Fréttir

Tíðarfar í júní

Stutt yfirlit

4.7.2022


Tíðarfar var nokkuð hagstætt í júní, vindur var nærri meðallagi og það var hlýtt fram eftir mánuðinum. En það var óvenju kalt á landinu dagana 23. til 27., þá sérstaklega á norðurhluta landsins. Þá daga var hiti vel undir meðallagi og frost mældist víða í byggð.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík í júní var 9,6 stig og er það -0,2 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 en -0,3 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 9,7 stig, 0,1 stigi yfir meðaltali áranna 1991 til 2020, en -0,7 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var hitinn 8,7 stig og 9,9 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

stöð meðalhiti °C vik 1991-2020 °C röð af vik 2012-2021 °C
Reykjavík 9,6 -0,2 56 152 -0,3
Stykkishólmur 8,7 -0,2 57 177 -0,6
Bolungarvík 7,9 -0,2 60 til 61 125 -0,8
Grímsey 6,8 0,2 46 til 47 149 -0,7
Akureyri 9,7 0,1 53 til 54 142 -0,7
Egilsstaðir 9,6 0,7 19 68 0,2
Dalatangi 7,4 0,7 14 til 15 84 0,3
Teigarhorn 8,8 1,1 8 150 0,8
Höfn í Hornaf. 9,9


0,6
Stórhöfði 8,9 0,2 45 146 0,3
Hveravellir 5,5 -0,7 31 58 -1,2
Árnes 9,8 -0,2 60 143 -0,3

Meðalhiti og vik (°C) í júní 2022

Júní var nokkuð hlýr framan af. En óvenju kalt var á landinu dagana 23. til 27., þá sérstaklega á norðurhluta landsins. Hiti var vel undir meðallagi og frost mældist víða í byggð. Kaldir dagar sem þessir eru ekki algengir í síðustu viku júnímánuðar.

Mánuðurinn var að tiltölu hlýjastur á Suðausturlandi, Austfjörðum og við suðurströndina þar sem meðalhitinn var yfir meðaltali síðustu tíu ára. Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 0,8 stig á Kvískerjum og Teigarhorni. Í öðrum landshlutum var hiti undir meðaltali síðustu tíu ára. Að tiltölu var kaldast á Norðurlandi vestra og á miðhálendinu. Neikvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest -1,4 stig á Nautabúi í Skagafirði.


Hitavik sjálfvirkra stöðva í júní miðað við síðustu tíu ár (2012-2021).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Öræfum, 11,0 stig en lægstur 2,8 stig á Þverfjalli. Á láglendi var meðalhitinn lægstur 5,2 stig á Fonti á Langanesi.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 24,4 stig á Egilsstaðaflugvelli og Hallormsstað þ. 19. Mest frost í mánuðinum mældist -4,6 stig á Þingvöllum þ. 5.

Úrkoma

Úrkoma í Reykjavík mældist 66,0 mm sem er 52% umfram meðallag áranna 1991 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 19,9 mm sem er 96% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 41,9 mm og 76,0 mm á Höfn í Hornafirði.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 13, fjórum fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoma 1,0 mm eða meiri 5 daga mánaðarins, einum fleiri en í meðalári.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 201,2 í júní sem er 11,7 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar vel undir meðallagi, eða 148,1, sem er 41,8 stundum undir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Vindur

Vindur á landsvísu var 0,1 m/s yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Suðlægar áttir voru tíðari fyrri hluta mánaðar, en norðlægar áttir voru ríkjandi í kuldakastinu í lok mánaðar.

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1007,5 hPa og er það -5,1 hPa undir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1024,5 hPa í Grindavík þ. 4. Lægstur mældist þrýstingurinn 983,6 hPa á Raufarhöfn þ. 22.

Fyrstu sex mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu sex mánuði ársins var 4,1 stig sem er 0,4 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020, en jafn meðalhita síðustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 25. til 26. sæti á lista 152 ára. Á Akureyri var meðalhiti mánaðanna sex 3,3 stig sem er 0,4 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020, en jafn meðalhita síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 20.sæti á lista 142 ára.

Það hefur verið mjög úrkomusamt það sem af er ári í Reykjavík. Heildarúrkoma mánaðanna sex var 646,9 mm sem er um 55% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Heildarúrkoman hefur aðeins einu sinni mælst meiri í Reykjavík yfir þessa sex mánuði en nú, en það var árið 1921. Á Akureyri hefur heildarúrkoma mánaðanna sex mælst 268,7 mm sem er um 15% umfram meðallag.

Skjöl fyrir júní

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í júní 2022 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur ákveðnum veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.







Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica