Nýjar fréttir

„Hugsum okkur ekki aðeins tvisvar heldur tíu sinnum“ – Oddur Sigurðsson heiðraður á degi íslenskrar náttúru

Á Umhverfisþingi í gær hlaut Oddur Sigurðsson jarð- og jöklafræðingur Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Oddur hefur í meira en hálfa öld helgað líf sitt rannsóknum og fræðslu um íslenska jökla, safnað 55.000 ljósmyndum sem varðveittar eru hjá Veðurstofunni og vakið heimsathygli með skjalfestingu á hvarfi Okjökuls.

Í ávarpi sínu minnti hann á ábyrgð okkar allra: „Við höfum val. Við getum orðið þjóð sem brennir landið undir framkvæmdagleði, eða við getum orðið þjóð sem stendur vörð um náttúruna sína. Hugsum okkur ekki aðeins tvisvar heldur tíu sinnum áður en við ráðist í nýjar framkvæmdir.“ Orð hans eiga sérstaklega vel við í dag, á degi íslenskrar náttúru.

Lesa meira

Hættumat óbreytt en verður endurmetið að viku liðinni

Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram og er nú metið um 8–9 milljónir rúmmetra frá síðasta eldgosi. Líkurnar á nýjum atburði aukast þegar magn nálgast 11–12 milljónir rúmmetra, sem gæti gerst í lok september. Reynslan sýnir þó að gos getur hafist við minna eða meira magn. Hættumatskortið er óbreytt til 23. september, þegar það verður endurskoðað á ný. Lesa meira

MEDiate verkefnið á lokametrunum – alþjóðlegt samstarf um áhættustjórnun náttúruvár

Evrópska rannsóknarverkefnið MEDiate er komið á lokametrana eftir þriggja ára samstarf 18 aðila frá sjö Evrópulöndum. Verkefnið miðar að því að þróa nýjar aðferðir til áhættustjórnunar vegna náttúruvár og var nýlega haldin vinnustofa á Veðurstofu Íslands með fulltrúum frá íslenskum og breskum þróunarhópum.

Lesa meira

Tíðarfar í ágúst 2025

Ágúst var hlýr, þá sérstaklega síðari hluti mánaðarins. Að tiltölu var hlýjast inn til landsins á Norðaustur- og Austurlandi. Hæsti hiti mánaðarins mældist 29,8 stig á Egilsstaðaflugvelli þ. 16. og er það hæsti hiti sem mælst hefur á landinu í ágúst. Talsvert hvassviðri var á sunnan- og vestanverðu landinu um verslunarmannahelgina.

Lesa meira

Minnkandi skriðuhætta og skúrir

Úrkoma hefur minnkað á Austfjörðum eftir tvo úrkomusama daga og engar fregnir hafa borist af skriðuföllum. Sjatnað hefur í lækjum og ám og spáð er skúrum næstu daga en ekki samfelldri úrkomu. Með minnkandi vatni í jarðvegi dregur úr skriðuhættu, þótt líkur á skriðuföllum fylgi áfram úrkomu víða um land.

Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica