Fréttir

Tíðarfar í ágúst 2026

Stutt yfirlit

3.9.2026


Ágústmánuður var tiltölulega kaldur. Það var úrkomusamt á norðan- og vestanverðu landinu en þurrara á suður- og austurhluta landsins. Norðan- og norðvestlægar áttir voru tíðastar í mánuðinum, en vindur var hægur og veður að mestu gott.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík mældist 10,6 stig í ágúst. Það er 0,5 stigum undir meðallagi áranna 1990 til 2020 en 0,6 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn í ágúst 9,8 stig sem er 1,0 stigi undir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 1,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhiti mánaðarins 9,8 stig og 10,2 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhiti á landsvísu var 9,5 stig sem er 0,6 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í töflu 1.

Tafla 1: Meðalhiti og vik (°C) í ágúst 2026.

stöð meðalhiti (°C) vik m.v. 1991 til 2020 (°C) röð af vik m.v. 2016 til 2025 (°C)
Reykjavík 10,6 -0,5 71 156 -0,6
Stykkishólmur 9,8 -0,7 86 til 89 181 -0,8
Bolungarvík 8,9 -0,7 80 129 -1,0
Grímsey 7,8 -1,0 86 til 87 153 -1,2
Akureyri 9,8 -1,0 80 145 -1,1
Egilsstaðir 9,9 -0,4 36 72 -0,5
Dalatangi 9,2 0,1 27 89 -0,3
Teigarhorn 9,3 -0,3 52 154 -0,5
Höfn í Hornaf. 10,2


-0,4
Stórhöfði 10,5 0,1 34 150 0,1
Hveravellir 6,7 -0,5 33 62 -0,7
Árnes 10,4 -0,5 69 147 -0,6

Hiti var undir meðallagi áranna 1991 til 2020 og síðustu tíu ára um nær allt land. Að tiltölu var kaldast á Norður- og Norðvesturlandi en hlýrra á Suður- og Austurlandi (sjá mynd 1). Neikvætt hitavik var mest -1,4 stig á Möðruvöllum í Hörgárdal en jákvætt hitavitavik var mest 0,2 stig á Laufbala.


Mynd 1: Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í ágúst miðað við síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur 12,0 stig á Steinum undir Eyjafjöllum. Lægstur var meðalhitinn 4,5 stig á Þverfjalli. Í byggð var meðalhitinn lægstur 7,8 stig í Svartárkoti og í Grímsey.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 22,3 stig á Torfum í Eyjafirði þ. 10. Mest frost í mánuðinum mældist -4,1 stig í Árnesi þ. 28.

Á mynd 2 má sjá landsmeðalhita hvers dags það sem af er ári 2026, sem vik frá meðalhita síðustu tíu ára. Hiti var undir meðallagi flesta daga mánaðarins, nema dagana 10. til 13. og 21. til 23.



Mynd 2: Landsmeðalhiti hvers dags það sem af er ári 2026, miðað við meðallandsmeðalhita hvers dags síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Úrkoma

Úrkoma var yfir meðallagi á norðan- og vestanverðu landinu en undir meðallagi á Suður- og Austurlandi.  

Í Reykjavík mældist mánaðarúrkoman 85,3 mm sem er 32% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældust 81,2 mm sem er 60% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðarins 55,0 mm sem er 33% umfram meðalúrkomu. Á Dalatanga mældist mánaðarúrkoman 100,0 mm sem er 76% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 8 í Reykjavík, eða þremur færri en í meðalári. Í Stykkishólmi voru slíkir dagar líka 8 talsins, sem er tveimur færri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 8 daga sem eru jafnmargir og í meðalári. Á Dalatanga voru úrkomudagarnir 10 sem eru jafnmargir og að meðaltali árin 1991 til 2020.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 197,1 sem er 32,3 stundum yfir meðallagi. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 193,8 sem er 55,8 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Vindur

Vindur var tiltölulega hægur í ágúst og veður gott. Vindur á landsvísu var 0,3 m/s undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Norðan- og norðvestanáttir voru tíðastar í mánuðinum. Hvassast var þ. 8. (NA-átt) og þ. 22. (SV-átt).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1012,0 hPa sem er 4,4 hPa yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Hæstur mældist loftþrýstingurinn 1024,3 hPa í Bolungarvík þ. 26. Lægsti loftþrýstingur mánaðarins mældist einnig í Bolungarvík, 996,6 hPa þ. 22.

Fyrstu átta mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu átta mánuði ársins mældist 5,4 stig sem er 0,3 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020, en 0,5 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhiti mánaðanna átta raðast í 49. hlýjasta sæti á lista 156 ára. Á Akureyri mældist meðalhitinn 5,0 stig sem er 0,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,3 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Þar raðast hitinn í 31. til 33. hlýjasta sæti á lista 146 ára.

Heildarúrkoma fyrstu átta mánuði ársins mældist 560,1 mm í Reykjavík sem er um 5% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma janúar til ágúst 304,0 mm sem er í meðallagi.

Sumarið það sem af er (júní til ágúst)

Meðalhiti sumarsins á landsvísu var 10,0 stig sem er 0,3 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Júní og júlí voru hlýir á meðan ágúst var kaldur. Sumarið var að tiltölu hlýjast á Austurlandi en kaldara á vestanverðu landinu. Júlí var óvenjulega hlýr og þurr á Austurlandi og þar endaði mánuðurinn víða á meðal hlýjustu og þurrustu júlímánaða sem vitað er um. Á meðan var mjög úrkomusamt og talsvert kaldara á Suðvestur- og Vesturlandi.

Sumarið í heild var úrkomusamt á vestanverðu landinu og í Reykjavík var úrkoma yfir meðallagi alla sumarmánuðina. Langmest rigndi í júlí þegar úrkoman var um tvöfalt meiri en í meðaljúlímánuði. Þrátt fyrir úrkomusama tíð á vesturhluta landsins voru líka þurrir og sólríkir dagar inn á milli og var fjöldi sólskinsstunda sumarsins í meðallagi í Reykjavík.

Meðalhiti sumarsins í Reykjavík var 10,7 stig sem er 0,2 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhiti sumarmánaðanna þriggja er í 46. til 47. sæti á lista 156 ára. Á Akureyri var meðalhitinn 11,0 stig sem er 0,5 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhiti sumarsins þar raðast í 25. til 26. sæti á lista 146 ára. Meðalhiti sumarsins var 10,1 stig í Stykkishólmi sem er jafnt meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Egilsstöðum var meðalhiti sumarsins 10,8 stig (0,8 stigum yfir meðallagi). Meðalhiti sumarsins þar raðast í 11. hlýjasta sæti á lista 72 ára. Á Dalatanga var meðalhiti sumarmánaðanna þriggja 9,3 stig (1,1 stigi yfir meðallagi) og er sumarið þar það næsthlýjasta á lista 87 ára (það var hlýrra sumarið 2021). Á Stórhöfða var meðalhitinn 9,9 stig (0,1 stigi yfir meðallagi).  

Úrkoma í Reykjavík mældist 246,2 mm sem er um 55% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þetta var 6. úrkomusamasta sumarið í Reykjavík frá upphafi mælinga. Í Stykkishólmi mældist heildarúrkoma sumarsins 190,4 mm sem er um 65% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist úrkoma sumarmánaðanna þriggja 101,8 mm sem er 5% umfram meðallag. Þar var úrkoma vel undir meðallagi í júlí en yfir meðallagi í júní og ágúst. Á Dalatanga mældist sumarúrkoman 276,2 mm sem er 80% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þar var óvenjuþurrt í júlí þegar úrkoman mældist einungis 5,3 mm.

Sólskinsstundir mældust 539,9 í Reykjavík sem er rétt yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 eða 2,4 stundum yfir. Sumarið var sólríkt á Akureyri. Þar mældust sólskinsstundir sumarsins 564,9 sem er 84,5 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Skjöl fyrir ágúst

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í ágúst 2026 (textaskjal).

Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica