Fréttir

Tíðarfar í febrúar 2026

Stutt yfirlit

3.3.2026


Febrúar var kaldur, hægviðrasamur og illviðri óvenju fátíð miðað við árstíma. Austlægar áttir voru ríkjandi nær allan mánuðinn og það var þurrt í öllum landshlutum, nema á Austurlandi þar sem úrkoma var í kringum meðallag. Óvenjuþurrt og sólríkt var á sunnan- og vestanverðu landinu. Snjór var tiltölulega lítill á landinu öllu og snjólaust var nær allan mánuðinn á suðvesturhluta landsins. Tiltölulega einsleitt veðurlag breyttist í lok mánaðar með úrkomu og snjó suðvestanlands og rysjóttara veðri.

Hiti

Meðalhiti mánaðarins mældist -0,8 stig í Reykjavík. Það er 1,3 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 1,8 stigum undir meðallagi undanfarins áratugar. Á Akureyri var meðalhitinn -2,9 stig, eða 2,1 stigi undir meðallagi 1991 til 2020 og 2,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn í febrúar var -1,8 stig í Stykkishólmi og 0,4 stig á Höfn í Hornafirði. Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í töflu 1.

Tafla 1: Meðalhiti og vik (°C) í febrúar 2026.

stöð meðalhiti (°C) vik m.v. 1991 til 2020 (°C) röð af vik m.v. 2016 til 2025 (°C)
Reykjavík -0,8 -1,3 92 til 93 156 -1,8
Stykkishólmur -1,8 -1,7 112 181 -2,1
Bolungarvík -2,1 -1,5 83 129 -2,3
Grímsey -0,6 -0,5 64 153 -1,3
Akureyri -2,9 -2,1 96 145 -2,4
Egilsstaðir -2,3 -1,3 45 72 -1,7
Dalatangi 0,6 -0,7 50 88 -1,4
Teigarhorn 0,0 -0,8 79 154 -1,3
Höfn í Hornaf. 0,4


-1,2
Stórhöfði 1,7 -0,4 68 149 -0,8
Hveravellir -8,6 -3,2 55 61 -3,6
Árnes -1,9 -1,0 83 146 -1,6

Febrúar var kaldur og hitavik miðað við síðustu tíu ár voru neikvæð á öllum veðurstöðvum landsins. Að tiltölu var kaldast á Norðvesturlandi og á nokkrum sjálfvirkum veðurstöðvum á svæðinu mældist lægsti meðalhiti sem mælst hefur í febrúar síðan þær voru settar upp. Þar var neikvæða hitavikið mest -5,2 stig á Sauðárkróksflugvelli. Minnsta hitavikið mældist -0,8 stig á Stórhöfða í Vestmannaeyjum (sjá mynd 1).


Mynd 1: Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í febrúar miðað við síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur 2,5 stig í Surtsey, en lægstur -9,2 stig í Sátu norðan Hofsjökuls. Lægsti meðalhiti í byggð mældist -7,3 stig í Svartárkoti.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 9,9 stig á Steinum undir Eyjafjöllum þ. 2. og við Lómagnúp þ. 24. Lægstur mældist hitinn -24,2 stig á Löngumýri í Skagafirði þ. 18.

Á mynd 2 má sjá landsmeðalhita hvers dags það sem af er ári 2026, sem vik frá meðalhita undanfarins áratugar. Þar sést að tiltölulega hlýtt var í upphafi mánaðar en það var talsvert kaldara en í meðalári flesta daga það sem eftir lifði mánaðar.



Mynd 2: Landsmeðalhiti hvers dags það sem af er ári 2026, miðað við meðallandsmeðalhita hvers dags síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Úrkoma

Febrúar var þurr á öllu landinu, nema á Austurlandi þar sem úrkoma var í kringum meðallag.

Það var óvenjulega þurrt á Suður- og Vesturlandi þar til í lok mánaðarins. Þann 23. lauk nokkuð langri þurrkatíð sem hafði meira og minna staðið yfir frá áramótum, en janúar var einnig mjög þurr í þessum landshlutum. Vegna þurrviðris og snjóleysis var mikil svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu, gróður og jarðvegur var orðinn mjög þurr og gróðureldar kviknuðu víða innan borgarmarkanna þ. 22. Þá brann m.a. töluvert svæði í Vatnsendahlíð í Kópavogi.

Í Reykjavík mældist mánaðarúrkoman 33,4 mm sem er aðeins 37% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Úrkoman hefur þó oft mælst minni í Reykjavík í febrúarmánuði, síðast í febrúar 2014. Úrkoma í Stykkishólmi mældist 38,1 mm, sem er 46% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Það var einnig þurrt á Akureyri. Þar mældist úrkoman í febrúar aðeins 18,3 mm sem er 35% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þar hefur febrúarúrkoman ekki verið eins lítil síðan 2005. Á Dalatanga mældist 113,4 mm sem er rétt undir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Fjöldi úrkomudaga var líkt og í janúar langt undir meðallagi í flestum landshlutum nema á Austurlandi. Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 5 í Reykjavík sem er 9 færri en í meðalári. Í Stykkishólmi voru slíkir dagar einnig 5 sem er 8 færri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 4 daga sem er 6 færri en venjulega. Á Dalatanga voru úrkomudagarnir 16, þremur fleiri en að meðaltali 1991 til 2020.

Snjór

Febrúar var tiltölulega snjóléttur. Óvenjusnjólétt var fram eftir mánuði á sunnan- og vestanverðu landinu. Það snjóaði þó talsvert við suður- og suðausturströndina þ. 18 og hríðarveður þá og dagana á eftir olli samgöngutruflunum á þeim slóðum. Snjódýptin mældist mest 50 cm á Hólmum í Landeyjum að morgni dags þ. 19. Einnig var talsverður snjór í Vestmannaeyjum.

Það var alautt bæði í Reykjavík og í Stykkishólmi þar til í lok mánaðar. Alhvítir dagar í Reykjavík voru 3 í febrúar, níu færri en að meðaltali árin 1991 til 2020. Í Stykkishólmi voru 2 alhvítir dagar, 10 færri en í meðalári. Á Akureyri voru 17 alhvítir dagar í febrúar, einum fleiri en að meðaltali árin 1991 til 2020. Alhvítir dagar voru 15 á Dalatanga, einum fleiri en í meðalári.

Sólskinsstundafjöldi

Febrúar var sólríkur, þá sérstaklega á suðvestanverðu landinu. Í Reykjavík mældust 109,1 sólskinsstund í mánuðinum. Það er 47,5 stundum yfir meðallagi 1991 til 2020. Fimm sinnum hafa mælst fleiri sólskinsstundir í febrúarmánuði í Reykjavík frá upphafi mælinga árið 1911. Einnig var sólríkt á Akureyri, þar mældust 55,7 sólskinsstundir sem er 21,8 stundum yfir meðallagi.

Vindur

Febrúarmánuður var óvenjulega hægviðrasamur og óveður fá miðað við árstíma. Meðalvindur á landsvísu var um 1,2 m/s hægari en að jafnaði árin 1991 til 2020 og á fjölda sjálfvirkra veðurstöðva mældist lægsti febrúarmeðalvindur sem mælst hefur á þeim stöðvum. Austlægar og norðaustlægar áttir voru ríkjandi nær allan mánuðinn, eða þar til þ. 23.

Hvassast var þ. 26 (SSA-átt).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur mánaðarins var 1003,3 hPa í Reykjavík, eða 4,5 hPa yfir meðallagi febrúarmánaða árin 1991 til 2020.

Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1021,9 hPa í Svartárkoti þ. 17. Loftþrýstingur mældist lægstur 966,4 hPa á Hellu þ. 26.

Fyrstu tveir mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu tvo mánuði ársins var 0,0 stig, eða 0,6 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhiti fyrstu tveggja mánaða ársins í Reykjavík raðast í 63. hlýjasta sæti á lista 156 ára. Á Akureyri var meðalhiti janúar og febrúar -2,0 stig. Það er 1,4 stigum undir meðallagi sama tímabils árin 1991 til 2020. Meðalhitinn á Akureyri það sem af er ári raðast í 89. sæti á lista 146 ára.

Mjög þurrt hefur verið í Reykjavík það sem af er ári. Þar mældist heildarúrkoma janúar og febrúar 59,9 mm sem er um 30% af meðalheildarúrkomu mánaðanna tveggja árin 1991 til 2020. Aðeins þrisvar sinnum hefur mælst minni úrkoma fyrstu tvo mánuði ársins í Reykjavík og ekki hefur verið eins þurrt síðan árið 1977. Á Akureyri mældust 46,8 mm fyrstu tvo mánuði ársins, eða um 40 % meðallags 1991 til 2020.

Skjöl fyrir febrúar

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í febrúar 2026 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.







Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica