Varasamar aðstæður við sporð Sólheimajökuls
Óstöðugt íshaft og grjóthrunshætta á aðkomuleiðinni
Undanfarnar vikur hafa orðið verulegar breytingar við sporð Sólheimajökuls sem hafa gert aðkomu að jöklinum erfiðari og varasamari. Óstöðugur jökulís við jökullónin og grjóthrun úr hlíðum geta skapað hættu fyrir fólk sem fer um svæðið.- Lítið lón hefur myndast austan við jökulsporðinn
- Íshaft sem liggur að jöklinum hefur þynnst og er orðið óstöðugt
- Ferðaþjónustufyrirtæki hafa fellt niður ferðir í forvarnarskyni
- Hætta er á grjóthruni á aðkomuleiðinni að suðaustanverðum jöklinum.
Breyttar aðstæður við jökulsporðinn
Lítið lón hefur myndast austan við sporð Sólheimajökuls. Á milli þess og aðaljökullónsins framan við Sólheimajökul hefur myndast íshaft, sem myndar tengingu frá ströndinni að jöklinum. Haftið hefur minnkað hratt undanfarnar vikur vegna bráðnunar og kelfingar en til skýringar verða keflingar þegar jakar brotna fram í lónið. Nú getur hætta skapast af því að fara um íshaftið. Bæði er hætta á að óstöðugur ís gefi sig og að fólki skriki fótur og falli í lónin öðru hvoru megin við haftið. Aðkoma að sporði Sólheimajökuls er því mun erfiðari og varasamari en áður.
Miklar breytingar á aðstæðum hafa orðið frá degi til dags og óvissa er um áframhaldandi þróun. Mikilvægt er að fólk sem fer um svæðið á eigin vegum gæti varúðar við jökulsporðinn og fari ekki út á óstöðugan jökulís og svæði þar sem hætta er á falli ofan í köld og djúp jökullón.
Leiðsögumenn á svæðinu vakta breytingarnar og ferðaþjónustufyrirtæki hafa nú í forvarnarskyni fellt niður ferðir og hugað er að nýjum og öruggari leiðum.
Hætta grjóthruni á aðkomuleiðinni að Sólheimajökli
Veðurstofan vekur jafnframt athygli á grjóthrunshættu úr Jökulhaus, fjallinu ofan aðkomuleiðarinnar að suðaustanverðum Sólheimajökli. Fólk ætti að lágmarka viðveru undir bröttum hlíðum. Grjót sem falla á aðkomuleiðina geta verið stór og skapað verulega hættu fyrir ferðafólk. Meðfram öllum göngustígunum er grjóthrunshætta og því er mikilvægt að sýna aðgát.
Ferðafólk er hvatt til að skoða brattar hlíðar vel og vera vakandi fyrir merkjum um grjóthrun, svo sem nýföllnu grjóti eða hljóðum úr hlíðinni. Grjóthrun verður skyndilega og ekki er hægt að spá nákvæmlega fyrir um hvenær það á sér stað. Líkur á grjóthruni geta þó aukist í mikilli úrkomu og við snöggar hitabreytingar, til dæmis þegar frýs og þiðnar til skiptis.
Breyttar aðstæður vegna hops jökla
Flestir jöklar landsins hörfa nú í hlýnandi loftslagi sem leiðir til margvíslegra breytinga við jökulsporðana sem geta haft áhrif á öryggi fólks og aðstæður vegna jöklaferða.
Jaðarlón myndast og stækka sem geta hindrað för, aurbleytur myndast við jökulsporða og landslag er óstöðugt þar sem jöklar studdu áður við fjallshlíðar í dölum. Vert er að hafa í huga að aðgengi að jökulsporðum er óvíða jafn auðvelt og hér á landi. Það er aðeins á örfáum stöðum í heiminum þar sem finna má malbikaða vegi sem ná langleiðina að jökulsporði. Óvant ferðafólk á því auðvelt með að koma sér í hættulegar aðstæður. Mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir hættunum, fylgi leiðbeiningum, sýni varúð, beri virðingu fyrir því umhverfi sem ferðast er um og hugi að síbreytilegum aðstæðum sem ríkja framan skriðjökla.
Núverandi aðstæður við jaðar Sólheimajökuls
Myndir: Jón Heiðar Andrésson, yfirleiðsögumaður hjá Asgard Beyond







