefndarinnar.
Á fundinum var sérstaklega kallað eftir samstarfi við hagaðila og framlagi þeirra til starfsins. Óskað var eftir rannsóknum, gögnum og greiningum, þátttöku í samtali um niðurstöður, óvissu og þekkingareyður og ábendingum um fleiri sérfræðinga.
Stofnanir og fyrirtæki voru jafnframt hvött til að veita sérfræðingum sínum tíma og svigrúm til þátttöku. Áhugasamir geta haft samband við formenn vinnuhópanna eða skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands.
Horfa á upptöku af fundinum „Loftslagsmál í ljósi vísindanna“



