Fréttir

Tíðarfar í mars 2026

Stutt yfirlit

8.4.2026


Mars var kaldari en að meðallagi undanfarin tíu ár um mestallt land, úrkomusamur, umhleypingasamur og loftþrýstingur lágur.

Töluvert var um að veður og færð yllu vandræðum. Mánuðurinn hófst með stórhríð á Austurlandi þ. 2. með tilheyrandi samfélagsáhrifum og samgöngutruflunum. Flesta daga mánaðarins var einhvers konar veðurviðvörun í gildi einhvers staðar á landinu og þónokkuð var um að snjóflóð féllu í mánuðinum. Mikið var um samgöngutruflanir allan mánuðinn, bæði í lofti og á láði, og höfðu því veður og færð mikil samfélagsáhrif þennan mánuðinn.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík mældist 0,2 stig í mars. Það er 1,0 stigi undir meðallagi 1991 til 2020 og 1,5 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri mældist meðalhitinn 0,1 stig sem er um meðallag áranna 1991 til 2020 en 0,2 stigum undir meðallagi undanfarins áratugar. Í Stykkishólmi mældist meðalhitinn -0,2 stig og hann mældist 1,8 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í eftirfarandi töflu.

Tafla 1: Meðalhiti og vik (°C) í mars 2026.

stöð meðalhiti (°C) vik m.v. 1991 til 2020 (°C) röð af vik m.v. 2016 til 2025 (°C)
Reykjavík 0,2 -1,0 94 156 -1,5
Stykkishólmur -0,2 -0,5 72 181 -0,9
Bolungarvík -1,1 -0,6 70 129 -1,2
Grímsey 0,2 0,5 39 153 -0,1
Akureyri 0,1 0,0 46 145 -0,2
Egilsstaðir -0,1 0,2 30 72 -0,3
Dalatangi 1,9 0,7 30 88 0,1
Teigarhorn 1,6 0,4 52 154 0,0
Höfn í Hornaf. 1,8


-0,3
Stórhöfði 1,7 -0,5 81 149 -0,9
Hveravellir -5,5 -0,5 31 61 -0,8
Árnes -0,8 -0,7 74 146 -1,1

Marsmánuður var kaldari en að meðallagi undanfarin tíu ár um allt land. Að tiltölu var kaldast á vesturhluta landsins. Hlýjast var að tiltölu á Austfjörðum, þar mældist meðalhitinn lítillega yfir meðallagi undanfarins áratugar á nokkrum veðurstöðvum. Jákvætt hitavik var mest 0,3 stig á Fáskrúðsfirði og í Seley. Neikvætt hitavik var mest -1,7 stig á Hellisskarði.


Mynd 1: Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í mars miðað við síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Meðalhiti mánaðarins mældist hæstur 2,7 stig á Steinum undir Eyjafjöllum. Lægsti meðalhitinn mældist -6,8 stig á Þverfjalli en í byggð mældist meðalhitinn lægstur -4,2 stig í Svartárkoti.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 13,5 stig á Seyðisfirði þ. 19. Lægsti hitinn mældist -24,1 stig á Kárahnjúkum þ. 26. Í byggð mældist hitinn lægstur -23,5 stig í Svartárkoti þ. 26.

Á mynd 2 má sjá landsmeðalhita hvers dags það sem af er ári 2026, sem vik frá meðalhita síðustu tíu ára. Þar sést að fyrstu dagar mánaðarins voru tiltölulega kaldir en síðan tók við tiltölulega hlýtt tímabil þar til það kólnaði aftur undir lok mánaðar.



Mynd 2: Landsmeðalhiti hvers dags það sem af er ári 2026, miðað við meðallandsmeðalhita hvers dags síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Úrkoma

Úrkoma var yfir meðallagi víðast hvar á landinu. Í Reykjavík mældist mánaðarúrkoman 126,2 mm, eða 56% umfram meðallag marsmánaða árin 1991 til 2020. Á Akureyri mældust 81,3 mm sem er 71% meiri úrkoma en að meðallagi 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældust 120,6 mm, 65% umfram meðalúrkomu 1991 til 2020.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 19 í Reykjavík, eða 5 fleiri en í meðalári. Slíkir dagar voru 16 á Akureyri, en það eru 7 fleiri dagar en í meðalmarsmánuði.

Snjór

Í Reykjavík var jörð alhvít 20 morgna í mánuðinum, en það er 11 fleiri en að meðallagi árin 1991 til 2020. Alhvítir morgnar voru 10 á Akureyri, eða 12 færri en í meðalári.

Fannfergi olli talsverðum vandræðum í mánuðinum, bæði var færð erfið og talsvert um snjóflóð á Vestfjörðum og Norðurlandi.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir mánaðarins mældust 127,8 í Reykjavík, sem er 17,6 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust 90,2 sólskinsstundir, eða 12,4 fleiri en í meðalmarsmánuði.

Vindur

Marsmánuður var hvassviðrasamur og illviðri óvenju tíð. Vindur á landsvísu var 0,8 m/s fyrir meðallagi og á fjölda sjálfvirkra veðurstöðva mældist mesti meðalvindur sem mælst hefur í mars á öldinni.

Hvassast var 2. (NV-átt), 6. (SSA-átt) 7. (S-átt), 15. (SA-átt), 19. (SSV-átt), 20. (SV-átt) og 26. (A-átt) dag mánaðarins. Samgöngutruflanir sökum veðurs voru tíðar í lofti og á láði um allt land í mánuðinum.

Loftþrýstingur

Loftþrýstingur var lágur í mánuðinum. Á fjölda sjálfvirkra veðurstöðva mældist lægsti meðalloftþrýstingur marsmánaðar sem mælst hefur á þessari öld. Meðalloftþrýstingur mánaðarins var 990,2 hPa í Reykjavík. Það er 13,0 hPa undir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1020,1 á Reykjum í Fnjóskadal þ. 25. .Lægstur mældist loftþrýstingurinn 956,7 hPa á Rauðanúpi þ. 12.

Fyrstu þrír mánuðir ársins

Meðalhiti fyrstu þriggja mánaða ársins mældist 0,1 stig í Reykjavík sem er 0,7 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhiti mánaðanna þriggja í Reykjavík raðast í 75. hlýjasta sæti á lista 156 ára. Á Akureyri mældist meðalhitinn -1,3 stig, eða 0,9 stigum undir meðallagi. Meðalhitinn þar raðast í 68. hlýjasta sæti á lista 146 ára.

Heildarúrkoma í Reykjavík fyrstu þrjá mánuði ársins mældist 186,1 mm, eða 72% meðallags áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma janúar til mars 128,1 mm sem er um 80% af meðalúrkomu mánaðanna þriggja árin 1991 til 2020.

Veturinn (desember 2025 til mars 2026)

Tíðarfar vetrarins 2025 til 2026 var óvenjulega gott lengi framan af. Desember var sérlega hlýr. Á landsvísu var þetta þriðji hlýjasti desembermánuður frá upphafi mælinga. Tíð var einstaklega góð og það var mjög snjólétt á landinu öllu í lok árs. Þá tók við óvenju einsleitt veðurlag sem ríkti nær allan janúar og febrúar. Fremur hægar austlægar áttir voru ríkjandi og illviðri voru óvenju fátíð miðað við árstíma. Þó nokkuð stíf austanátt var þó viðvarandi við suðausturströndina. Það var sérlega þurrt og snjólétt í öllum landshlutum, nema á Austurlandi í þessum mánuðum þar sem úrkoma og snjóalög voru í kringum meðallag. Um mánaðarmótin febrúar-mars breyttist veðurlagið og við tók rysjóttari tíð. Mars var umhleypingasamur, hvassviðri tíð og úrkoma var vel yfir meðallagi á landinu öllu. Fjöldi snjóflóða féllu og miklar samgöngutruflanir voru vegna fannfergis og hvassviðra.

Meðalhiti í Reykjavík í vetur var 1,0 stig sem er 0,3 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Veturinn er í 31. og 32. sæti yfir hlýjustu vetur frá upphafi samfelldra mælinga í Reykjavík árið 1871. Á Akureyri var meðalhiti vetrarins -0,4 stig sem er 0,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri var meðalhiti vetrarins í 38. sæti yfir hlýjustu vetur frá upphafi samfelldra mælinga á Akureyri 1881.

Veturinn var tiltölulega þurr í Reykjavík. Sérlega þurrt var í janúar og febrúar, en mars var úrkomusamur. Heildarúrkoma vetrarins var 262,3 mm sem er 75% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma í vetrarmánuðunum fjórum 173,8 mm sem er líkt og í Reykjavík 75% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.

Í Reykjavík voru alhvítir dagar vetrarins 27, sem er 20 færri en að meðaltali 1991 til 2020. Langflestir alhvítu daganna í Reykjavík voru í mars, eða 20 af 27. Aðrir mánuðir voru í óvenju snjóléttir.  Á Akureyri voru alhvítir dagar 58, sem er 15 færri en að meðaltali 1991 til 2020.

Í Reykjavík mældust sólskinsstundir vetrarins 313, sem er 107 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar í vetrarmánuðunum fjórum 159, sem er 40 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Skjöl fyrir mars

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í mars 2026 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.







Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica