Fréttir

Tíðarfar í maí 2026

Stutt yfirlit

2.6.2026


Tíðarfar í maí var tiltölulega gott. Mánuðurinn var þó í svalara lagi, þá sérstaklega fyrri hlutinn. Meðalhiti mánaðarins var undir meðallagi síðustu tíu ára um land allt en nærri meðallagi áranna 1991 til 2020. Það var kaldast inn til landsins á Austurlandi en hlýjast suðvestanlands. Það gerði smá hret í lok mánaðar með kulda og snjó austast til á landinu, að öðru leyti var veður að mestu gott.

Hiti

Meðalhiti nýliðins mánaðar mældist 6,6 stig í Reykjavík. Það er 0,1 stigi undir meðallagi maímánaða árin 1991 til 2020 og 0,6 stigum undir meðallagi undanfarins áratugar. Á Akureyri mældist meðalhitinn 6,0 stig sem er 0,2 stigum undir meðallagi 1991 til 2020 og 1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn mældist 5,7 stig í Stykkishólmi og 6,1 stig á Höfn í Hornafirði. Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í töflu 1.

Tafla 1: Meðalhiti og vik (°C) í maí 2026.

stöð meðalhiti °C vik m.v. 1991 til 2020 (°C) röð af vik m.v. 2016 til 2025 (°C)
Reykjavík 6,6 -0,1 68 til 70 156 -0,6
Stykkishólmur 5,7 0,1 66 181 -0,5
Bolungarvík 4,5 -0,2 67 129 -0,9
Grímsey 3,6 -0,1 58 153 -1,0
Akureyri 6,0 -0,2 67 til 68 145 -1,2
Egilsstaðir 4,4 -1,1 52 72 -2,2
Dalatangi 4,1 -0,1 40 88 -0,9
Teigarhorn 5,0 -0,2 59 154 -0,8
Höfn í Hornaf. 6,1


-0,7
Stórhöfði 6,0 -0,2 79 149 -0,4
Hveravellir 1,4 -0,2 32 61 -1,0
Árnes 6,1 -0,4 79 til 80 146 -0,9

Vik meðalhita frá meðaltali síðustu tíu ára voru neikvæð um allt land. Þó var meðalhitinn víða nærri meðallagi áranna 1991 til 2020. Að tiltölu var kaldast inn til landsins á Austurlandi og hlýjast við ströndina suðvestanlands.

Neikvætt hitavik var minnst -0,2 stig í Grindavík en mest -2,7 stig á Kárahnjúkum og Brúaröræfum.


Mynd 1: Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í maí miðað við síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur 7,5 stig á Steinum undir Eyjafjöllum en lægstur -2,4 stig á Gagnheiði. Lægsti meðalhiti í byggð mældist 2,3 stig í Svartárkoti.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 19,7 stig í Húsafelli þ. 31. Hitinn mældist lægstur -11,2 stig á Gagnheiði þ. 4. og í Setri þ. 2. Lægsti hiti í byggð mældist -10,5 stig þ. 9. á Grímsstöðum á Fjöllum.

Á mynd 2 má sjá meðalhita hvers dags það sem af er ári, sem vik frá meðalhita sama dags undanfarinn áratug. Sjá má að í fyrri hluta mánaðarins var kaldara á landsvísu en að meðallagi síðustu tíu ár alla daga nema einn, en hlýrra var síðari hluta mánaðar, að þriggja daga kuldakasti undir lok mánaðar undanskildu.



Mynd 2: Landsmeðalhiti hvers dags það sem af er ári 2026, miðað við meðallandsmeðalhita hvers dags síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Úrkoma

Maí var tiltölulega þurr á mestöllu landinu. Það var þurrast á vestanverðu landinu þar sem úrkoma var vel undir meðallagi en blautara austanlands þar sem úrkoma var rétt yfir meðallagi.  

Í Reykjavík mældist mánaðarúrkoman 28,2 mm sem er 54% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Úrkoma í Stykkishólmi mældist 18,1 mm sem er 45% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðarins 19,5 mm sem er um 80% af meðalúrkomu. Á Dalatanga mældust 111,0 mm sem er 6% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 6 í Reykjavík, eða fjórum færri en í meðalári. Í Stykkishólmi voru slíkir dagar 5 sem er þremur færri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 5 daga sem eru jafnmargir og í meðalári. Á Dalatanga voru úrkomudagarnir 13, sem er tveimur fleiri en að meðaltali árin 1991 til 2020.

Snjór

Jörð var alauð allan mánuðinn í Reykjavík og Stykkishólmi, líkt og í meðalári. Á Akureyri voru engir alhvítir dagar skráðir, en 3 flekkóttir dagar í byrjun mánaðar. Á Dalatanga voru 3 alhvítir dagar, tveir í byrjun mánaðar og svo einn þ. 29. En í lok mánaðar kom smá hret á austanverðu landinu og mældist snjór í byggð, m.a. í Neskaupsstað og á Hánefsstöðum í Seyðisfirði.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir maímánaðar mældust 214,9 í Reykjavík. Það er 5,9 stundum yfir meðallagi. Á Akureyri mældust 180,6 sólskinsstundir í mánuðinum, eða 9,6 stundir umfram meðallag.

Vindur

Vindur á landsvísu mældist 0,3 m/s undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Hvassast var þ. 6. (NNA-átt) og 29. (ANA-átt).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur mánaðarins mældist 1013,0 hPa í Reykjavík. Það er um meðallag maímánaða viðmiðunartímabilsins 1991 til 2020.

Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1029,4 hPa á Flateyri þ. 5. Lægstur mældist loftþrýstingurinn 991,6 hPa við Straumnesvita þ. 11.

Fyrstu fimm mánuðir ársins

Meðalhiti fyrstu fimm mánaða ársins mældist 2,2 stig í Reykjavík, en það er 0,3 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Í Reykjavík raðast meðalhitinn hingað til í 56. hlýjasta sæti á lista 156 ára. Á Akureyri mældist meðalhiti janúar til maí 1,4 stig, eða 0,1 stigi undir meðallagi. Þar raðast meðalhiti mánaðanna fimm í 41.hlýjasta sæti á lista 146 ára.

Heildarúrkoma fyrstu fjögurra mánaða ársins mældist 313,9 mm í Reykjavík, sem er um 85% af meðalúrkomu janúar til maí árin 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðanna fimm 202,2 mm sem er um 96% meðallags 1991 til 2020.

Vorið (apríl og maí)

Vorið var tiltölulega hlýtt. Á landsvísu var meðalhiti vorsins 0,7 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Apríl var sérlega hlýr og úrkomusamur, en maí fremur svalur og þurr. Talsverður snjór var á landinu um páskana í byrjun apríl.

Meðalhiti vorsins í Reykjavík var 5,5 stig sem er 0,3 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Vorið er í 41. til 42. sæti yfir hlýjustu vor frá upphafi samfelldra mælinga í Reykjavík 1871.  Í Stykkishólmi var meðalhiti vorsins 5,0 stig sem er 1,0 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri var meðalhiti vorsins 5,4 stig sem er 1,0 stigi yfir meðallagi. Þar var vorið í 18. til 19. sæti yfir hlýjustu vor frá upphafi mælinga á Akureyri 1881. Meðalhiti vormánaðanna tveggja á Dalatanga var 4,3 stig sem er 1,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Heildarúrkoma vetrarins í Reykjavík var 127,8 mm sem er 15% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma vormánaðanna tveggja 74,1 mm sem er 50% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þar var óvenjulega úrkomusamt í apríl.

Skjöl fyrir maí

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í maí 2026 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.







Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica