Tíðarfar í júní 2026
Stutt yfirlit
Tíðarfar í júní var tiltölulega gott. Á landsvísu var meðalhiti mánaðarins 0,6 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Hlýjast var á vestanverðu landinu en kaldara austanlands þar sem hiti var undir meðallagi síðustu tíu ára. Júní var úrkomusamur á Norðaustur- og Austurlandi, en úrkoma var nær meðallagi eða undir því á vestanverðu landinu. Loftþrýstingur var óvenjulágur í mánuðinum.
Hiti
Meðalhiti júnímánaðar var 10,6 stig í Reykjavík. Það er 0,8 stigum yfir meðallagi júní árin 1991 til 2020 og 1,1 stigi yfir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 10,1 stig, eða 0,5 stigum yfir meðallagi 1991 til 2020 en nærri meðallagi undanfarins áratugar. Meðalhitinn mældist 9,4 stig í Stykkishólmi og 9,6 stig á Höfn í Hornafirði. Meðalhiti í byggðum landsins var 9,2 stig sem er 0,6 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í töflu 1.
Tafla 1: Meðalhiti og vik (°C) í júní 2026.
| stöð | meðalhiti °C | vik m.v. 1991 til 2020 (°C) | röð | af | vik m.v. 2016 til 2025 (°C) |
| Reykjavík | 10,6 | 0,8 | 13 | 156 | 1,1 |
| Stykkishólmur | 9,4 | 0,5 | 25 til 26 | 181 | 0,5 |
| Bolungarvík | 8,3 | 0,2 | 44 | 129 | 0,1 |
| Grímsey | 7,2 | 0,7 | 30 | 153 | 0,2 |
| Akureyri | 10,1 | 0,5 | 42 | 145 | 0,0 |
| Egilsstaðir | 9,3 | 0,4 | 24 | 72 | -0,2 |
| Dalatangi | 7,4 | 0,7 | 15 | 88 | 0,2 |
| Teigarhorn | 8,3 | 0,6 | 23 | 154 | 0,1 |
| Höfn í Hornaf. | 9,6 | 0,3 | |||
| Stórhöfði | 9,0 | 0,4 | 35 | 149 | 0,5 |
| Hveravellir | 6,6 | 0,5 | 14 til 15 | 61 | 0,5 |
| Árnes | 10,4 | 0,4 | 27 til 29 | 146 | 0,6 |
Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 1,5 stig í Grindavík og mesta neikvæða hitavikið var -0,9 stig á Eyjabökkum.

Mynd 1: Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í júní miðað við síðustu tíu ár (2016 til 2025).
Meðalhiti júnímánaðar mældist hæstur 11,2 stig í Hljómskálagarði í Reykjavík en lægstur 2,6 stig á Gagnheiði. Lægsti meðalhitinn í byggð mældist 6,9 stig á Raufarhöfn.
Hæsti hiti mánaðarins mældist 21,0 stig á Egilsstaðaflugvelli þ. 30. Lægstur mældist hitinn -3,3 stig á Gagnheiði þ. 17. Í byggð mældist lægsti hiti mánaðarins -1,6 stig á Þingvöllum þ. 21.
Á mynd 2 má sjá landsmeðalhita hvers dags það sem af er ári 2026, sem vik frá meðalhita síðustu tíu ára. Þar má sjá að landsmeðalhitinn var undir meðallagi í nokkra daga eftir miðjan mánuð en var annars yfir meðallagi í mánuðinum.

Mynd 2: Landsmeðalhiti hvers dags það sem af er ári 2026, miðað við síðustu tíu ár (2016 til 2025).
Úrkoma
Júní var úrkomusamur í norðausturfjórðungi landsins en nær meðallagi eða undir því víðast hvar á vesturhluta landsins. Fjöldi úrkomudaga var þó yfir meðallagi um allt land.
Í Reykjavík mældist mánaðarúrkoman 58,3 mm sem er um 35% yfir meðallagi 1991 til 2020 en nærri meðallagi síðustu tíu ára. Mánaðarúrkoman mældist 38,7 mm á Akureyri, eða 87% umfram meðallag 1991 til 2020 og 26% umfram meðallag undanfarins áratugar.
Dagar þegar úrkoma var 1,0 mm eða meiri voru 12 í Reykjavík, þremur fleiri en í meðalári. Fjöldi slíkra daga var 14 á Akureyri, eða tíu umfram meðallag árin 1991 til 2020 og hafa aldrei verið fleiri. Árin 1972 og 1984 voru þeir 13.
Sólskinsstundafjöldi
Í Reykjavík mældist 191,0 sólskinsstund í nýliðnum mánuði, eða 1,5 stund umfram meðallag júnímánaða 1991 til 2020. Sólskinsstundirnar mældust 171,0 á Akureyri sem er 18,9 stundum undir meðallagi.
Vindur
Hægviðrasamt var í mánuðinum og á nokkrum sjálfvirkum stöðvum á landinu hefur ekki mælst lægri meðalvindur í júní en nú. Vindur á landsvísu var 0,4 m/s undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Hvassast var 17. og 18. dag mánaðarins (norðaustlægar áttir).
Loftþrýstingur
Meðalloftþrýstingur var lágur miðað við árstíma í mánuðinum og á nokkrum stöðvum mældist lægsti meðalloftþrýstingur júnímánaðar á þessari öld. Meðalloftþrýstingur mánaðarins í Reykjavík mældist 1003,8 hPa, eða 8,8 hPa undir meðallagi 1991 til 2020.
Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1029,2 hPa í Grímsey þ.14. Lægstur mældist loftþrýstingurinn 983,6 hPa á Hraunsmúla á Snæfellsnesi þ. 5.
Fyrstu sex mánuðir ársins
Meðalhiti í Reykjavík fyrstu sex mánuði ársins mældist 3,6 stig, eða 0,1 stigi undir meðallagi 1991 til 2020 og 0,4 stigum undir meðallagi undanfarins áratugar. Meðalhiti mánaðanna sex raðast í 48. hlýjasta sæti á lista 156 ára. Á Akureyri mældist meðalhitinn 2,8 stig sem er um meðallag 1991 til 2020 en 0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Þar raðast hitinn í 41. hlýjasta sæti á lista 146 ára.
Heildarúrkoma janúar til júní mældist 372,2 mm í Reykjavík, eða 90% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust 240,9 mm sem er 5% yfir meðallagi.
Skjöl fyrir júní
Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í júní 2026 (textaskjal).Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.



