Fréttir

Tíðarfar í júlí 2026

Stutt yfirlit

1.8.2026


Veðurfar júlímánaðar var mjög ólíkt á milli landshluta. Suðvestlægar áttir voru ríkjandi langt fram eftir mánuðinum. Það var óvenjulega hlýtt og þurrt á austanverðu landinu og þar endaði mánuðurinn víða á meðal hlýjustu og þurrustu júlímánaða sem vitað er um. Á meðan var mjög úrkomusamt og talsvert kaldara á Suðvestur- og Vesturlandi. Í þeim landshlutum raðar mánuðurinn sér á meðal blautustu júlímánaða frá upphafi mælinga. Veðurlag breyttist í lok mánaðar þegar norðan- og norðvestanáttir tóku yfir. Þá kólnaði á Norður- og Austurlandi og þurrara og sólríkara veður tók við sunnan- og vestanlands.  

Hiti

Júlímánuður var hlýr á norðan- og austanverðu landinu, á meðan kaldara var suðvestan- og vestanlands. Óvenju hlýtt á Austurlandi og þar var mánuðurinn víða sá hlýjasti eða á meðal hlýjustu júlímánaða sem vitað er um. Mánuðurinn var hlýjasti júlímánuðurinn frá upphafi mælinga á Teigarhorni (af 154 árum) og á Dalatanga (af 88 árum). Á Teigarhorni var meðalhiti júlímánaðar 11,6 stig (fyrra met 11,0 stig í júlí 1926) og á Dalatanga 11,3 stig (fyrra met 10,4 stig í júlí 2021).

Þetta var einnig hlýjasti júlímánuður á flestum sjálfvirku veðurstöðvunum úti á fjörðunum eins og í Neskaupstað (13,3 stig), Seyðisfirði (13,2 stig), Kollaleiru í Reyðarfirði (12,6 stig) og Eskifirði (12,3 stig). Þessar stöðvar hafa flestar mælt í nærri 30 ár. Á Egilsstöðum mældist meðalhitinn í júlí 13,2 stig sem er 4. hlýjasti júlímánuðurinn þar frá upphafi mælinga. Þar var töluvert hlýrra í fyrra þegar júlíhitinn mældist 14,2 stig.

Meðalhiti í Reykjavík mældist 10,9 stig í júlí. Það er 0,8 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,7 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Júlímánuður var hlýr á Akureyri. Þar var meðalhitinn 13,3 stig, sem er 2,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020, en 1,5 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Þetta er fjórði hlýjasti júlímánuður þar frá upphafi mælinga, hlýrra var í júlí 2021 (14,3 stig), 2025 (13,5) og álíka hlýtt í júlí 1933 (13,3). Í Stykkishólmi var meðalhiti mánaðarins 11,0 stig og 11,4 stig á Höfn í Hornafirði. 

Meðalhiti á landsvísu var 11,2 stig sem er 0,8 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í töflu 1.

Tafla 1: Meðalhiti og vik (°C) í júlí 2026.

stöð meðalhiti (°C) vik m.v. 1991 til 2020 (°C) röð af vik m.v. 2016 til 2025 (°C)
Reykjavík 10,9 -0,8 86 til 87 156 -0,7
Stykkishólmur 11,0 0,3 42 181 0,1
Bolungarvík 11,4 1,5 8 129 1,3
Grímsey 9,5 1,1 16 153 0,7
Akureyri 13,3 2,1 4 145 1,5
Egilsstaðir 13,2 2,4 4 72 1,9
Dalatangi 11,3 2,6 1 88 2,0
Teigarhorn 11,6 2,2 1 154 1,7
Höfn í Hornaf. 11,4


0,4
Stórhöfði 10,2 -0,2 69 til 71 150 -0,2
Hveravellir 7,4 -0,9 39 62 -1,1
Árnes 10,8 -0,9 105 til 106 147 -1,1


Hitavik miðað við síðustu tíu ár voru jákvæð á Suðaustur- og Austurlandi, Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum, en neikvæð á suðvestan- og vestanverðu landinu (sjá mynd 1). Að tiltölu var hlýjast á Austfjörðum, en kaldast á miðhálendinu. Jákvætt hitavik var mest 2,7 stig í Neskaupstað en neikvætt hitavik var mest -1,1 stig á Hveravöllum.



Mynd 1: Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í júlí miðað við síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur 13,3 stig í Neskaupstað. Lægstur var meðalhitinn 6,2 stig á Gagnheiði. Á láglendi var meðalhitinn lægstur í Seley 9,3 stig.

Hlýir dagar voru margir á Austurlandi í mánuðinum. Á Egilsstöðum mældist hiti 20 stig eða meiri 15 daga mánaðarins, og þar af 14 daga samfellt frá 11. til 23. júlí. Það er mjög sjaldgæft að slíkt gerist hér á landi á einni og sömu stöðinni svo marga daga í röð. Á þessu tímabili voru ný hámarkshitamet fyrir júlí sett á nokkrum veðurstöðvum á Austur- og Suðausturlandi. Hæsti hiti mánaðarins mældist 28,0 stig á Seyðisfirði þ. 15.

Mest frost í mánuðinum mældist -2,1 stig á Grímsstöðum á Fjöllum þ. 6.

Á mynd 2 má sjá landsmeðalhita hvers dags það sem af er ári 2026, sem vik frá meðalhita síðustu tíu ára. Hiti var vel yfir meðallagi dagana 11. til 23 þegar hlýindin ríktu á austanverðu landinu, en undir meðallagi í byrjun og lok mánaðar.


Mynd 2: Landsmeðalhiti hvers dags það sem af er ári 2026, miðað við meðallandsmeðalhita hvers dags síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Úrkoma

Mánuðurinn var óvenju þurr á Norðaustur- og Austurlandi en óvenju úrkomusamur á suðvestur- og vesturhluta landsins. Þar var sérstaklega úrkomusamt um miðjan mánuðinn.  Á vestanverðu landinu raðar mánuðurinn sér á meðal blautustu júlímánaða frá upphafi mælinga á meðan júlíúrkoman var með allra minnsta móti á Norðaustur- og Austurlandi.

Í Reykjavík mældist mánaðarúrkoman 102,6 mm sem er um tvöfalt meira en meðalúrkoma í júlí árin 1991 til 2020. Aðeins fjórum sinnum áður hefur mælst eins mikil úrkoma í Reykjavík í júlímánuði, síðast árið 1984. Í Stykkishólmi mældist úrkoman einnig um tvöfalt meiri en venjulega eða 78,9 mm og var sú mesta í júlí síðan 1977.

Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðarins aftur á móti aðeins 8,1 mm sem er 25% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Aðeins einu sinni hefur mælst minni júlíúrkoma á Akureyri en það var í júlí 1929. Á Dalatanga mældust 5,3 mm sem er einungis 5% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þar hefur júlí aldrei verið eins þurr frá upphafi mælinga þar árið 1938.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 16 í Reykjavík, eða sex fleiri en í meðalári. Í Stykkishólmi voru slíkir dagar 13 sem er einnig sex fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 2 daga sem er fimm færri en í meðalári. Á Dalatanga var 1 slíkur úrkomudagur, en þeir eru 10 í meðalári.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 151,8 sem er 31,4 stundum undir meðallagi. Það var sólríkara á Akureyri þar sem mældust 200,1 sólskinsstundir. Það er 47,6 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Vindur

Vindur á landsvísu var 0,8 m/s yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Suðvestlægar áttir voru ríkjandi stóran hluta mánaðarins. Þann 23. breyttist veðurlag og norðan- og norðvestanáttir urðu ríkjandi. Nokkuð hvasst var dagana 11. til 13. (suðvestanátt), þ. 15. (suðvestanátt) og þ. 25. (norðvestanátt).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1013,3 hPa og er það 4,1 hPa yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Hæstur mældist loftþrýstingurinn 1029,0 hPa í Garðabæ, Urriðaholti þ. 17. Lægsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 993,7 hPa á Kambanesi þ. 24.  

Fyrstu sjö mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu sjö mánuði ársins mældist 4,7 stig sem er 0,2 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhiti mánaðanna sjö raðast í 47. hlýjasta sæti á lista 156 ára.  Á Akureyri mældist meðalhitinn 4,3 stig sem er 0,2 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Þar raðast hitinn í 25. til 26. hlýjasta sæti á lista 146 ára.

Heildarúrkoma janúar til júlí mældist 474,8 mm í Reykjavík sem er í meðallagi. Á Akureyri mældist úrkoman 249,0 mm fyrstu sjö mánuði ársins sem er um 95% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.

Skjöl fyrir júlí

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í júlí 2026 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.








Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica