Fréttir
Unnið að uppsetningu jarðskjálftamæla við Grjótárvatn í lok október. Verkefnið nýtist meðal annars til að þróa verklag við uppsetningu viðbótarmæla þar sem aukinnar skjálftavirkni verður vart.

Tímabundnir jarðskjálftamælar við Grjótárvatn

5.11.2026

Veðurstofa Íslands hefur sett upp fjóra nýja jarðskjálftamæla tímabundið við Grjótárvatn. Með mælingunum er kannað hvort þörf sé á að þétta núverandi mælanet á svæðinu. Verkefnið nýtist einnig til að þróa verklag við uppsetningu mæla þar sem aukinnar skjálftavirkni verður vart.

Mælarnir voru settir upp í lok október og verða teknir niður fljótlega. Þrír þeirra senda gögn í rauntíma til Veðurstofunnar. Sá fjórði er staðsettur ofan við Grjótárvatn, beint yfir svæðinu þar sem skjálftavirknin mælist. Þar er ekki símasamband og verða gögnin því sótt í mælinn að mælingum loknum.

Með því að bera gögn úr tímabundnu mælunum saman við gögn úr fasta mælanetinu má meta hvort þörf sé á að þétta netið á svæðinu.

„Það skiptir máli að kanna hversu vel mælanetið okkar nær utan um skjálftavirknina. Með tímabundnum mælum getum við metið hvar viðbótarmælingar gera mest gagn. Um leið öðlumst við reynslu sem nýtist þegar við þurfum að bregðast við aukinni virkni með því að setja upp fleiri mæla,“ segir Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri jarðskjálfta og jarðhniks hjá Veðurstofu Íslands.

Einföld uppsetning gefur gagnlegar mælingar

Uppsetning tímabundnu mælanna er einföld. Þeim var komið fyrir á klöpp og hlaðið grjóti í kringum þá, þar sem ekki var hægt að grafa þá í jörðu. Tveir eru nálægt vegi og einn nálægt á. Umhverfið veldur nokkru suði í gögnunum, en þrátt fyrir það má greina bylgjur frá jarðskjálftum.

„Við erum sérstaklega spennt að skoða gögnin úr mælinum sem er beint yfir skjálftavirkninni, en hann er utan símasambands. Mælarnir verða teknir niður fljótlega og þá tekur við úrvinnsla gagnanna,“ segir Sigríður Kristjánsdóttir, sérfræðingur í jarðvárvöktun hjá Veðurstofu Íslands, sem hélt utan um verkefnið og vann að uppsetningu mælanna.




Einn-fjogurra-timabundinna-jardskjalftamaela-vid-Grjotarvatn.-Maelinum-er-komid-fyrir-a-klopp-og-grjoti-hladid-i-kringum-hann
Einn fjögurra tímabundinna jarðskjálftamæla við Grjótárvatn. Mælinum er komið fyrir á klöpp og grjóti hlaðið í kringum hann. Mynd:Sigríður Kristjánsdóttir

Unnid-ad-uppsetningu-jardskjalftamaela-vid-Grjotarvatn-i-lok-oktober.-Verkefnid-nytist-medal-annars-til-ad-throa-verklag-vid-uppsetningu-vidbotarmaela-thar-sem-aukinnar-skjalftavirkni-verdur-vart
Unnið að uppsetningu jarðskjálftamæla við Grjótárvatn í lok október. Verkefnið nýtist meðal annars til að þróa verklag við uppsetningu viðbótarmæla þar sem aukinnar skjálftavirkni verður vart. Mynd: Sigríður Kristjánsdóttir
Nordurljos-lystu-upp-himininn-thegar-maelum-var-komid-fyrir-vid-Grjotarvatn.-Med-timabundnu-maelingunum-er-kannad-hvort-nuverandi-maelanet-a-svaedinu-se-naegilega-gott
Norðurljós lýstu upp himininn þegar mælum var komið fyrir við Grjótárvatn. Með tímabundnu mælingunum er kannað hvort núverandi mælanet á svæðinu sé nægilega gott. Mynd: Sigríður Kristjánsdóttir




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica