Október var tiltölulega hlýr og mjög úrkomusamur. Hlýjast var á Norðaustur- og Austurlandi en svalara á suðvesturhluta landsins. Úrkoma var vel yfir meðallagi um allt land og úrkomudagar voru margir. Loftþrýstingur var lágur í mánuðinum og það var nokkuð illviðrasamt. Óvenju djúp lægð gekk yfir landið þ. 14. sem olli talsverðum skemmdum á Siglufirði.
Lesa meiraVöktunarkerfi sem sett var upp á Svínafellsheiði til að fylgjast með hreyfinum í hlíðinni hefur greint hreyfingar frá 23. september síðastliðnum. Þetta eru fyrstu hreyfingar sem greinast með svo skýrum hætti frá því að vöktun hófst á heiðinni haustið 2018. Hreyfingin er enn sem komið er hæg og ekki er hægt að segja til um hvernig hún muni þróast. Veðurstofan hefur aukið vöktun.
Lesa meiraLægsti loftþrýstingur sem mælst hefur á Íslandi í október mældist á Fagurhólsmýri í óveðrinu 14. október, 934,6 hPa. Mikill vindur, sjávarflóð og talsverð úrkoma fylgdu lægðinni og tjón varð meðal annars á Siglufirði.
Lesa meira