Fréttir
Ljóst er að tjón vegna skriðufallanna er umtalsvert. (Ljósmynd: Páll Thamrong Snorrason)

Neyðarstig á Seyðisfirði fært niður á hættustig

Enn er þó hætta á skriðuföllum á ákveðnum svæðum og verða þau áfram rýmd. Rýmingu aflétt á Eskifirði

20.12.2020

Uppfært kl. 15:45, 20.12.2020

Rýmingu hefur verið aflétt á Eskifirði, þar sem hús voru rýmd á fimmtudag. Þá var mikil hreyfing á tveimur stöðum í Oddsskarðsveginum, ofan bæjarins, og sprungur opnuðust í malbiki. Náið hefur verið fylgst með aðstæðum síðan og mældir fastpunktar í gær og í dag, sunnudag. Lítil hreyfing hefur verið frá því í gær og ekki eru vísbendingar um að stórt svæði hafi verið á hreyfingu. Því er ekki talin hætta nú á að skriður falli í kjölfar þessara hreyfinga. Áfram verður fylgst með aðstæðum á svæðinu og mælingar gerðar reglulega á næstunni.

Uppfært kl. 15:10, 20.12.2020

Ofanflóðasérfræðingar Veðurstofu Íslands ásamt samstarfsaðilum, hafa metið hættu á frekari skriðuföllum á Seyðisfirði. Enn er hætta á skriðuföllum á ákveðnum svæðum og verða þau áfram rýmd.  Þeir íbúar sem búa utan þeirra svæða verður heimilt að snúa aftur.

Í ljósi þessa hefur ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi ákveðið að færa neyðarstig almannavarna, sem verið hefur á Seyðisfirði, niður á hættustig.

Nánar á vef Almannavarna.


Uppfært kl. 10:30, 19.12.2020

Ekki hafa borist fréttir af frekari skriðuföllum á Seyðisfirði en aðstæður verða kannaðar þegar birtir. Bærinn er mannlaus en björgunarsveitarmenn og sérfræðingar fara til þess að kanna aðstæður í dag. Gerðar verða mælingar til þess að kanna hreyfingu yfirborðsjarðlaga og teknar myndir með flygildi eftir því sem aðstæður leyfa.

Sprungur sáust á gamla þjóðveginum um Oddsskarð ofan við Eskifjörð eftir hádegi í gær á tveimur svæðum ofan svæðisins sem rýmt var í gær. Hreyfing hefur verið á þessum sprungum, bæði gliðnun og sig, etv. 10 cm eða meira. Aðstæður verða kannaðar í dag.

Það dró úr úrkomu á Seyðisfirði í gærkvöldi og snérist í norðlæga átt í nótt.  Lítil úrkoma hefur mælst á Austfjörðum í nótt. Spáð er úrkomulitlu veðr i áfram um helgina og kólnandi á sunnudag.


Uppfært kl. 18:10 18.12.2020

Um kl. 15 féll stór skriða úr Botnabrún milli Búðarár og Stöðvarlækjar á Seyðisfirði og lenti á a.m.k. 10 húsum. Ekki er vitað um manntjón en lögregluyfirvöld á staðnum eru að kanna hvort fólk hafi lent í skriðunni. Allmargir sem voru á ferð á svæðinu og í nágrenninu sluppu naumlega. Talið er að flest húsin sem lentu í skriðunni hafi verið rýmd eða mannlaus. Unnið er að frekari rýmingum á Seyðisfirði. Einnig hefur verið ákeðið að rýma nokkra sveitabæi í Seyðisfirði og Eskifirði þar sem talin er skriðuhætta.

Í morgun dró úr úrkomu á Seyðisfirði og á öðrum veðurstöðvum á Austfjörðum eftir mikla úrkomu í gærkvöldi og nótt. Jarðvegur er orðinn vatnsmettaður í neðri hluta hlíða  eftir mikla uppsafnaða úrkomu sl. viku.  Áframhaldandi úrkoma hefur verið á Seyðisfirði í dag, mun minni þó heldur en í gær. Í kvöld er gert ráð fyrir að stytti upp tímabundið en aftur er spáð rigningu síðla nætur og í fyrramálið. Veðurspár gera ráð fyrir að það stytti upp á Austfjörðum um hádegisbil á morgun, laugardag.
Hér má sjá ummerki eftir skriðuna sem féll um kl. 15 í dag. (Ljósmynd: Veðurstofan / Emil Tómasson)

Rýming hefur verið í gildi á stórum svæðum á Seyðisfirði frá því á þriðjudag en í gærkvöldi og í dag voru rýmingar- og varúðarsvæði stækkuð. Í nótt féllu tvær skriður úr Nautaklauf og tók síðari skriðan með sér mannlaust timburhús og flutti það um 50 m. Í dag hafði orðið vart við óstöðugleika á tveimur stöðum í hlíðinni sunnan Seyðisfjarðar áður en stóra skriðan féll.Í nótt féll stór skriða yfir veg og út í sjó nokkru utan við þéttbýlið á Eskifirði en ekki hafa fallið skriður þar í bænum. Úrkoma í bænum á Eskifirði hefur verið mun minni en utar í firðinum og á Seyðisfirði. Í dag hafa opnast sprungur í Oddsskarðsvegi og hafa þær verið að gliðna. Í varúðarskyni hefur verið ákveðið að rýma hús undir svæðinu þar sem sprungurnar hafa opnast.Kort sem sýnir það svæði á Eskifirði sem verður rýmt. Húsin stand rétt neðan Oddskarðsvegar.

Uppfært kl. 16:40, 18.12.2020

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að hækka almannavarnastig á Seyðisfirði úr hættustigi í neyðarstig. Stór aurskriða féll úr Botnabrún, milli Búðarár og Stöðvarlækjar, skömmu fyrir klukkan þrjú í dag og féll á nokkur hús. Allir íbúar og aðrir á Seyðisfirði eru beðnir um að mæta í félagsheimilið Herðubreið og gefa sig fram í fjöldahjálparstöð eða hringja í síma 1717. Stefnt er að því að Seyðisfjörður verði rýmdur. Allar björgunarsveitir  á Austurlandi hafa verið boðaðar og lögreglumenn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sérsveit ríkislögreglustjóra og frá logreglunni á Norðurlandi eystra hafa einnig  verið sendir á staðinn.

Uppfært kl. 6.10 18.12.2020

Mikil úrkomuákefð hefur verið á Seyðisfirði í gærkvöldi og í nótt og rýmingar því enn í gildi. Í gærkvöldi voru þau svæð þar sem fólk í húsum var beðið um að gæta varúðar stækkuð. Í nótt féllu tvær skriður úr Nautaklauf sem er sami farvegur og stærsta skriðan á þriðjudaginn féll úr. 

Fyrri skriðan féll upp úr kl. 1 og önnur skriða féll um tveimur tímum seinna. Sú skriða tók með sér mannlaust timburhús og flutti um 50 m. Það hús var innan svæðis sem hafði verið rýmt. Í kjölfarið var staðan endurmetin og nokkur hús til viðbótar rýmd.

Appelsínugul viðvörun vegna rigningar er í gildi fyrir Austfirði til kl. 9 í dag. Veðurspá gerir ráð fyrir minni úrkomu með morgninum þótt ekki stytti upp fyrr en á laugardag.

Skriðan sem féll í nótt hreif með sér hús sem stóð við Austurveg og var eitt af þeim húsum sem fyrstu skriðurnar umlyktu. Húsið staðnæmdist rétt neðan við Orkuskálann sem er hvíta og bleika húsið. Á myndinni fyrir neðan sést hvar húsið stóð upphaflega og hvar það staðnæmdist. (Ljósmynd: Veðurstofan / Bjarki Borgþórsson)

Hus_Loftmynd

Húsið færðist til um 50 metra. (Ljósmynd: Daníel Örn Gíslason hjá björgunarfélaginu Ísólfi)


(Ljósmynd: Veðurstofan / Bjarki Borgþórsson)

Uppfært kl. 10.20 17.12.2020

Rignt hefur í alla nótt á Seyðisfirði og er uppsöfnuð úrkoma frá 15:00 í gær um 80 mm á veðurstöðinni í bænum, og yfir 500 mm frá 10. desember þegar þessi vætutíð hófst. Úrkoma á Austfjörðum jókst síðdegis í gær en í nótt dró úr úrkomu á flestum öðrum veðurstöðvum á Austfjörðum en Seyðisfirði. Nokkru fyrir hádegi eykst úrkoma aftur og ákafri rigningu er spáð fram yfir miðnætti á norðanverðum fjörðunum, þá dregur úr, en úrkoma heldur áfram fram á miðjan morgundag þegar spár gera ráð fyrir því að það stytti upp fram á laugardag. Í gærkvöldi féll skriða úr innanverðri Botnabrún, milli húsa við Botnahlíð. Skriðan féll ekki á hús en drulla og grjót náði niður á götuna. Áfram verður viðbúnaður vegna skriðuhættu á Seyðisfirði og Eskifirði a.m.k. til kvölds. Umferð um svæðið sem rýmt var á Seyðisfirði verður undir eftirliti lögreglu í dag. Appelsínugul viðvörun vegna rigningar er í gildi fyrir Austfirði.

Færsla 16.12.2020

Óvissustig vegna skriðuhættu er í gildi á Austurlandi og hættustig á Seyðisfirði. Stór skriða féll síðdegis í gær úr Botnabrún utan við Nautaklauf á Seyðisfirði og olli tjóni. Nokkur hús voru rýmd undir Botnabrún í innri hluta bæjarins. Þar eru rýmingar enn í gildi, en fólk hefur fengið að fara í húsin sín undir eftirliti til þess að sækja nauðsynjar.

Á Austfjörðum hefur verið mikil rigning síðustu vikuna og neðri hluti hlíða orðinn vatnsmettaður víða. Á Eskifirði hefur t.d. flætt vatn inn í kjallara í mörgum húsum vegna hárrar grunnvatnsstöðu. Þar hafa einnig fallið smáskriður ofan í árfarvegi síðasta sólarhringinn. Á Seyðisfirði voru skruðningar í fjallinu fram á nótt. Það hægðist um eftir kl. 2 í nótt og gert er ráð fyrir því að það verði minni úrkoma í dag en verið hefur síðustu daga.  Aftur á móti er spáð aukinni úrkomuákefð á nýjan leik í kvöld og verður talsverð rigning á morgun.


Mynd tekin í morgun, 16. desember, sem sýnir vel hvernig skriður umlykja hús í byggðinni. (Ljósmynd: Daníel Örn Gíslason hjá björgunarfélaginu Ísólfi)

Skriðurnar hugsanlega með þeim stærstu sem hafa fallið á svæðinu

Þekkt er að aur­skriður falli á þeim stöðum sem þær féllu á Seyðis­firði í gær. „Það hafa fallið skriður á öll­um þess­um stöðum en hugs­an­lega eru ein­hverj­ar þeirra með þeim stærstu sem fallið hafa á svæðinu“ segir Magni Hreinn Jónsson, sérfræðingur á ofanflóðavakt á Veðurstofunni. „Það voru alla vega þrjár sem féllu að byggð að minnsta kosti. Svo voru marg­ar sem stöðvuðust upp í hlíð í gær­kvöldi, svo voru svona skruðning­ar og læti í hlíðinni í gær­kvöldi þar sem var svona minna grjót að hreyf­ast og minni hreyf­ing­ar,“ seg­ir Magni, í viðtali við mbl.is. Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa þó ekki mælt skriðurnar sem féllu en það verður gert um leið og aðstæður leyfa.


Spáð aukinni úrkomuákefð á nýjan leik í kvöld og verður talsverð rigning á morgun.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica