Veðurstofa Íslands 90 ára

loftmynd - flóð
Oddur Sigurðsson © Atli Þorvaldsson
Eldgos í Eyjafjallajökli: hlaup í Markarfljóti 14. apríl 2010 kl. 10:43. Flóðaldan gekk fram með um 5 km hraða á klst.

Nýjar fréttir

Hamfaraflóð við landamæri Nepal og Tíbets – keðjuverkun náttúruhamfara

Hamfaraflóð olli miklu tjóni í Rasuwa-héraði í Nepal 26. ágúst. Fyrstu greiningar benda til þess að gríðarlegt hrun jökulíss og bergs hafi komið flóðinu af stað. Í fyrstu var talið að um hefðbundinn jarðskjálfta væri að ræða. Atburðurinn sýnir hvernig ólíkar náttúruhamfarir geta myndað hættulega keðjuverkun og undirstrikar mikilvægi fjölþættrar náttúruvárvöktunar.

Lesa meira

Útlit fyrir að jökulhlaup í Múlakvísl sé í rénun

Jökulhlaupið í Múlakvísl, sem hófst 18. ágúst, virðist nú vera í rénun. Dregið hefur úr bæði rafleiðni og rennsli frá því í gær og lítið gas mælist nú á svæðinu Lesa meira

Staðan á Reykjanesskaga

Kvikusöfnun og landri heldur áfram við Svartsengi. Meðalhraði kvikusöfnunar undanfarnar vikur hefur haldist stöðugur. Áframhaldandi hæg kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi áfram líklegast sviðsmyndin.

Lesa meira

Mælingar sýna að landris í Öskju hefur stöðvast

Landrisið sem hófst í Öskju árið 2021 hefur stöðvast. Fyrstu vísbendingar eru jafnframt um landsig á svæðinu.

Lesa meira

Sérstök spásíða vegna sólmyrkvans á gottvedur.is

Veðurstofa Íslands hefur opnað sérstakt spásvæði og yfirlitssíðu vegna sólmyrkvans 12. ágúst. Þar má meðal annars skoða staðarspár fyrir almyrkvaslóðir, nýja þekju fyrir skýjahulu, spár fyrir aðra veðurþætti og nýjustu upplýsingar frá veðurvakt.

Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica