Fréttir
Brú yfir Lagarfljót 2002
Flóð í Lagarfljóti 2002. Horft af vegi við brúna yfir Lagarfljót í átt að Fellabæ.

Tilkynning vegna vatnavaxta á Fljótsdal

28.9.2017

Vatnshæð og rennsli í ám á Suður- og Austurlandi náði hámarki í gær. Mælar í Lagarfljóti sýna hins vegar að hæg bylgja gengur niður fljótið og vatnsborðið er en að hækka þar. Því er hætt við að flæði yfir veginn milli Egilsstaða og Fellabæjar.

Vatnavextir í ám á Suður- og Austurlandi náðu hámarki í gærkvöldi. Rennsli í Geithellná og Fossá í Berufirði hefur ekki mælst meira frá upphafi og það sama má segja um rennsli í Fellsá í Fljótsdal. Vatnshæð við brúna yfir Jökulsá í Fljótsdal, við Valþjófsstaðanes, náði hámarki um miðjan dag í gær og var þá nærri tveimur metrum meiri en hún er að jafnaði. Vatnshæðin þar hefur nú lækkað um hálfan metra.

Mælar niður eftir Lagarfljóti sýna að vatnsborð er að hækka þar. Vatnsborðið við Lagarfljótsbrú er nú rúmum tveimur metrum hærra en að jafnaði og er enn að hækka. Það á eftir um hálfan metra í að ná sömu hæð og það náði í miklum flóðum árið 2002 og viðbúið að það geti gerst.

Flóð í Lagarfljóti 2002

Flóð í Lagarfljóti 2002. Myndin er í flóðamyndasafni Veðurstofu Íslands. Ljósmynd: Stefán Scheving.

Það rofar enn til í kvöld og nótt en áfram verður úrkomusamt á Austurlandi þótt ekki sé búist við samfelldri úrkomu. Veðurstofan hefur undanfarna daga haft samráð við fulltrúa almannavarna og Vegagerðarinnar um ráðstafanir vegna flóða- og skriðuhættu. Frekari upplýsingar um hættuástand og færð á vegum eru birtar á vef og miðlum þessara stofnana.

Capture

Vatnshæðarmælir í Lagarfljóti við Lagarfell; undanfarnir sjö dagar til hádegis 28. september 2017.

Flóðamörk

Flóðamörk við Egilsstaði, reiknuð samkvæmt gögnum Veðurstofu Íslands.

Fréttin hefur verið uppfærð.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica