Fréttir

Tíðarfar í október 2026

Stutt yfirlit

5.11.2026


Október var tiltölulega hlýr og mjög úrkomusamur. Hlýjast var á Norðaustur- og Austurlandi en svalara á suðvesturhluta landsins. Úrkoma var vel yfir meðallagi um allt land og úrkomudagar voru margir. Loftþrýstingur var lágur í mánuðinum og það var nokkuð illviðrasamt. Óvenju djúp lægð gekk yfir landið þ. 14. sem olli talsverðum skemmdum á Siglufirði.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík mældist 5,2 stig í október sem er 0,3 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri var meðalhitinn í október 4,7 stig sem er 1,2 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi var meðalhiti mánaðarins 5,5 stig og 6,3 stig á Höfn í Hornafirði. Meðalhiti á landsvísu var 5,0 stig sem er 1,0 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í töflu 1.

Tafla 1: Meðalhiti og vik (°C) í október 2026.

stöð meðalhiti (°C) vik m.v. 1991 til 2020 (°C) röð af vik m.v. 2016 til 2025 (°C)
Reykjavík 5,2 0,3 43 156 -0,2
Stykkishólmur 5,5 1,1 25 181 0,5
Bolungarvík 5,1 1,4 23 130 0,7
Grímsey 5,5 1,7 9 153 1,2
Akureyri 4,7 1,2 21 145 1,1
Egilsstaðir 5,4 1,6 7 72 1,4
Dalatangi 7,0 2,0 5 89 1,4
Teigarhorn 6,3 1,3 13 154 1,1
Höfn í Hornaf. 6,3


0,7
Stórhöfði 6,2 0,7 24 150 0,2
Hveravellir 0,2 0,8 11 til 12 62 0,3
Árnes 4,3 0,4 44 147 0,1

Hiti var yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 á öllu landinu. Að tiltölu var hlýjast á Norðaustur- og Austurlandi en kaldast suðvestanlands þar sem meðalhiti októbermánaðar var undir meðallagi síðustu tíu ára (sjá mynd 1). Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 1,4 stig á Mánárbakka, Skjaldþingsstöðum, Egilsstaðaflugvelli og Dalatanga. Neikvætt hitavik var mest -0,4 stig á Hólmsheiði.


Mynd 1: Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í október miðað við síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur 7,3 stig á Hvalnesi. Lægstur var meðalhitinn –1,2 stig í Sandbúðum á Sprengisandi. Í byggð var meðalhitinn lægstur 1,2 stig í Möðrudal.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 19,5 stig á Siglufirði þ. 1. Mest frost í mánuðinum mældist -17,6 stig í Möðrudal þ. 24.

Á mynd 2 má sjá landsmeðalhita hvers dags það sem af er ári 2026, sem vik frá meðalhita síðustu tíu ára. Í október var landsmeðalhiti undir meðallagi dagana 5. til 7., þann 15. og dagana 21. til 26. Aðra daga októbermánaðar var hiti yfir meðallagi.


Mynd 2: Landsmeðalhiti hvers dags það sem af er ári 2026, miðað við meðallandsmeðalhita hvers dags síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Úrkoma

Október var úrkomusamur. Úrkoma var vel yfir meðallagi í öllum landshlutum og úrkomudagar margir.

Í Reykjavík mældist mánaðarúrkoman í október 122,6 mm sem er 54% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældust 125,3 mm sem er 84% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðarins 108,4 mm sem er 47% umfram meðalúrkomu. Á Dalatanga mældist mánaðarúrkoman 378,9 mm sem er 84% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þar hefur ekki mælst eins mikil úrkoma í októbermánuði síðan 2001.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 20 í Reykjavík, eða 7 fleiri en að meðaltali árin 1991 til 2020. Í Stykkishólmi voru slíkir dagar 18, sem er 6 fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 11 daga í október, sem er í meðallagi. Á Dalatanga voru úrkomudagarnir 17, sem er 1 fleiri en að meðaltali árin 1991 til 2020.

Snjór

Jörð var alauð alla morgna í október í Reykjavík líkt og í meðalári. Á Akureyri var alhvítt einn morgun í október sem er tveimur dögum færra en að meðaltali árin 1991 til 2020.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 82,6 í október sem er 9,0 stundum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 62,8 sem er 14,9 stundum yfir meðallagi.

Vindur

Vindur á landsvísu var 0,2 m/s undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Talsvert var þó um illviðri í mánuðinum. Hvassast var þ. 1. (SA-átt), þ. 14. (A- og N-átt) og dagana 17.-18. (S- og SV-átt). Talsverð úrkoma fylgdi þessum veðrum.

Hvassviðrið þ. 14. olli miklum skemmdum á Siglufirði. Þar fuku m.a. þök af þremur húsum og brak frá þeim og öðrum lausamunum olli foktjóni víða í bænum.

Loftþrýstingur

Loftþrýstingur var lágur í október. Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 994,8 hPa sem er 9,5 hPa undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Mánaðarmeðalþrýstingur í október hefur ekki verið svona lágur síðan árið 2011.

Lægðin sem gekk yfir landið þ. 14. var óvenju djúp. Loftþrýstingur fór lægst í 934,6 hPa á Fagurhólsmýri sem var lægsti loftþrýstingur sem mældist í mánuðinum og jafnframt lægsti loftþrýstingur sem mælst hefur í októbermánuði. Fyrra met var 938,4 hPa á Stórhöfða þ. 19. október 1963.

Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1024,4 hPa á Önundarhorni þ. 17.

Fyrstu tíu mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu tíu mánuði ársins mældist 5,7 stig sem er 0,2 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020, en 0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhiti mánaðanna tíu raðast í 42. hlýjasta sæti á lista 156 ára. Á Akureyri mældist meðalhitinn 5,3 stig sem er 0,3 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Þar raðast hitinn í 22. hlýjasta sæti á lista 146 ára.

Heildarúrkoma fyrstu tíu mánuði ársins mældist 748,0 mm í Reykjavík sem er 10% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma janúar til október 468,9 mm sem er 10% umfram meðalúrkomu líkt og í Reykjavík.

Skjöl fyrir október

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í október 2026 (textaskjal).

Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.







Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica