Laus störf

Sérfræðingur í loftslagsaðlögun og gagnagreiningu

Veðurstofa Íslands leitar að sérfræðingi meðsterka greiningarhæfni, góða færni í gagnavinnslu og mjög góða tölvukunnáttu til starfa á Skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar (SLA).

Starfið felst í að vinna með gögn og upplýsingar um loftslagsbreytingar og nýta niðurstöðurnar til að styðja við áhættumat, stefnumótun og aðlögunaraðgerðir. Unnið er í nánu samstarfi við sérfræðinga, stjórnvöld, sveitarfélög og aðra samstarfsaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Söfnun, samræming, gæðaprófun og greining gagna um loftslagsbreytingar, áhrif þeirra og aðlögun.

  • Skýr og myndræn framsetning gagna og niðurstaðna fyrir ólíka notendahópa.

  • Þátttaka í viðkvæmni- og áhættumati vegna loftslagsbreytinga.

  • Þróun landsbundins aðlögunarvettvangs og samþætting gagna, leiðbeininga og stafrænna verkfæra.

  • Verkefnasamhæfing, eftirfylgni, árangursmat og skýrslugerð.

  • Samstarf við sveitarfélög og þátttaka í vinnustofum, samráði og miðlun.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

  • Færni í vinnslu, greiningu og framsetningu gagna.

  • Mjög góð tölvukunnátta og færni í notkun verkfæra til gagnavinnslu og greiningar.

  • Hæfni til að meta gæði gagna, greina samhengi og draga rökstuddar ályktanir.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Góð skipulagshæfni, sjálfstæði og samskiptafærni.

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

  • Þekking eða reynsla á sviði loftslagsbreytinga, umhverfismála, náttúruvár, áhættumats eða sjálfbærni er kostur.

  • Farsæl reynsla af Python, landupplýsingakerfum (GIS), gagnagrunnum eða þróun stafrænnar þjónustu er kostur.

Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Á stofnuninni eru tækifæri til faglegrar þróunar og vinnutími er sveigjanlegur.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Umsókninni skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstyður hæfni sína fyrir starfið.

Á Veðurstofu Íslands starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fólks við að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins gegn náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga. Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða. Sérfræðingar stofnunarinnar eru leiðandi á sínu sviði og styðja viðbrögð samfélagsins vegna náttúruvár og áhrifa loftslagsbreytinga með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi. Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 170 manns. Auk þess starfa um 50 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Anna Hulda Ólafsdóttir

Skrifstofustjóri

Tölvupóstur: annaol@vedur.is

Sími: 5226000

Borgar Ævar Axelsson

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: borgar@vedur.is

Sími: 5226000

Sækja um starf



Nýjar fréttir

Microsoft-bilun truflar ekki vöktun og viðvaranir

Vegna bilunar í þjónustu Microsoft viljum við árétta að veðurþjónusta og náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands starfar með eðlilegum hætti. Veðurspár og viðvaranir eru gefnar út eins og venjulega og mælingar og aðrar vöktunarupplýsingar uppfærast á vedur.is og á gottvedur.is Lesa meira

Staðan á Reykjanesskaga

Hægt landris mælist áfram við Svartsengi. Jarðskjálftavirkni er áfram lítil. Nýtt kvikuhlaup sem gæti endað með eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni er áfram líklegasta sviðsmyndin. Lesa meira

Tímabundnir jarðskjálftamælar við Grjótárvatn

Veðurstofa Íslands hefur sett upp fjóra tímabundna jarðskjálftamæla við Grjótárvatn. Með mælingunum er kannað hvort núverandi mælanet á svæðinu sé nægilega gott. Verkefnið nýtist einnig til að þróa verklag við uppsetningu mæla þar sem aukinnar skjálftavirkni verður vart.

Lesa meira

Þrjár vísindanefndir meta þekkingu á loftslagsmálum á Íslandi

Þrjár vísindanefndir munu draga saman og meta vísindalega þekkingu á loftslagsbreytingum á Íslandi, áhrifum þeirra og aðgerðum til að draga úr losun og auka bindingu. Nýtt fyrirkomulag var kynnt á opnum fundi í Norræna húsinu 3. nóvember. Niðurstöðurnar eiga að nýtast stjórnvöldum, fyrirtækjum og almenningi og er áætlað að skýrslurnar liggi fyrir í lok árs 2029. Lesa meira

Tíðarfar í október 2026

Október var tiltölulega hlýr og mjög úrkomusamur. Hlýjast var á Norðaustur- og Austurlandi en svalara á suðvesturhluta landsins. Úrkoma var vel yfir meðallagi um allt land og úrkomudagar voru margir. Loftþrýstingur var lágur í mánuðinum og það var nokkuð illviðrasamt. Óvenju djúp lægð gekk yfir landið þ. 14. sem olli talsverðum skemmdum á Siglufirði.

Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica